Vísir - 19.09.1967, Page 12
12
Ftsam
V í 91R . Þríðjtidagur 19, september 1967.
ÍWWSBHJWSSÍW'WMB**1"®
Bindindisleiðangurinn.
Þar sem konurnar höföu séð ryk-
mekki langt í anstri, kvöldið áður,
sem bentu til þess að vagnalestin
væri þar á ferö, tóku þær upp
tjöld sín árla morguns og höfðu
hraðann á. Cora Templeton Mass-
ingale er stolt af því hve kon-
urnar eru reifar og hugrakkar,
þrátt fyrir sandbylinn sem gerist
nú svo myrkur, að þær aka í
blindni.
Gearhart herforingi og riddara-
sveit hans.
Herforinginn framfylgir ákvörð-
un sinni um leynivemd, og tjaldar
því um kvöldið aðeins nokkrár mtl-
ur í vestur frá tjaldstað bindindis-
leiðangursins, leggur einnig af stað
árla morguns og hefur hraðann á,
svo bilið styttist á milli riddara-
sveitar hans og leiðangursins, þar
eð hann kvíðir því að konumar
kunni að lenda í alvarlegum erfið-
leikum, vegna sandbylsins.
Snarfari
foringi þeirra tuttugu rauðskinna,
sem fyrstir eiga að gera sýndar-
árás á fremstu vagnana í lestinni,
og flýja síðan í vesturátt og gínna
riddaraliða Slaters höfuðsmanns
til að veita sér eftirför, hefur tek-
ið sér stöðu fyrir dögun með sína
fylgjara f kjgrri vöxnum brekkum,
beint norður af götuslóðanum, þar
sem hann bíður átekta.
Hlaupa-Elgur
forjngi hinna tuttugu rauðskinna,
sem gera áttu síðari sýndarárás-
ina á vagnalestina, og ginna síöan
riddaraliðana, sem þá væru enn
eftir til verndar henni, eins langt
austur á bóginn og auðið reyndist,
hafði einnig tekið sér og mönnum
sínum stöðu fyrir dögun, og lágu
þeir í leyni bak við kjarr og kletta
og biðu þess að dagaði og til tíðinda
drægi.
Fimmkaggi foringi
hafði fyrir dögun fundið sér og
meginliðsafla Rauðskinna fylgsni i
brekkukjarrinu fyrir norðan götu-
slóðann, miðja vegu milli hinna
Rauðskinnahópanna tveggja, og blð
ur þess aö birti. Endurskoðar hem-
aðaráætiun sina hvað eftir annað,
en finnur þar enga veilu.
Snarfari enn.
Nú gerist svo hvasst, og sand-
bylurinn að sama skapi svo myrk-
ur, að Snarfari getur naumast
grillt í sína eigin fylgjara, götuslóð-
ann alls ekki. Heyrir hófatak og
hjólaskark í daldraginu fyrir neðan,
heyrist samt aö þeir, sem þar eru
á ferð, komi vestan að en ekki
austan, en þar eð hann veit að
heyminni er ekki að treysta við
slíkar aðstæður, stekkur hann á
bak hesti sínum og kallar sína
fylgjara til áhlaups með gjallandi
herópi. Hleypa þeir tuttugu Rauð-
skinnar sem ákafast niður brekk-
una, linna ekki á herópum og skjóta
í blindni út í sandbylinn, en víkja
svo hart, þegar kemur að slóðinni
og hleypa í vestur inn á milli ás-
anna að riddaramir veiti þeim eft-
irför. Ekki getur Snarfari gert sér
grein fyrir árangri þessarar sýnd-
arárásar, vegna sandbylsins, en
furöu þykir honum samt gegna hve
hún skelfdi hvítu mennina, þar eð
hann heyrði ekki betur en að þeir
veinuðu og æptu sem hunddeigar
konur...
Bindindisleiðangurinn.
Þar er allt 1 uppnámi, konurnar
æpa og hljóða, og margir af hestum
þeirra hafa fælzt við herópin og
skothvellina og verður ékkert við
þá ráðið. Cora Templeton Massin-
gale er að vísu skelfingu lostin,
en hefur þó stjóm á sér. Hún ríg-
heldur sér í þaö, sem hendi er
næst í léttikerrunni, og á meöan
Louise Gearhart berst við að ná
aftur taumhaldi á óðum hestunum,
hrópar Cora til hinna sinni sterku
og hljómmiklu rödd: „Syngið kon-
ur... syngið!“
Og á samri stundu upphefja 250
konur rödd sína, og skelfingaróp
þeirra breytast í magnþmnginn sig-
ursöng, sem yfirgnæfir stormgný-
inn og hjólaskarkið:
„Höldum djarfar til Denver,
syndugú, siðspilltu Denver...“
verið gerö á fremstu vagnana i
lestinni, eins og til stóð. Og þar
sem hann heyrir vagnaskrölt og
hvatningarhróp ökumanna, þótt
ekki sjái hann neitt fyrir sand-
bylnum, æpir hann heróp, stekkur
á bak hesti sínum og þeysir niður
brekkuna, fremstur sinna tuttugu.
Æpa þeir allir sem mest þeir mega
og skjóta í sífellu af rifflum sínum
út i bylinn, og víkja svo hart til
vinstri er niöur kemur og þeysa I
austurátt, og þykist viss um að ridd
araliðarnir láti ginnast til að fara
á eftir. Hyggur hann að sýndarárás
þessi hafi tekizt, og markar það
af því, að hann sá grilia í andlit
á rauðhæröum ökumanni gegnum
sandbylinn, og blá augu, sem rang-
hvolfdust herfilega. Þótti Hlaupa-
Elg það leitt, að honum vannst ekki
tími til að verða sér þama úti um
rauðhært höfuðleður, en til þess
hafði hugur hans lengi staðið.
írsku ökumennirnir.
Halda til baka til meginlestarinnar
eins hratt og þeir geta knúið múl-
dýrin áfram, án þess sú ákvörðun
hafi verið formlega borin undir
fund, og samþykkt með meirihluta
atkvæða.
Fimmkaggi foringi
þykist nú viss um að fyrstu atriði
hinnar snjöllu þaulhugsuðu hernað
aráætlunar hans hafi tekizt með
ágætum, stígur á bak hesti sinum
og kallar menn sína aö fylgja sér
til atlögu. Gerist nú gnýr mikill,
þegar hinir blóöþyrstu rauðskinn-
ar þeysa niður brekkurnar, reka
upp voðaleg heróp og skjóta í
blindni allt hvaö af tekur út í
myrkan sandbyiinn.
Heimavarnarliöið.
Einhver tíðindi eru að gerast —
það má heyra minna — en enginn
veit hvað. En Jónas spámaður hef-
ur sagt, aö rauðskinnamir, sem
þama færu, væm fjandsamlegir, og
þá hlutu þeir aö vera það. Heij«k-
varnarliöið, eitt hundrað talsfris,
leituðu því vars þar sem það var
að finna ,og tóku að skjóta í blindni
niöur í dalinn.
hvína í kringum sig ofan úr brekk
unum báðum megin daldragsins,
sem götuslóðinn liggur um. Ekki
hafa þær hugmynd um að fælni
fararskjótanna hefur í rauninni
bjargað lífi þeirra, því að fyrir það
hve hratt þá bar yfir, er leiðangur-
inn kominn út úr daldraginu, áður
en meginstyrkur rauðskinnanna
þeysir til atlögu. Konumar eiga
ekki annars úrkosta en ríghalda sér
þar, sem handfestu er að fá, syngja
og láta hestanna ráða ferðinni, þær
halda sér því sem fastast og singja
sem hæst :
„Höldum djarfar til Denver,
syndugu, siðspilltu Denver ...“
Gearhart herforingi og riddara-
svelt hans.
Þegar herforinginn heyrir skot-
hvellina, rauðskinnaópin og vein-
in i kvenfólkinu spölkom framund-
an, býður hann að horn skuli
þeytt til atlögu. Sökum stormgnýs-
ins og sandbylsins heyra ekki allir
í fylkingunni homaþytinn, og gríp
ur það suma nokkurt fát þegar hest
amir taka stökkið — leysa sumir
byssur sínar, en aðrir vopnast
lúðrum sínum, og í sömu svifum
gerist það, aö tuttugu rauðskinnar
ríða beint í flasið á riddarasveit-
inni út úr hríðarmyrkrinu, berst
þar maður við mann, en loksins
meiðsli teljandi í báðum liðum —
þótt Dunham riddari fullyrti að
hann hafi rotað að minnsta kosti
þrjá Rauðskinna með trombónu
sínu.
Og þá sléttlygnir í einni svipan,
sandbylnum slotar — og orrustunni
undir Viskihæðum er lokið.
Og nú skulum við athuga atteiö
ingar hennar ...
ÞRETTÁNDI KAFLI.
Að áliti Thaddeusar Gearhart
herforingja, hafði vandamál, sem
beið sambandsstjórnarinnar, þegar
Lee hershöfðingi gafst upp fyrir
Grant hershöfðingja, verið tiltölu-
lega auðveld úrlausnar, samanbor-
ið við þaö ótrúlega flókna vandamál
sem beið hans nú. Að vísu var öll
um átökum lokið, og allir þeir, sem
að þeim höfðu staðið, héldu nú
kyrru fyrir í tjaldbúðunum sem
þeir höföu reist í dalnúm, innan
sjónmáls hver frá annarri. Annaö
mál var svo það, hve lengi sú
kyrrð héldist, eftir að þeir voru
hver um sig búnir að ræða hvaö
næst skyldi tekið til brágös. 1 raun
inni var þarna einungis um aö
ræöa stundarfrið, á meðan hinir
ýmsu aðilar voru að búa sig undir
frekari átök — herforinginn var
ekki í minnsta vafa um það — og
það mundi því enginn hægðarleik-
tekst þó rauðskinnunum aö kom- ur að fá því áorkað að sá friður
ast undan og hverfa út í sortann. yrði varanlegur.
Mannfall ekkert að vitað sé, og
GÓLFTEPPI
Ný sýnishom komin.
GólfteppagerÖin hf.
Grundargerði 8, sími 23570.
FERÐIR - FERÐALÖG
IT-feröir — Utanferðir — fjölbreyttar.
Lágu fargjöldin 15. sept. IT fargjöldin til 31. okt.
Hagkvæm viðskipti. Almenn ferðaþjónusta.
L/\N DS9 N t
F E
LAUGAVEGI 54
RÐASKRIFSTOFA
. SÍMAR 22875 - 22890
Berjaferðir á hverjum morgni kl. 8.30, þegar veður
leyfir. Ágætis berjalönd. Pantanir skráðar á skrifstof-
unni. Útvegum fyrirvaralaust allar stæröir bifreiða
i lengri og skemmri ferðir. Hagkvæmt verö. Reynið
viðskiptin.
!.
Hlaupa-Elgur
heyrir skothvellina og herópin og ! Bindindisleiðangurinn.
ályktar af því, að sýndarárásin hafi I Konurnar heyrðu byssukúlurnar
FERÐASKRIFSTOFA
LAUGAVEGI 54 . SÍMAR 22875 - 22890
íy Edgar Rice SmROUGHS
A SPEEDING JET CRDSSES THE (
ATLAMT1C OCEAN, HEAOIWö EAST...
MEAMWHILE, EUSHIMÍi TD REWDEZVOOS
WITW ObiE OF TH£ F«tAWE<S PASSEN6ERS,
A SOLE FIÖURÉ AAAKES HlS WAV
THROUeH HEAVV JUWeLE..-.
At the saaae time, tarzaw and the
TWO FRIENDS H6 RESCIÆD ARRIVE AT
THE ED6E OF THE SAME OUNGLE...
10*
N
Hraðfleyg þota flýgur yfir Atlantshafið
og stefnir í austur. Á meðan brýzt maöur í
gegnum þéttan frumskóginn til að koma til
móts við einn farþega vélarinnar.
Á sama tíma kemur Tarzan með vini
sína sem hann bjargaði út úr frumskóginum.
Og örlögin draga þá mn i nýjar ævintýra-
flækjur.
ÞX'ó.riASTÓ'DIN
'SU OUR!. ANO'SBR'Al’i 1
„simi sih?:; ói’ii' «-'.'130