Vísir - 09.02.1968, Blaðsíða 7
V í SIR . Föstudagur 9. febrúar 1968.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
lítlönd í morgun
útlönd
STJÓRNARKREPPA í BELGÍU
,Belg'ia er ekki miklb stærri en vasaklútur, en samt eru til
menn, sem vilja rifa hana i tætlur
Ríkisstjómin hafði nefnilega
samþykkt, að bæði málin —
flæmska og franska — skyldu
áfram notuð í háskólanum í Louva
in, og við þessa ákvörðun vildu
hinir frönsku ráðherrar ekki sætta
sig.
í tvö dægur reyndi Boyenantz
forsætisráðherra að miðla málum,
en varð að gefast upp við þaö,
en í fyrradag neyddist hann til
þess aö lýsa yfir á þjóðþinginu,
að hann yrði að fara til Baudoins
konungs og biðjast lausnar fyrir
sig og stjóm sína.
Poul van den Boyenantz mynd
aði stjórn sína 19. Tnarz 1966.
í Belgíu njóta Flæmingjar og Vall-
onar sömu réttinda og flæmskan
.og franskan eru jafnrétthá mál,
,,flæmskar“ skólastofnanir til dæm
is jafnréttháar og „franskar" —
en Louvain háskóli er þar undan-
tekning, og má segja að það hafi
í upphafi verið hefðar vegna, að
ekki var hróflað við því, að hluti
háskólans er í raun og veru
,,franskur“, eins og sjá má af því,
að 10.000 af 21.000 stúdentum,
sem nú era við háskólann, stunda
nám í franska hlutanum.
1 hinum flæmsku héruðum lands
ins hafa menn margsinnis krafizt
þess, að hin franska deild háskól-
ans yrði flutt suður á Iand, svo
'«ð háJgtt' yæri að reka Louvain-
háskóla sem al-flæmskan háskóla,
en þessi hugmynd mætti sterkri
andspyrnu, og einnig frá kaþólsk-
um biskup, sem í fyrra birti yfir-
lýsingu þess efnis, að báðar há-
skóladeildirnar yrðu að vera við
lýði. En einn biskupanna, sem
fara með æðstu stjóm háskólans,
kvaðst nýlega hafa skrifað undir
yfirlýsinguna „á fölskum forsend-
um“, og þá krafðist einn flæmsku
ráðherranna flútnings á henni til
Vallóníu, eða landshluta hinna
frönskumælandi.
Van den Boyenantz sagði í fyrra
dag viö fréttamenn, að hann myndi
ekki neita, ef konungur bæði hann
að gera tilraun til þess að mynda
stjóm að nýju. „Það sem við höf-
um nú mesta þörf fyrir, er aö
hugleiða málin af rósemi — vanda
málið er svo erfitt viðfangs vegna
þess, að það er tilfinningamál.
Menn hafa tekið afstöðu í mál-
inu og vilja ekki hvika frá henni,
svo að málamiðlun hefur reynzt ó-
hæg og jafnvel þeir sem reyna mála
miðlun stimplaðir sem svikarar eöa
gungur.
Fyrrverandi forsætisráöherra
Achille van Acker sagði:
Belgía er ekki mikið stærri en
vasaklútur, en samt eru til menn,
sem vilja rífa hana í tætlur.
Tungumáladeilan milli Flæm-
ingja og Vallóna, hinna frönsku-
mælandi íbúa Belgíu, hefur bloss-
aö upp á ný og afleiðingin orðiö,
aö nokkrir ráðherrar báðust lausn-
ar, og \baðst þá Paul Boyenantz
forsætisráðherra Iausnar fyrir sig
og stjórn sina, og pr taliö að þetta
kunni að revnast ':ein álvarlegasta
stjórnarkreppa í landinu um langt
skeið.
Ekki er það ný bóla, að tungu-
máladeilan leiði til stjórnarkreppu
í Belgíu. En þótt þessar deilur
hafi aldrei legið niðri, hafa þær
ekki teflt stjóm Boyenantz í hættu,
fyrr en fór ag krauma í pottunum í
háskólabænum Louvain, en þar er
mikill háskóli og merkur, og er
flæmskur eins og bærinn, sem er
í flæmska hlutanum, en fyrirlestr-
ar hafa jafnan verið haldnir þar
aö nokkru á frönsku, og því voru
flæmskir stúdentar aö mótmæla
enn einu sinni. Og þegar að því
var komið, að upp úr syði, var
sýnt hversu fara mundi, — þ, e.
að tveggja ára samstarf í stjórn
Boyenantz myndi ekki haidast leng-
ur.
Stjórnarflokkarnir eru Frjáls-
lyndi flokkurinn og Kristilegi
sósíalski flokkurinn. Hinn síðar-
nefndi er stærsti flokkur landsins
og innan hans kom upp ágreining-
ur um tungumálin samtímis og
deilan í LÖuvain harðnaöi og fór,
svo, að átta ráðherrar flokksins,
sem eru í hinum flæmska armi
hans sögðu af sér.
Kennedy gagnrýnir harðlega
Vietnamstefnu Johnsons
Véfengir tölur um manntjón Vietcong
Robert Kennedy fyrrver-
andi dómsmálaráðherra
flutti ræðu í Chicago og
gagnrýndi hvasslegar en
nökkurn tíma áður Víet-
namstefnu Johnsons for-
seta og stjórnar hans og
valdhafa Suður-Víetnam.
Hann kvað tíma til kominn að
líta á þessi mál öðrum augum en
gert hefði verið. Hann kvað banda-
rfsku þjóðina hafa vprið blekkta
með villandi tölum og^sakaði Suð-
ur-Víetnama um að hafa stolið
hundruðum milljóna dollara.
Kennedy nefndi mörg dæmi um
það, að spár og fullyrðingar her-
stjómarinnar og utanríkisráðherr-
ans hefðu reynzt rangar eöa vill-
andi og væri tími til kominn að
þjóðin áttaði sig á hve hættulegt;
væri að treysta á gyllivonir.
Hann kvað manntjón Víetcong
vera talið um 20.000 fallna, og ef
særðir menn eða teknir höndum
væri í hlutfalli við það, hvað væri
þá eftir af mönnum til að berjast,
og auk þess væri talað um þðssafn-
að í grennd við Saígon.
í kjölfar ræðu Kennedys komu
fréttir um nýtt mótlæti. Þurrkuð
hefði verið út bílalest á leiöinni
niður á bóginn, á leið til Hue, og
voru í henni 40 bílar. — Við Khe
Sahn hafa Norður-Víetnamar á sínu
vaTdi aðalflutningáleiðina yfir La-
os-lándamærin. Skotiö er af fall-
býssum á stöðvar Bandaríkja-
manna við Khe Sahn — tiltölulega
kyrrt — sennilega þó aðeins „logn
áður en stormur brýzt út“.
Seinustu fréttir herma, að ekki
beri að líta á gagnrýni Kennedys
sem fráhvarf frá þeirri afstööu, aö
vinna ekki gegn Johnson sem for-
setaefni.
Robert Kennedy.
■fc Tveir menn biðu bana og 14
meiddust í óvanalegu slysi í Van-
couver, BC í Kanada. Kanadísk
flugvel af gerðinni Boeing 707 lenti
í lendingu í þoku á flugvélahóp á
vellinum og á bíl og svo stakkst
framhluti vélarinnar gegnum vegg
á skrifstofubyggingu og kviknaöi i
henni. Áhöfnin slapp ómeidd og
farþegar að mestu.
★ Holland mun bráðum taka upp
að nýju venjulegt stjórnmálasam-
band viö grísku stjórnina, að þvi
er Joseph Luns utanríkisráðherra
skýrði frá í gærkvöldi. Belgía mun
gera slíkt hið sama.
•k Tala atvinnuleysingja í iðnaðar
löndum óx mjög árið 1967, aö þvi
er segir í nýbirtum skýrslum (frá
ILO-International Labor Organi-
sation). Mörg lönd stöðvuðu inn-
flutning verkafólks frá öðrum lönd-
um. -
★ Suður-Afríka er eina þróunar-
landið í heiminum sem ekki hefur
sjónvarp. og hefur það strandað
á póst- og símamálaráðherranum
Herzog, sem er rammur andstæðing
ur sjónvarpsins, en nú hefir tekið
við embætti hans Matthys van
Rensburg, sem litur sjónvarpið allt
öðrum augum. Þó getur það dregizt
enn um eitt ár, að stjórnin veiti
leyfi sitt. Viðtækja-verksmiðjur
eru reiðubúnir að hefia framleiðslu
sjónvurpstækja tafarlaust eftir að
það verður leyft.
•Ar Stórsk'otalið Israelsmanna og
Jórdana tóku til aö skiptast á skot
um í gær yfir Jordan, enn einu
sinni, og stóð skothríðin í nokkrar
klukkustundir A mars bvriaði leik
urinn í þeta skipti með því að
nokkrir hermenn skutu af rifflum
yfir ána sk .n.mt frá Damia-brúnm
ísraelskur talsmaður sagði að Jord
anir hefðu byrjaö og hafið skot-
hríð af sprengjuvörpum og fall-
byssum. Þrír rnenn létu lífið og
tveir særðust, er dráttarvél var
sprengd í loft upp er jarðsprengja
sprakk sunnan megin Galileuvatns
I fyrrinótt voru 4 Arabar drepnii
og tveir særðir í bardaga við ísra-
elskan varðflokk norðan Dauða-
hafs.
/ DAL DAUÐANS
Uppdráttur af fjallavirkinu Khe Sahn, sem er í norðvestur-horni Suður-Víetnam, í grennd við
landamæri Laos og Norður-Víetnam. Norður-Víetnamar hafa komið sér fyrir í hæðunum
allt í kringum Khe Sahn.
Willy Brandt svarar fyrir-
þingi — faung-
gard DPA .V
spurnum
orður
a
i
Willy Brandt utanríkisráöherra
Vestur-Þýzkalands sagöi í gær á
þingi, er hann svaraði fyrirspurn-
um þingmanna út af fréttum þess
efnis að hann hefði borið de Gaulle
forseta valdagræðgi á brýn, — að
hann færi ekki til Parísar síðar í
mánuðinum til þess að gera yfirbót,
því að hann hefði ekki móðgað
íorsetann.
Hann kvaðst ekki geta gert sér
í hugarlund, að áfram yrði ókyrrð
út af þessu máli í fransk-vestur-
þýzkri sambúð, þar sem búið væri
að birta réttan. fullan útdrátt úr
ræðunni.
Brandt minnti á, að DPA (vest
ur-þýzka fréttastofan) hefði dregió
að birta leiðréttingu á. ræðunni ti'
mánudags, jafnvel eftir aö hanr
sjálfur hafði neitað, að fregn henn
ar um ræðuna .væri rétr. rlann
kveðst verða að líta á það sem
hneyksli, að fréttastofan skyldi
hafa dregið á langinn, að birta Ieið-
réttingu á rangri fregn.