Vísir - 16.10.1967, Qupperneq 1

Vísir - 16.10.1967, Qupperneq 1
VÍSIR Mánudagur 16. október -HSV&Z+m,- < 'Si. ., ..i.— 3?-5E?G3 \ Blað II. fundið lífsfyllingu jgg er staddur heima hjá Jóna- tan Ólafssyfii hljóðfæraleik ara. — Um nokkurt árabil höf- um við vitað ofurlítið hvor um annan, og er það þó ekki vegna þess að músikhæfileikar mínir séu það miklir, að þeir hafi lað- andi áhrif á neinn, sem er jafn fjölhæfur í því sviöi og Jóna- tan. Hins vegar hafa stundum slæðzt fram úr mér hendingar, sem hafa skapað milli okkar einhver ósýnileg tengsl, sem stundum — koma upp á yfir- borðiö. — Hvaðan ertu upprunninn Jónatan? 1 — Foreldrar mínir Ólafur Jónatansson og Þuríður Jóns- dóttir voru ættuð frá Borgarfirði og Mýrum, en ég er fæddur í Austurbænum hérna í Reykja- vík fluttist í Vesturbæinn 4 ára gamall og hef átt þar heima síðan. — Sem lítill drengur lék ég mér í fjörunni við Skerja- fjörðinn og þegar ég var orðinn það stálpaður aö veiðimannseöl- ið var vaknað, þá fékk ég rauð- magalifur í beitu og veiddi svo ritu. — Þessi munu hafa verið mín fyrstu og ef til vill ánægju legustu veiðimanns ævintýr — en þó á ég alltaf ánægjustund gefist mér tækifæri til að væta öngul, en þaö er nú orðið dýrt gaman venjulegu vinnandi fólki, enda má segja að laxveiði sé í dag munaður þeirra einna, sem mikil fjárráð hafa. — En nú er þaö tónskáldið og hljóðfæraleikarinn sem situr hér andspænis mér, og slær strengi slaghörpunnar — er greinilega að huga að nýju tón- verki, ég vil sem minnst trufla hann á meðan ég sé hvað hugur hans er fanginn — en nú er ör- stutt hlé. — Hvenær fórst þú að hafa áhuga á hljóðfæraleik, Jóna- tan? — Áhuga, það er nú dálítið erfitt að svara því. en ég byrj- aði aö læra á hljóðfæri 10 ára gamall og í fyrsta skipti spilaöi ég opinberlega 12 ára og þá lék VIÐTAL ER VIÐ JONATAN ÓLAFSSON HLJÓÐ- FÆRALEIKARA Jónatan Ólafsson : ... hef fundið lífsfyllinguna... ég undir fyrir Erling bróður — og hvernig það gat skeð veit ég varla. Þá var ég svo feiminn að ég vissi hvorki í þennan heim né annan. — Já, þetta var nú þá, þú ert nú oft búinn að standa and- spænis lífinu síöan? — Já, ég hef gert það, og þegar hljóðfæraleikur er at- vinna — þá mundi ég segja að það væri meö því erfiðara sem menn legðu fyrir sig — að finna samhljúm þess sem býr í huga manns og huglægan straum frá því- fólki sem verið er að vinna fyrir. — Takist þetta þá gleymir maður öllu öðru en ljóma þess líðandi augnabliks, sem gerði manni fært að ná þessum árangri. Ég byrjaði að spila um 18 ára ald- ur og má segja að ég hafi gert það því nær óslitiö í 30 ár. — Árið 1933 fór ég norður til Siglufjarðar, þá með Erling bróður sem vann í síldarverk- smiðjum rikisins á sumrin. — Og á Siglufirði var ég svo bú- settur í 7 ár, kenndi hljóðfæra- leik og spilaði við flest þau tækifæri sem tii féllu. — Og ég held mér sé óhætt að segja að með mér og Siglfirðingum hafi tekizt gagnkvæm kynni — og mér finnst að þangað liggi enn- þá sterkar taugar. — Á meðan ég dvaldi þar stjórnaði ég karla kór en hann lognaðist útaf þeg- ar ég fór. Á stríðsárunum spilaði ég töluvert fyrir hermennina — venjulega á daginn milli 3 og 5. — Það var vel borgaö, og gott að vinna fyrir þá. þeir voru þakklátir og tóku þátt í þessu af lífi og sál sungu með og voru góðir hlustendur. — 1 þess um tilfellum var aldrei dansað. — Þetta var aðeins skemmti- stund fyrir þá sem bjuggu í kömpunum. Og svo þegar stríð- inu lauk þá spilaði ég hér og þar á skemmtihúsum bæjarins — og eins og ég sagði áöan þá er þetta erfitt og slítandi starf geti maður ekki komist í snertingu við þá sem eru að skemmta sér, og finna ekki að einhverju leyti til með þeim í gegnum tónfallið. Oftast tókst þetta en þó kom það fyrir að maður fann að eitthvað skorti á að ánægjan væri gagnkvæm og þá var þreytan oft yfirþyrm- andi aö loknum leik. — Þú kennir hljóöfæraleik? — Já, á veturna aðallega á píanó — Það starf fellur mér vel, ég er vanur að gera nem- endum mínum grein fyrir þvl strax og ég tel mig hafa kynnt mér hæfileika þeirra, hvort þeir | geti náð nokkrum árangri og ráðlegg þeim eindregið að vera ekki að strita viö nám á þessu sViði sé þeim það ekki hug- lægt. — Það skapar hvorki mér né þeim ánægju eða árangur. — Og þótt ég fái tímana greidda þá nýt ég ekki þess fjár jafn ánægður og ef ég er að styðja til frama efnilegt ungmenni. — Svo hefur þú samið mik- ið af tónverkum? — Já, en það er nú mest i kassa ég er ónýtur að koma þessu á áframfæri. — Þetta er kannski einskis virði, mér er nóg þegar ég hefi búið lagið til — minn innri maður hefur fengið fró — og viss sköpunar- gleði vakað með mér þær stund- ir sem I þetta hafa farið. — Örfá danslög hafa komið á plötum, en þó hef ég gert öllu meira að þvi að búa til söng- lög. — Hvað er þitt aðalstarf í dag? — Ég vinn við vélabókhald á skrifstofu borgarverkfræð- ings — og á þeirri skrifstofu hefi ég haft fast starf í 15 ár. — Svo vel má sjá að minn hljóðfæraleikur hefur verið tals vert mikið tómstundastarf — eða unniö á þeim tíma, sem aðrir nutu hvíldar. eða gerðu sér glaða stund. — En það verð ég þó að segja að í því hef ég fundið lífsfyllingu. — Þegar manni finnst tilveran ömurleg og hversdagsleikinn dragast yfir skapið, þá grípur maður gjarnan i hljóðfærið — eða krotar eitthvað á blað — og þá er eins og stytti upp og verði skúraskil. — Þannig er lffið og ég vil segja að þótt erfiðlega horfi stundum sé alltaf von á björt- um degi. — Ég á notalegt heim ili og góða konu — og ég vil segja það að lokum að ég væri hvergi stór maður stæði hún ekki við hlið mér. Þ. M. I hljóðfæraleik hef ég i jl

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.