Vísir - 27.08.1968, Blaðsíða 4
ÍIMII
wæmaj.
Maðurinn í fréttunum — Dubcek
/
stingur sér til sunds
Hver er maðurinn á myndinni,
sem stingur sér svo meistara-
lega vel af háum palli niður í
sundlaugina? Fólkiö á bakkanum
fylgist vel með. Myndin var tek-
in fyrir nokkru í Tékkóslóvakíu
þar sem hinn myndarlegi flokks-
foringi kommúnistaflokksins,
maðurinn í fréttunum að undan-
förnu, Alexander Dubcek, stund-
aði íþróttir.
Dubcek er nú 46 ára, en hefur
mikiö álit á íþróttum fyrir stjörn
málamenn og iðkar íþróttir enn
sjálfur, sér til mestu heilsubótar.
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem
Dubcek stakk sér svona myndar-
lega til sunds þarna i Santov
lauginni. Á árum áður var hann
frasgur fyrir að stinga sér ,af
handriðum brúa niöur i ólgandi
strauminn eða af þverhniptum
klettum i sjóinn. Var hann fræg
ur fyrir dirfsku sína á þeim ár-
um. Sennilega hefur þetta ekki
elzt af manninum, enda er hann
í dag álitinn einstaklega djarfur
í stjórnmálum.
..: ...
llllll
• •••••••••••••»•••••••••••••••••••••••••••#••••••
Grænlendingar lítt
hrifnir af bílnúmerum
'
Það virðist lítil ánægja ríkjandi
meðal bíleigenda á Grænlandi
vegna ákvörðunar dómsmálaráðu-
neytis Dana um að frá 20. ágúst
skyldu allir bílar í Grænlandi hafa
bílnúmer eins og víðast tíðkast.
1 Gootháb átti skráningu að
Ijúka 20. ágúst, en þá hafði að-
eins helmingur bílanna komið til
skráningar. Taldi lögreglan líklegt
að eigendurnir væru smeykir um
að bílarnir færu ekki f gegnum
skoðunina og mættu þess vegna
ekki.
Eftir 1. október verður ólöglegt
að aka án númers í Grænlandi.
Númersplötumar eru líkar því
sem notað er í suðurhéruðum
Danmerkur, en bókstafurinn fyrir
allt landið er G.
••••••••••••••••••■••••••■■•■•••••••• •••••••••<
Lægstlaunaði
krónprins í heimi
Haraldur krónprins er lægst-
launaði ríkisarfi f veröldinni.
Hann fær ekki nema eitthvað um
rúma rnilljón ísl., kr. 1 árslaun.
En nú mun launahækkun standa
fyrir dyrum hjá honum. Norska
stjórnin hefur séð fram á, að
prinsin.i getur ekki gift sig, stofn
að heimili, og haldið sig eins og
búizt er við af konunglegri per-
sónu fyrir þessi laun.
Han. mun þó varia fá eins
mikið og frænka hans, Margrét
prinsessa í Danmörku, sem fær
um sjö og fiálfa milljón á ári, þvi
þá f'eri Haraldur að náigast launa
flokk fööur síns, sem er lægst
launaði konungur í heimi með um
fimmtán milljónir í árstekjur,
Danakóngur fær um fjörutíu millj-
ónir á ári.
Norska stjómin hefur ákveðið
að bera launahækkunina upp fyr
ir þingið ásamt fjárlagafrumvarp-
1 'ífifiVMl.í)
inu. Ekki er gert ráð fyrir, að
hækkunin nemi stórupphæð.
Haraldur og Sonja munu eins
og kunnugt er ganga í hjónaband
29. þessa mánaðar.
B'
.
Velgengni og
hagræðing.
í blööunum var sagt frá því,
að 25. ágúst væru 20 ár frá
fyrsta farþegaflugi Loftleiða tll
Bandaríkjanna. Gleðilegur á-
fangi að minnast, þegar um er
að ræða glæsilega athafnasögu.
En þróun flugsins á íslandi er
óneitanlega með því glæsileg-
asta í þróun atvinnumála hinna
siðustu áratuga.
Þrátt fyrir tilkomu stórkost-
legra tækniiegra nýjunga til
dæmis i sjávarútvegi og fisk-
iðnaði, þá eru aðstandendur
þeirra atvinnugreina ólikt aumk
unarverðar á sig komnir, heldur
en aðstandendur utanlandsflugs-
ins. Flugið hefur vaxið risaskref
um á farsælan hátt, svo að
stundum hefur það sætt undrun
hversu mikið hefur fengizt áork-
að í harðri keppni við risavaxna
og óvæga keppinauta.
Velgengnin í flugmálun(i sýnir
að bar er haldið á málum af
í þjóöarbúið. Þessar tvær grein-
ar eru þó náskyldar, flugið og
sigllngamar. Hvers vegna drag-
ast siglingamar svona afturúr
sem atvinnugrein á sama tima
efalaust meiri hagræðingu og að-
lögun vegna nýrri tima, svo að
okkar skipafélög standast ekki
snúning hörðum keppinautum.
Fýrir stuttu kom hingað til
Göút
festu og framsýni. En hvers
vegna hafa málin ekki þróazt
á sama hátt í ýmsum öðrum at-
vinnugreinum, eins og til dæmis
í farmennsku og siglingum, en i
þeirri grein eru Norðmenn
frændur vorir stórveldi, sem fær
ir þeim oft á tiðum drjúgan auð
og flugið blómstrar. Öllum er
kunnugt, að farskipunum hefur
fækkað, þvf þau hafa veriö seid
úr landi en ný skip hafa ekki
fyllt í skörðin.
Kannski eru orsaklrnar marg
ar, sem kenna má ófarimar í
þessari atvinnugrein. Það vantar
landsins 1000 tonna flutninga-
skip danskt, sen. sagt var að
aðeins hefði fjögurra manna á-
höfn. Slfk var sjálfvirknln um
borð, að slíkt átti að vera ó-
möpulegt, án þess að slakað
væri að nokkru á kröfunum um
öryggi. Svo fámenn áhöfn á Is-
ienzku farskipi hefði ekki verið
leyfileg samkvæmt okkar lögum
og samningum við sjómannafé-
lög. Þetta er gott dæmi um
hvernig stettarfélög geta tekiö
þátt í að „drepa“ atvinnugrein-
ar með taumlausum kröfum,
— en kröfur um mikið manna-
hald á islenzkum skipum
eru taldar vera ein af mörg-
um orsökum fyrir deyfð i
fslenzkum siglingum, sem gerir
það að verkum að íslendingar
eru ekki samkeppnisfærir á hin
um sv" kaliaða heimsmarkaði.
Atvinnugreinin hreinlega dregst
saman, en því er ekki mótmælt
af stéttafélögunum!
Það væri æskileíjt að hægt
væri að minnast ánægjulegra á-
fanga í fleiri greinum en í utan-
landsflugi jL.oftleiða.
Þrándur f Götu.