Vísir - 11.06.1968, Side 3
Skákin virðist eiga ófáa unnendur þessa dagana. — Áhorfendasalurinn er oft þéttskipaður, þegar lfð
ffÍSIR . Þriðjudagur 11. júní 1968.
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Það sparar yður t'ima og óþægindi
INNHEIMTUSKRÍFSTOFAN
Tjarnargótu 10 — III hæð —Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)
móti. Hins vegar eru þar fleiri um hituna og skal hér engu spáð. Þessari skák þeirra Taimanovs og
Friðriks lyktaði með jafntefli.
Jjað er mikið hugsað í Tjarnar
búð þessa dagana. Þar iúta
sextán skákmeistarar þenkjandi
höfðum yfir tafli. Hundruð á-
horfenda standa álengdar, fhuga
hverja hreyfingu á skákborðun-
um og reyna að geta í þanka-
gang meistarana.
Hver leikur er yfirvegaður,
hver staða ,,stúderuð“ af mis-
jafnlega miklu innsæi. Þaö er
lágvær kliður í salnum menn
bera saman bækur sínar og oft
á tfðum þykjast menn vera bún
ir að leysa þrautina áður en
keppandanum þóknast að opin-
bera yfirvegun sína.
•
Þeim skákum, sem mesta at-
hygli hljóta hvert kvöld er varp
að á sjónvarpsskerm upp á aðra
hæð hússins. Framan við skerm
inn eru jafnan þéttskipaðar
stólaraðir áhugasamra skák-
manna, sem hjálpast að við að
finna liklegustu leikina, spá
fram f tímann. — Þessum spá-
dómum stjórna kunnir skák-
menn.
Þannig leita tugir og hurídruð
manna þess sama og meist-
arinn við taflborðið. Hann fer
sínar eigin leiðir, — eygir
kannski þann möguleika, sem
öllum áhorfendaskaranum hafði
vfirsézt.
•
Fiske — mótið er liklega sterk-
asta taflmótið sem stofnáð hef-
ur verið til hér á landi. Ekki
einungis vegna þess að þar tefla
sex þekktir erlendir skákmenn
og þar af fjórir stórmeistarar,
heldur einnig vegna styrk-
leika okkar manna. Yngstu kepp
endumir úr hópi Islendinganna
hafa staðið sig vonum framar í
mótinu til þessa og virðast þeir
engum stórmeistara auðveld
bráð. Þetta er sjálfsagt árangur
fjörugs skáklífs undanfarin miss
eri.-----Auk þess eigum við
allt eins von um efsta sætið á
þessu móti, þar sem Friðrik Ól-
afsson er annars vegar.
•
Fiske-mótiö er haldiö til
minningar um íslandsvininn
Willard Fiske. En þessi banda-
ríski prófessor tók miklu ást-
fóstri við íslenzka skákiist og
skrifaði um hana snjallt vís-
indarit. — Hann stuðlaði mjög
að framgangi skáklistarinnar
hér á landi fyrir aldamótin og
gaf meðal annars út skákbækur
á íslenzku og gaf útgáfurnar
Taflfélagi Reykjavíkur.
•
Skákmótið siendur til 20. júní
og er teflt frá klukkan sjö til
tólf hvert kvöld. Aðsókn að mót
inu er jafna mikil og þó einkum
þau kvöldin, þegar sterkustu
skákmenn okkar tefla við er-
lendu meistarana. Oft er þá loft
ið þrungið hljóðlátri spennu:
menn tvístíga, klóra sér í höfð
inu og hugsa stíft. — Myndsjáin
er frá einu slíku kvöldi mótsins
en í þeirri umferð gerðu þeir
Ingi R. og Friðrik jafntefli við
Rússana Taimanov og Wasjúkov
og Guðmundur Sigurjónsson
vann Ungverjalandsmeistarann
Szabo ,en Bragi Kristjánsson
gerði jafntefli við Júgóslavann
Ostojic.
skáklistina. Og það er kannski ekki svo lítils virði að fá að vera'
inni i stúku skákmannanna í slíku stórmóti og hafa það starf að
hreyfa mennina á vegg'pjaldinu, sem snýr að áhorfendum, jafnóð-
um og keppendur leika.
OGREIDDIR l
REIKNIHGAR *
Þar hugsa hundruð manna
í kapp við meistarana
Ð9SKI
-i,.,,Æs.aaaiaiar>Hgs8^