Vísir - 10.09.1968, Side 5

Vísir - 10.09.1968, Side 5
5 V í SIR . Þriðjudagur 10. september 1968. gsg»gs«æs’iiiwr' mmammmmmammmmmmmmm SÝRÐAR ASÍUR. Asíurnar eru flysjaðar, skorn- ar eftir endilöngu og kjaminn tekinn úr. Skomar í stórar sneiðar. Ef sneiðarnar eru mjög harðar er heitu vatni hellt yfir þær. Nuddaðar með' salti og geymdar til næsta dags. Settar í gatasigti svo að lögurinn renni vel af þeim. Sneiðunum raðað í hreina glerkrukku. EDIKSLÖGUR. Edikið er soðið, hellt á asíurn ar, þurrka lögð yfir krukkuna og geymt á köldum stað í 2 sól- arhringa. Þá er edikinu hellt af, soðið aftur og hellt heitu yfir asíurnar, og geymt aftur í 2 sól- arhringa. Þá er edikið mælt og því fleygt. Jafnmikið nýtt edik er nú tekið. og í hvern lítra af ediki er nú sett sykur, laukur, sólselja og kryddpokinn, sem þannig er útbúinn: Allt kryddið er látið í stóran, tvöfaldan, ferkantaðan gasklút eða fleiri klúta séu krukkurnar. margar. Klúturinn er áður soð- inn, ásamt spottanum, sem hann er hnýttur saman meö. Bezt er að klúturinn sé svo stór að hann hylji yfirborð krukkunnar, sem asíurnar eru geymdar í. Þaö er ágæt vörn gegn bakteríum. Edikslögurinn er nú soðinn . með kryddpokanum, laukur og sólselja tekin upp úr og sett nið- ur f krukkuna á milli asíusneið- anna. Séu asíusneiöarnar harðar og ekki glærar er ediksleginum hellt sjóðandi yfir. Annars er hann kældur, séu sneiðarnar orðnar mjúkar og glærar. Krydd pokinn er svo lagður ofan á krukkuna. Gæta verður þess að lögurinn fljóti yfir asíumar. Línþurrka er lögð yfir krukk- una, þangaö til kalt er orðið í henni. Bundið yfir. Það er ekki nauðsynlegt að nota allar þær tegundir af kryddi, sem hér eru nefndar en einnig má nota meira krydd ef asíumar eiga að vera sterkar. SÝRÐAR GÚRKUR. Aðeins óskemmdar og góðar gúrkur eru nothæfar til geymslu, Gúrkurnar þvegnar og þerraðar. Séu þær smáar, erþeim sem snöggvast drepið niöur i heitt vatn síðan lagöar á lín- þurrku. Séu þær stórar og harð ar eru þær soðnar i 2-3 mínútur. Gúrkurnar eru að öðru leyti sýrðar eins og asíur, nema þær eru lagðar í saltpækil, sem bú- inn er til úr 1 lítra vatns og 150 gr. af salti. Þaö er soðið saman og kælt og hellt yfir gúrk urnar, geymdar í pæklinum 12- 14 klst. Pækillinn látinn síga af þeim, áður en þær eru sýrðar. BLÁBERJATERTA. 150 gr. smjör 200 gr. hveiti 100 gr. sykur og einn rjómaostur er hrærður með einni eggjarauðu, geymiö í 1 klst. Stráið sykri yfir blá- berin, sem hafa verið hreinsuð og þurrkuð vel. Smyrjið mót og setjið 1 það % hluta deigsins. Bláberin lögð ofan á. Afgang- inn af deiginu rúllið þið upp í stengur sem em lagðar eins og rimlar í hjóli yfir bláberin. Tert an er pensluð með eggjarauðu. Bökuð við 200 gráður í ca. 25 mín. RABARBARAÁBÆTIR. Vt 1. súrmjólk 1 dl. þeyttur rjómi 1 glas koníak 25 g sykur 250 gr. rabarbarasulta (án safa) Blandið koníakinu saman við KRYDDLÖGUR. 1 1 edik V2 kg. sykur 80—110 gr. hveiti 1 msk. karrý 1 msk. sinnep Vi tsk. steyttur pipar 1 msk. rotvarnarefni Skiptið blómkálinu í hríslur og skerið grænmetið f fallega bita og leggiö það f saltpækil (150 gr. af salti fyrir hvern lítra vatn) í sólarhring. Takið þaö upp úr pæklinum og snöggsjóð- iö í vatni. Blandið því síðan sam an við krvddlög, sem búinn er til á eftirfarandi hátt: Sjóðið saman edik og sykur. 10. síðu. — nokkrar uppskriftir Bláberjaterta og grænmeti í súr W"ú er einmitt timinn til þess fyrir húsmæður að sjóða nið ur, frysta og koma í súr eða þurrka ýmis ber og grænmeti, sem nú er á boðstólum. Viö bendum á sólseljuna, sem hefur fengizt f búðum, sem afbragðs- viðbót í pottinn, þegar kjöt og fiskur er soöinn því að sólselj- an gefur mjög góðan keim með þessum mat. Einnig er ekki úr vegi meðan þessi kryddjurt fæst að fá knippi af henni og geymá. Þá eru það asíumar, sem fást hér í verzlunum og gúrkur, sem eru sumum nær ómissandi með steikinni, sýrðar. Einnig er pickles vinsæll og gafum við uppskriftir aö því hvemig á að sýra þetta grænmeti hér á eftir. Einnig uppskrift að bláberja- köku í tilefni berjatímans, og uppskrift að rabarbaraábæti. Við byrjum á bláberjatert- unni, því langt er síðan við höf- um komið með kökuuppskrift á siðunni: sultuna og setjið í súrmjölk- ina. Þeytið sykurinn saman við rjómann og sétjið saman við sultuna og súrmjólkina. Látiö ábætinn í skálar, sem geýmdar eru á vel köldum stað þar til borða á ábætinn. Skreyta má með jaröarberjum, sem eru skor in í helminga og berið ískex með. PICKLES. gúrkur laukar grænir tómatar gulrætur blómkál samtals 1 kíló DÖMUR LAGNINGAR — PERMANENT — KLIPPINGAR — HÁRLITUN — LOKKAGREIÐSLUR VALHÖLL Laugavegi 25 . Sími 14662 VALHÖLL Kjörgarði . Sími 19216 LAUST STARF Bæjarskrifstofurnar í Kópavogi óska að ráða símastúlku strax. Vélritunarkunnátta nauð- synleg. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist undirrituðum fyrir 15. þ.m. 9. september 1968. BÆJARSTJÓRINN f KÓPAVOGI SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS Orbsending til áskrifenda Sala áskriftarskírteina er þegar hafin. Áskrifendur eiga forkaupsrétt að aðgöngumiðum til 16. september. Endurnýjun óskast tilkynnt nú þegar. Sala fer fram í Ríkisútvarpinu, Skúlagötu 4, 4. hæð - sími 22260. Fyrstu áskriftartónleikar verða 26. september. Kranastjóri Reglusamur og stundvís maður óskar eftir kranastjóra- starfi í lengri eða skemmri tíma. - Til. sendist augl.d. Vísis fyrir 15. þ. m. merkt „Reglusamur - 977“. NORR€NA HÖSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS Hand- og listiðn- aðarsýningin er opin alla virka daga frá kl. 17 til 22. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 14 til 22. Athugið! Aðeins stuittur tími eftir! Ný norræn dagblöð liggja frammi í kafíistofunni.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.