Vísir - 09.02.1968, Blaðsíða 16
?
Föstudagur 9. febrúao 1968.
Gjöf til
Listasafns
ASI
Nýlega var stjórn Listasafns Al-
þýöusambands Íslands afhent að
gjöf málverkið „Tröllin á Kili“ eft-
ir Ágúst F. Petersen, listmálara,
sem var siálfur gefandinn. Mynd
þessa málaði Ágúst í Kjalhrauni
sumarið 1966, og hefur hann haft
hana til sýnis á tveim málverka-
sýningum sínum, í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins haustið 1986 og I
Vestmannaeyjum ári síðar.
Trésmiðir löguðu þakið / sjálf-
boðavinnu eftir snjóflóðið
** Blaðið hefur áður skýrt
frá snjóflóðinu, sem féll á
húsið nr. 76 við Suðurgötu
á Siglufirði í ofviðrinu um
síðustu helgi, en þar býr Þór-
ir Björnsson rafvirki ásamt
eiginkonu sinni og fjórum
börnum þeirra.
Snjóflóðið skall á húsinu og
kom vestanmegin á þaö og fyllti
stofur. Snjóflóðið féll úr Strengs
gili. Á þriggja dálka myndinni
sést, að vesturhliö hússins er á
kafi eftir snjóflóöið, en gluggar
í henni brotnuðu allir og húsið
hálffylltist af snjó. Stór hluti
þaksins rifnaði upp af krafti
snjóflóðsins og lá því mikill
snjór á loftinu. Margir trésmiðir
söfnuðust saman og geröu við
þakið í sjálfboðavinnu strax og
fært var.
Eindálka myndin sýnir um-
merkin eftir snjóflóðið en það
braut milliveggi í húsinu og
eyðilagði öll húsgögn, sem flest
voru ný. Sökum þess að mikill
snjór komst á loftið var tals-
verður leki, eftir að snjónum
hafði verið mokað burt úr stof-
unum. (Ljósm. Hafl: Guðm.).
.... B
Loönuverð
Á fundi yfirnefndar Verðlags
ráðs sjávarútvegsins í dag var á-
kveðið. að lágmarksverð á loðnu
i bræðslu á loðnuvertíö 1968
skuli vera 42 aurar hvert kg.
i auk 5 aura pr. kg í flutnings-
giald frá skinshlið í verksmiöju
þró.
Verðið er byggt á þeirri for-
sendu að fellt verði niður útflutn
ingsgjald af loðnuafurðum á
komandi vertíð.
Vérðákvöröun þessi var gerð
með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa kaupenda gegn atkyæð
um fulltrúa seljenda í nefndinni.
í nefndinni átti sæti Bjarni
Bragi Jónsson, sem var odda-
ijiaður nefndarinnar, Guðmund-
ur Kr. Jónsson og Ólafur Jóns
on tilnefndir af fulltrúum kaup
énda í Verölagsráði og Guð-
mundur Jörundsson og Jón
Sigurðsson, tilnefndir af full-
trúum seljenda í Verðlagsráði.
Fjörugar umræður um írestun
H-dags á Alþingi
Fjörugar rmræður hafa orðið á Alþingi um frumvarp Stein-
gríms Pálssonar og fleiri þingm. um eins árs frestun á hægri hand-
ar umferð. Annarri umræðu málsins lauk í gær, en umræðan hef-
ur teygít yfir þrjá fundi neðri deildar og varð að framlengja fund
deildarinnar í gær, til þess að unnt yrði að ljúka umræðunni.
Allsherjarneind deildarinnar hafði j iagði meirihluti til, aö frumvarpið
klofnað í áliti sínu um málið og yrði fellt, en minnihluti lagði til,
ÉG BJÓST ALDREI VIÐ NEINU
LÍKINGU VIÐ ÞETTA"
— sagði UBfur Gunnarsson sjúkrahússiæknir ú Isufirði
Ég bjóst við blaðamönn-
, en ég hefði aldrei getað
ímyndað mér að þetta yröi
ne tt í líkingu við það sem
varð. Við höfum orðið fyrir
svo miklum óþægindum
vegna ágangs blaðamanna, að
við höfum m. a. þurft að
fresta nokkrum uppskurðum
vegna þess, sagði Úlfur Gunn-
arsson, yfirlæknir á sjúkra-
húsinu á Isafirði, þegar tíð-
indamaður Vfsis ræddi við
hann, eftir að til slagsmála
kom við sjúkrahúsið í gær.
Strax fyrsta daginn, sem
Harrv Eddom lá hérna, tók ég
eftir því að erlendir og í ein-
hverjum mæli innléndir blaða-
menn tóku að flykkjast til ísa-
fjarðar. Þá bauð ég Harry að
fá einkaflugvél og smygla hon-
um til Bretlands, til þess að
■ý Starfsfólk sjúkrahússins á
ísafirði hefur staðið í ströngu
að undanförnu. vegna ágengni
erlendra blaðamanna. — Há-
marki náði atganuurinn í gær,
en mvndin hér sýnir hvar hjúkr
unarkona iendir í ryskinaum við
brezkan blaðamann. — Hún var
blá o» marin eftir átökin.
koma honum þannig undan
blaðamönnum. Hann vildi frek-
ar vera hér, meðan hann væri
að jafna sig. Hann átti þess sízt
von, _ð björgun hans myndi
vekja þá eftirtekt. sem síðar
hefur komið á daginn.
Það hefur verið erfitt að veita
sjúklingum venjulega aðstoð og
þjönustu, skaut dóttir Úlfars,
Katarína að nafni, hér inn í, en
hún er aðstoðarstúlka föðurs
síns. — Sjúklingar hafa varla
fengið að borða á réttum tím-
um og allur hvíldartími þeirra
er farinn úr skorðum.
Yfirleitt voru blaðamenn
sem einstaklingar samvinnuþýð
ir, en þegar þeir voru saman-
komnir var eins og þeir misstu
stjórn á sér sagði Úlfur. Ein-
stakir aenn svívirtu friðhelgi
sjúkrahússins. Þeir ættu þó að
vita að sjúkrahús eru ekki vett-
vannir slagsmála. Ég vona að
ég eigi aldrei eftir að kynnast
sltku aftur. — Þess má að lok-
um geta, að Úlfur hefur varla
haft svefnfrið í þrjá sólar-
hringa, vegna þessa gauragangs
Á 2. síðu blaðsins eru myndir
og frásöen af átökunum við
sjúkrahúsið.
Barizí á spítala - bls. 2
að frumvarpið yrði samþykkt. Eftir
að framsögumenn nefndarinnar
höfðu lesið upp nefndarálitin og
skýrt sjónarmið sinna skoðana-
bræðra, kvöddu aðrir þingmenn
sér hljóðs og skipzt var á athuga-
semdum.
Matthías Bjamason (S), fram-
sögumaður meiri hluta, tók fyrstur
til máls á fundinum í gær og fór
ómjúkum orðum um röksemdir og
málflutning þeirra þingmanna, sem
mæltu með samþykkt fmmvarps-
ins. Gísli Guðmundsson (F) hafði í
alllangri ræðu vikið að þvi á ein-
um stað, að frumvarpið um hægri
handar akstur hefði á sínum tíma
verið hespaö af í skyndi, en um
það sagði Matthías:
„Ég veit ekki hvaða hraða á að
hafa á setningu löggjafar á Alþingi
fslendinga, ef þaö er talið, að því
frumvarpi hafi verið hespað af i
skyndi.
Þaö var lagt fyrir Alþingi í nóv
1965 og afgreitt frá efri deild Al-
þingis 3. maí 1966.
Mál þetta var þá ekki nýtt. Það
haföi verið rætt á tveimur þingum
á undan, 1962—1963, 1963—1964,
og þá allýtarlega. Svo má einnig
minna hæstvirtan þingmann á það,
að með setningu umferðarlaganna
1940 var ákveðið að taka upp hægri
handar akstur í þessu landi, þannig
að segja má, að þetta mál hafi
rramhald á bls. 10
Engar hafís-
fregnir siðan
21. janúar
Ekkert hefur frétzt af hafísnum
undanfarið, eftir því sem Jónas
Jakobsson veðurfræðingur sagði
blaðinu i morgun, en síðasta Is-
fregnin kom þann 21. janúar frá
Hornb.iargsvita, en þá var tilkvnnt
að þar sæist íshrafl. Sagði Jónas
að vitað væri að ísinn væri ekki
langt undan landi þó að hann hefði
ekki komið mjög nærri landinu und-
anfarnar 2—3 vikur.