Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 8
3 V1SIR . Þriðjudagur 2. júlí 1968. VISIR Utgeíandi: Reykjaprent hf. ( Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson / Ritstjóri: Jónas Kristjánsson \ Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson / Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson \ Ritstjórnarfulltrúi: Valdimgr H. Jóhannesson (I Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson / Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099 J Afgrei^sla : Hverfisgötu 55. Slmi 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) i Askriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið ( Prentsmiðja Vfsis - Edda hf. Ný atvinnugrein Rétt innan við 40 þúsund ferðamenn komu til íslands / í fyrra. Líklega verður talan enn hærri á þessu ári, )) enda hefur það ekki brugðizt undanfarna áratugi, að )) straumur ferðamanna hingað hefur vaxið hröðum )j skrefum ár frá ári. Ferðamannaþjónusta er þannig að l verða sérstök atvinnugrein á íslandi. ( Því miður eru ekki til tölur um hlutdeild þessarar ( greinar í gjaldeyrisöfluninni. Af hagskýrslum má þó (i í áða, að þessar tekjur séu tæplega 400 milljónir króna / á ári. Jafngildir það 5—6% af gjaldeyrisöfluninni. Er ) ekki fráleitt að meta ferðamannaþjónustuna í gjald- ) eyrisöflun til jafns við saltfiskframleiðslu þjóðarinn- ) ar. Og það er alls ekki svo lítið. (' Eins og gefur að skilja er fólk seint að átta sig á ) gildi nýrrar atvinnugreinar sem þessarar. Margir líta ( enn á ferðamannaþjónustu sem hálfgerðan kjánaskap. (/ Af opinberri hálfu hefur þó á síðustu árum ýmislegt // þarft verið gert til að efla þessa atvinnugrein. Ferða- )) málaráð hefur starfað með sóma í nokkur ár, og )i stofnaður hefur verið sjóður til að lána til byggingar \\ og útbúnaðar gistihúsa og veitingahúsa. Vegna þessa l1 framtaks er smám saman að síast inn hjá okkur skiln- ( ingur á gildi og möguleikum ferðamannaþjónustunn- / ar. ) ísland hefur vissulega litla möguleika á að laða að / almenna ferðamenn, sem ekki vilja annað en sólbak- ) aðar baðstrendur. En ferðamannastraumurinn í heim- \ inum er svo mikill, að íslendingar mundu aldrei geta ( annað móttöku allra þeirra, sem gætu fengið áhuga á í þeim sérkennum, sem ísland hefur upp á að bjóða. / Undanfarin veltiár hafa menn haft nógu að sinna í ( hefðbundnu starfsgreinunum og þess vegna ekki haft / ýkjamikinn áhuga á eflingu nýrra atvinnuvega. Fram- / sýnir menn hafa þó bent á, að innan tíðar muni verða ) vandamál að útvega vinnu handa öllum þeim, sem \ komast á fullorðinsár á næstu árum. Þessi forsjálni ) liggur að baki stóriðjustefnunni, sem ríkisstjómin ( hefur fylgt. Hið sama gildir um ferðamannaþjónust- / una. . / Ferðamannaþjónustan er ein hinna nýju atvinnu- /i greina, sem þjóðinni er nauðsyn að efla til að tryggja / efnahagslega framtíð sína. Því fleiri atvinnugreinar, ) því fleiri möguleikar, því meira öryggi fyrir sveiflum ) og óáran. Það er staðreynd, að ferðamannaþjónustan ( er ein þeirra greina, þar sem hinir ónotuðu möguleik- \ amir em mestir. Við ættúm því að gefa ferðamálun- / um miklu meiri gaum en við gerum. / Hinn mikli sigur Kristjáns Eldjárns kom á óvart Hann hlaut 65°Jo greiddra atkvæða, en dr. Gunnar Thoroddsen 34.1°Jo Óhætt er aO fullyrða að hinn mlkli sigur dr. Krist- jáns Eldjáms hafi komiO mönnum mjög á óvart. Aö dr. Kristján myndi sigra með jafn- miklum mun og reyndin varð, datt fáum eða engum f hug, þó að menn hölluðust frekar að sigri hans, þrátt fyrir allmikla sókn stuðningsmanna dr. Gunnars Thoroddsens sfð- ustu dagana. Kjörsókn I landinu var mjög mikil, eða 91,4% þeirra sem á kjörskrá voru greiddu atkvæöi, eins og fram kemur í töflu hér að neðan. Almennt hafði verið reiknað með því á sunnudag- inn, að mikil kjörsókn myndi auka sigurmðguleika dr. Gunn- ars, en reyndin var önnur. At- hygli vekur, hve jafnt fylgi dr. Kristján hefur, þó að hann hafi áberandi mest fylgi í Austur- landskjördæmi og í Norðuriands kjördæmi eystra. 1 öðrum kjör- dæmum er fylgi hans mjög jafnt, eða alls staðar yfir 60%, minnst þó í Reykjavík, þar sem hann hlaut 61% atkvæða. Á þessum tölum sést, að það sem haft var eftir forstöðumanni stuðningsmannaskrifstofu dr. Kristjáns hér í Reykjavík, í blað inu á laugardaginn, reyndust ekki neinar ýkjur, þvert á móti sýna tölur annað. Fróðlegt er að bera úrslitin saman við spár „spekinga" þeirra, sem komu fram í ríkis- útvarpinu á kosninganóttina, og er augljðst, að spá Þorsteins Thorarensens, rithöfundar, hef- ur verið byggð á mikilli glögg- skyggni hans, þó að hann gerði reyndar ekki ráð fyrir jafn miklum sigri dr. Kristjáns og raun varð á, en hver gerði það? KOSNINGA URSLITIN Allt landið Á kjörskrá: 113719. Atkvæði greiddu: 103909 eða 91,4%. Atkvæði féllu þannig: Dr. Kristján Eldjám: 67564 atkv. eða 65,0% greiddra gildra atkv. i Dr. Gunnar Thoroddsen: 35438 atkv. eða 34,1% greiddra gildra atkv. Reykjavík N-land eystra Á kjörskrá: 48469. Atkv. greiddu: 43834 eöa 90,4%. Ú r s 1 i t: Dr. Kristján Eldjárn: 26460 atkv. eða 61% greiddra atkv. Dr. Gunnar Thoroddsen: 16900 atkv. eða 39% greiddra atkv. Á kjörskrá voru 12160 Atkv. greiddu 11299 eða 92,9% Ú r s 1 i t: Dr. Kristján Eldjám 8528 atkv. eða 76% greiddra atkvæða Dr. Gunnar Thoroddsen 2398 atkv. eða 34% gr. atkvæða. Austurland Á kjörskrá vora 6288 Atkv. greiddu 5782 eða 92% Úrs lit: Dr. Kristján Eldjárn 4655 átkv. eða 80,9% Dr. Gunnar Thoroddsen 1099 atkv. eða 19,1%. Suðurland Á kjörskrá vora 9787 Atkv. greiddu 9058 eða 92,5% Úr slit: Dr. Kristján Eldjám 5820 atkv. eða 64,8% Dr. Gunnar Thoroddsen 3161 atkv. eða 35,2% gr. atkvæða. Reykjanes TALNING AT- KVÆÐA GEKK YFIRLEITT VEL — Viðast gott skipulag yfirkjörstjórna Á kjörskrá: 18462. Atkv. greiddu 16919 eða 91,6%. Úrslit: Dr. Kristján Eldjárn: 10876 atkv. eða 64,8%. Dr. Gunnar Thoroddsen: 5908 atkv. eða 35,2%. Vesturland Á kjörskrá: 7177. Atkv. greiddu 6668 eða 92,9%. Úrslit: dr. Kristján Eldjám 4455 atkv. eða 67,3 %. dr. Gunnar Thoroddsen 2168 atkv. eða 32,7%. Vestfirðir Á kjörskrá voru 5622. Atkv. greiddu 5118 eða 91,0%. Úrslit: Dr. Kristján Eldjám: 3284 atkv. eða 64,6%. Dr. Gunnar Thoroddsen: 1796 atkv. eða 35,4%. N-land vestra Á kjörskrá voru 5754. Aíkv. greiddu 5231 eöa 89,2%. Úr s I < t: Dr. Kristján Eldjám: 3486 atkv. eða 66,7%. greiddra atkv. Dr. Gunnar Thoroddsen: 1709 atkv. eða 32,7% greiddra atkv. Talning atkvæða við forseta- kosningarnar gekk yfirleitt vel og skjótt fyrir sig, enda höfðu flestar eða allar yfirkjörstjórnir gert ráðstafanir tii, að kjörkass- ar og önnur gögn kæmust sem fyrst til þess staðar, sem talið var á. Fyrstu tölur i kosningunum voru kunngerðar kl. 23:15 og voru þær úr Reykjavík. Þar hófst flókkun atkvæöa þegar kl. 18 á sunnudág, og talningu var lokið þar fvrir kl. 3 á mánudags morgun. Fyrstu tölur úr næsta kjördæmi, Reykjaneskjördæmi birtust eftir kl. í um nóttina, en talning í því kjördæmi hófst milli kl. 12 og 1 í Hafnarfirði. Talningu þar lauk um nóttina. Næsta kjördæmi, sem tölur fóru að berast úr, var Suður- landskjördæmi, en talning þar hófst milli kl. 5 og 6 á mánu- dagsmorgun. Gekk talningin þar vel fyrir sig, og síðan fóru töl- ur að berast úr hverju kjördæm- inu á fætur öðru, Vestfjarða- kjördæmi, Norðurlandskjör- dæmi-vestra og Vesturlandskjör dæmi, og reyndar líka Austur- landskjördæmi. Síðast kjördæm anna t!! að hefja talningu var Norðurlandskjördæmi eystra, en smávegis misskilningur milli yfirkjörstjórnarinnar í kjördæm inu, og kjörstjórnarinnar á Flat- ey kostaði margra klukkutíma seinkun á því að talning gæti hafizt. Síðustu úrslit, sem bár- ust úr kjördæmum voru úr Aust urlandskjördæmi og Norður- landskjördæmi eystra, og voru úrslit úr þeim kjördæmum kunn um kl. 4:15 um eftirmiðdaginn í gær, rúmlega 17 klukkustund um eftir að kjörstöðum hafði viðast verið lokað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.