Vísir - 18.09.1968, Side 1

Vísir - 18.09.1968, Side 1
— Hébinn fann þar átta vaBandi torfur i morgun — M'órg skip á /e/'ð jbangaá Síldveiðiskipið Héðinn fann klukkan sex í morgun átta vaðandi síldartorfur 260—270 mílur NA af Langa- nesi, eða helmingi nær landi en veiðisvæðið hefur verið síðustu daga. — Það þykja orðið stórmerki að sjá vað- andi síld. — Margur hefur farið á síld síðustu sumur án þess að sjá svo mikið sem eina torfu vaða. Héðinn var á leið í land af | fermi og rakst þá á vaðandi torf- síldarmiðunum með nær full-1 ur á stað um 68° 52’ N. br. og um 5° vesturlengdar, eða á þriðja hundrað mflum sunnar og vestar en síldarveiðisvæðið. — Kastaði hann þar á eina torfuna, en missti mestan hluta hennar. Náði skipið samt 40 tunnum úr torfunni. Skipstjórinn sagði, að þarna hefði verið um stóra torfu að ræða — og hefðu líklega ver- ið í henni um 150 tonn. — Sfldin var stór og falleg. Mörg skip eru nú á leið á þetta svæði og verða komin þangað í kvöld. Þessar fréttir hafa vakið mikiö umtal og fögnuð á Austfjöirðum og Brutust inn í 5 fyrirtæki í sama húsi sömu nóttina Höfðu litið sem ekkert upp úr krafsinu ■ 1 nótt var brotizt inn í rit- stjómarskrifstofur Vísis og fjög- ur önnur fyrirtæki í sama hús- inu, Laugavegi 178, en nokkur herðatré, eitt útvarpstæki, ein þjöl og járnklippur virðist vera það eina, sem þjófarnir báru úr býtum. Mikla fyrirhöfn hafa þjófamir lagt á sig í leit að peningum og lausafé. Stungið eða brotið upp nokkrar hurðir og tekið glerrúð- ur úr öðrum — enda skal mikið til mikils vinna — en árangurinn hefur verið þeim fátæklegur. Þegar ■ eigendur og starfsfólk mætti til vinnu sinnar í morgun, gaf að líta lögreglumenn að störfum í leit að einhverju því, sern leitt gæti þá á slóð þjófanna. Varð mönnum bilt við, sem vissu af dýrmætum tækjum og öðrum munum í húsinu, sem gráöugar hendur þjófa gætu spillt, ef hrófluðu þær við þeim. Þegar betur var að gáð létti mönn um aftur, þvf þjófarnir höfðu ver- ið tiltölulega tillitssamir f um- gengni og skemmt lítið. — Rúður höfðu þeir tekiö heilar úr hurðum, en ekki brotið, og dregið skúffur úr skrifborðum á venjulegan hátt, en ekki með rofjámi. Þjóifarnir höfðu lagt leið sina inn , á skrifstofur Landmælinga og stoliö þaðan einu útvarpstæki, en látið óhreyfð Ijósmyndatæki, filmur og kort, sem þar eru geymd og eru tuga milljóna virði. Rótað haföi verið í hillum og skúffum í skrif- | stofum Rolfs Jóhansens, stórkaup- manns, en í fljótu bragði virtist i engu verðmæti hafa verið stoliö. Stór peningaskápur hafði verið færður til, en þjófarnir hafa misst 1 áhugann fyrir honum aftur. Þá hafði verið farið inn í við- tækjaverkstæði Eggerts Benónýs- j sonar, en engu stolið nema þjöl og jámklippum, og engu höfðu þjóf- ! amir stolið í heildverzluninni Kötlu. ■ Allar líkur benda til þess, að þjófarnir hafi klifrað upp vinnu- pall á bakhlið byggingarinnar og . farið inn um dyr á þaki hússins. i Á ýmsan hátt hafa þeir borið sig svipað aö og þjófarnir, sem brutust ! inn í Híbýlaprýði í Hallamúla um 1 síðustu helgi. ríkir mikil bjartsýni í síldarbæjun- um. Ef eitthvað veröur af veiði þarna má búast við að síldarsölt- unarstöðvarnar fyllist af lífi næstu dagana því að skipin geta siglt meö síldina óvarða af þessum slóðum til söltunar I landi. Þetta er aðeins sólarhrings stím frá Austfjarðáhöfn um. Saltendur eru nú margir í fólksleit og má búast viö að fólk streymi austur á firði næstu daga í sfldarvinnsluna. Allmargir bátar eru nú á landleið með ísvarða síld. Óskar Halldórs- son átti að koma til Seyðisfjarðar í dag. Magnús og Helgi Flóventsson voru væntanlegir með ísaöa sfld til Neskaupstaöar og fleiri skip voru á landleið með góðan afla. Veiöi var ekki sérlega góð síð- asta sólarhring á miðunum vestur af Jan Mayen, aðeins á 8. hundrað tonn. Síldargangan þar norður frá hefur þá þokazt vestur undir þriðja lengdarbaug, A. I. — En nú vona 'menn aö allmikið af síldargöngunni sé komið sunnar og vestar, eins og þessi óvænti síldarfundur í morgun bendir til. Þarr.a virðast þjófamir hafa klifraö pnn á hak. 58. árg. - MiSvikudagur 18. - 209. tbl. Fjöliðjan á ísafirði kærð til saksóknara Fjöliöjan h.f. á ísafirði framleiðir ( aðilum, sem segjast hafa borið svonefnt Secure-einangrunargler. skarðan hlut frú borði í viöskiptum Hefur hún selt það víöa um land. við glerverksmiðju þessa. Bæjar- Blaðið hefur haft spumir af ýmsum i >>-> 10. síöa. Verzlanirnar á Seyðisfirði á hausnum til skiptis — Gjaldþrot hjá Dvergasteini ■ Verzlunarvandræði Seyð- firðinga ætja ekki að verða endaslepp. Önnur aðalverzlun staðarins, Dvergasteinn, er nú gjaldþrota og var henni lokað fyrir helgina með fó- getavaldi. Skemmst er að minnast þess, að Kaupfélagið þar á staðnum „fór á hausinn“ í fyrra, en það hefur verið opn- að aftur fyrir allnokkru - sem útibú frá Kaupfélagi Hér aðsbúa. — Er það nú eina matvöruverzlunin á Seyðis- firði. Dvergasteinn er nýleg verzlun og var í splunkunýju húsnæði. Hún hefur starfað öll þessi góð- æri og búiö við síldargróða, en samt hafa skuldirnar vaxið um- fram eignir. Verzlunin mun eiga talsvert útistandandi í vöruút- tekt, einkum til báta og útgerða og hafa slík vörulán gert nokk- urt strik f reikninginn. Seyðfirðingar mega nú kaupa alla matvöru í Kaupfélaginu sem þeir urðu að kaupa í Dverga- steini á meöan Kaupfélagið var gert upp í fyrra. Skiptafundur í máli Dverga- steins mun fara fram á mánu- dag. Vaðandi síU260 mílur útdf Austfjörðum íslenzk fegurð slær í gegn í New York ■ Islenzk ættuð stúlka að nafni Nína Sigga tók fyrir skömmu þátt f fegurðarsam- keppni táninga í New York. Það er ekki að sökum að spyrja, þegar íslenzk stúlka tekur þátt f fegurðarsam- keppni. Nína Sigga lenti í öðru sæti af 80 þátttakend- um. Móðir hennar er Ásta Jó- hannesdóttir og er úr Reykja- vík. Nína er 15 ára og starf- ar í New York við tízkusýn- ingar og vekur alls staðar mikla athygli. Hún býr þar á- samt foreldrum sínum og er heimili þeirra mjög íslenzkt og er þar einnig mjög gest- kvæmt af íslendingum, sem dvelja í New York. Rannsóknarlögreglumennirnir Sævar Jóhannesson t.v. og Gfsli Guðmundsson t. h., rannsaka verksummerkin eftir þjófana í nótt

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.