Vísir - 18.09.1968, Page 2

Vísir - 18.09.1968, Page 2
2 V Í SI-R . Miðvikudagur 18. september 1968. „MARTRÖÐ" BENFICA ENDURTEKIN í GÆR - VERÐUR ÞAÐ VALSMARTRÖÐ í KVÖLD? • EUSEBIO, stjarna Benfica- liðsins flýtti sér út úr Leifs- búð í gærkvöldi, þegar Siguröur Sigurösson fór að sýna sjón- varpsáhorfendum framlenging- una í úrslitaleiknum viö Man- chester United í síðustu Evrópu- bikarkeppni. Þá skoruðu Man- chester-menn 3 ,mörk á stuttum tíma og unnu leikinn 4—1. Eusebio og félagar höfðu fengið Leifsbúð fyrir sig og horfðu á sjónvarp, liggjandi á gólfinu. Stjörnunni fylgdu hlátrasköll félaganna, sem sátu eftir og fóru aftur í gegnum „martröö- ina“ frá Wembley. • ... og í kvöld? Hvaö gerist í kvöld? Verður það martröö fyrir Valsliðið, sem í gær horfði á agndofa, meðan Benfica-menn léku sér á æfing- unni á Valsvellinum í gær. Ekki þarf það að vera og látum við ósagt um hvemig leikurinn muni fara. Hitt er víst, að Vals- menn hafa allt að vinna, — engu að tapa, — nema fyrsta Evrópubikarleiknum á heima- velli. Eusebio kom til Reykjavíkur um miðjan dag i gær. Hópur ungra pilta var mættur að venju við Loftleiðahótelið og líklega hefur aldrei verið eins líflegt v<ð hótelið frá því það opnaði. Lögreglan varð að veita vernd sína, og móttökustjórinn og menn hans höföu nóg aö gera að „hreinsa til“ í forsalnum öðru hverju. Eusebio talaði við blaðamenn skömmu eftir komu slna og verður þaö ekki rakiö nánar hér, enda kom flest af því og meira til fram í viðtali við hann s.l. mánudag hér í blaðinu. Klukkan um 5 fóru Benfica- menn til æfingarinnar á Vals- velli. Geysilegt fjölmenni hafði safnazt saman á vellinum til að fylgjast með æfingunni. Aldrei hafa svo margir komið til aö horfa á æfingu liðs, — og menn urðu ekki fyrir vonbrigðum. „Þaö hefði alveg eins mátt borga sig inn á þetta eins og einhvern 1. deildarleikinn", heyrði ég gamlan* vallargest segja. Líkari jazzballettflokki en knattspyrnuliði voru leikmenn- imir, þegar þeir dönsuðu I full- komnum takti eftir fyrirsögn þjálfarans í uppmýkingaræfing- unum. Þetta voru aö vísu sömu æfingarnar og íslenzkir knatt- spyrnumenn nota, en i meðför- um Portúgalanna urðu þær allar aðrar, hreyfingin meiri og hraö- ari. í hópi áhorfendanna, sem vart hafa verið færri en 1500 voru leikmenn Vals, sem keppa við þetta fræga lið í kvöld. Valsmenn héldu uppi góöa skapinu og þjálfarinn þeirra, Óli B. Jónsson gerði að gamni sínu: „Við erum ekki búnir að tapa enn, auðvitað vinnum fffÍIMji Það var skemmtilegur leikur, sem fylgdi æfingunum. Þar var í rauninni barizt, þótt návígi væru ekki leyfð. Og leikmenn áttu það til að þrátta um rang- stöður og fleira, en þjálfarinn, lágur maður og þykkvaxinn geröi grin að öllu saman. Að vísu var lítið mark á öllu þessu takandi, en þarna fengu menn þó aö sjá nokkuö sem heitir knattmeðferð og er ákaflega lítt þekkt fyrirbæri í knattspym- unni okkar, því er nú verr og miður. Þotukeppni Flugfélags íslands i golfi fór fram um síðustu helgi. Leiknar' voru 36 hoiur og voru þátttakendur alls 78. Veöur var hið bezta meðan á keppninni stóö og var hún mjög vel skipulögí-. Leikið var á laugardag og sunnu- dag og voru leiknar 18 holur hvorn dag. Keppt var með og án forgjafar og vakti það nokkra athygli, að Suöumesjamelstari Þorbjöm Kjær- bo varð að sætta sig við annað sætið. Annars uröu úrslit sem hér segln Án forgjafar: 1. Pétur Björnsson 167 högg. 2. Þorbjörn Kjærbo 167 högg. 3. Hólmgeir Guðmundss. 167 högg. Orslitin fengust eftir aukakeppni milli þeirra þriggja. . | Með forgjöf: i 1. Geir Odddsson, 129 högg nettó. 2. -3. Þorsteinn Pétursson 135 1 högg nettó. ■2-—3. Jóhann Nielsson 135 högg nettó. Þeir Þorsteinn og Jóhann þurfa I aö leika til úrslita um annaö sætið. AÐ LOKUM: Benficamenn láta vel yfir sér á Hótel Loftleið- um. Að vísu hefur ásóknin veriö gífurleg. Þeir hafa ekki gert eins og við sögöum í gær, borðað neitt sérstakt fæði eða haft sérstakan matsal. Þeir hafa einmitt borðað eins og hestar og notið alls þess góða matar, sem hótel á borð við Loftleiðir bjóða. 1 gær skoöuðu þeir sig um, fóru að Þingvöllum og til Hverageröis. Grýta vildi ekki gjósa fyrir þá i gær, — Valsmenn hafa því tækifæri til að sýna þeim íslenzkt gos i kvöld, — gjörið þiö svo veL — jbp — Pétur Björnsson sigraði í Þotu- keppninni í golfi — Fjölmennasta golfmót sem fram hefur fariö EUSEBIO á blaðamannafundi £ gærdag skömmu eftir komuna. Hann er með einhvem dýrasta knattspymuskó sem til er, gullhúðaðan skó, sem honum var afhentur í fyrrakvöld í hófi í IParis. Blaðið L’Equipe sæmdi hann skón um í tilefni af því að hann skoraði flest mörk í deildakeppnum Evrópu, — samtals 44 mörk. (Ljósmynd: Lennart Carlén). Mvar á ai leggja bílnum? í dag er útlit fyrir bezta fáan-1 legt haustveður í Reykjavík, — og í Laugardal verða áhorfendur líklega fleiri en nokkru sinni fyrr. Búið er aö selja meira en 10 þús. miða fyrirfram og liklega má bú- ast viö mikilli fyrirframsölu miða í dag. Vandamál númer eitt í sam- bandi við leikinn, þegar vandamál þeirra ellefu, sem berjast fyrir Vals hönd er ekki haft með í reikn- ingnum: Bílastæðin! Baldur Jónsson, vallarstjóri, tjáði Vísi í gær að rétt væri að benda mönnum á bílastæðin við nýju sundlaugarnar, einkum ef menn hafa þegar keypt miöa. Það- an er hægt að ganga að hliði, sem opnað verður að norðanverðu, en engin aðgöngumiðasala er þar. Þá eru bílastæði við íþróttahöllina, og ættu menn að notfæra sér þau. Við bendum svo á það frá eigin brjósti, að skynsamlegast er lík- lega að leggja bílum i talsverðri ■ fjarlægð frá leikvellinum þvi að dá- , lítil gönguferð skaðar engan, og öruggt má telja að við leikvanginn verði talsvert „kaos“, þrátt fyrir að lögregla geri miklar ráðstafanir, enda má búast við að vallargestir komi akandi á nokkrum þúsundum bíla, vart færri en 2000, og það kostar alltaf nokkum tima að veita slíkum umferðarþunga burtu frá einum litlum bletti. — jbp — \ TCfmssa st T^aaa eeks I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.