Vísir


Vísir - 18.09.1968, Qupperneq 3

Vísir - 18.09.1968, Qupperneq 3
% '4 WMil MYNDSJ 't' '"L y. : Munið bókakynningu AB í Eymundssonarkjalluranum Kynnið ykkur kostakjör AB Almenna Bókafélagið Austurstræti 18. Símar 19707 — 18880 VIS IR . Miðvikudagur 18. september 1968. SIINDIN BLÁ Tjað er gaman að standa £ fjöruborðinu og horfa á öldurnar skolast til og frá, heyra niðin'n og gjálfrið, finna seltuna í lofti og njóta þeirrar stemmn- ingar, sem hvergi þekkist nema við hafið. Það þætti engum mikiö núna í miðjum septembermánuði, þótt sumarblíöan færi að hopa fyrir umhleypingum haustsins. En það er ööru nær. Sjaldan £ sumar hefur veðrið verið betra. Það er eins og laufið hafi hætt við að falla af trjánum og grænk að á ný. Við Elliöaárvog fyrir neðan bækistöðrar Esso hafa nokkur gömul sklþ verið dregin á land. Sum þeirra verða varla sett á sjó framar. Við önnur er veriö að vinna og hamarshögg óma langar leiðir £ kyrröinni. Skammt frá liggur sögufræg- ly bátur, hálfur á landi, hálfur í sjó. Ljótur er hann útlits, en þó var hann um skeið ein girni- legust fasteign hérlendis. Það var þegar nokkrir framtakssam- ir menn ætluðu að aðstoða rfkið við áfepgisinnflutning, sigldu suður um höf og færðu heim sökkhlaðið skip meö séniver og aðrar veigar, sem þeir síðan geymdu f þessum fráhrindandi bátskrokk £ Elliðaárvogi. Fjaran þarna er eins og aðrar fjörur með það, aö hægt er að finna óþrjótandi hluti til að festa hugann við. Ryðgaður nagli getur tekið á sig alls kon- ar kynleg form og gömul og lúin UneMunktell bátavél verð- ur með tímanum forkostulegur skúlptúr. í fjörunni er líka tals» vert af veðruðum og upplituðum mjólkurhyrnum, sem sannar- lega stinga £ stúf við umhverfið. í Sundahöfninni nýju er ekk- ert skip inni. Úti á bryggju- sporðinum standa tveir strákar meö veiðistöng. Þeir veita engu athygli nema veiöiskapnum. Þar er áhuginn óskiptur. Þeir segja, aö aflinn sé tregur. „Hann er svo djúpt, þvi að þaö er svo mikiö sólskin og hiti“, segja þeir. „Á, er það verra?“ spyrjum við, og þeir hrista hausinn yfir heimskunni. Þaö upplýsist, að drengirnir heita Stefán Ingi Þórhallsson og Jón Sigurðsson, og eru báöir forhertir veiði- menn. Faðir annars þeirra er i veiðiferð fyrir norðan, svo að þeim hefur dottið f hug að skjóta honum ref fyrir rass, og verða á undan að draga björg i bú. Jón stendur frammi á bryggj- unni -með stöngina, og Stefán Ingi horfir spekingslegur á. Jón kastar önglinum langt út og byrjar að snúa hjólinu fullur eftirvæntingar — og upp kemur öngullinn einn og ber, ekkiæinu sinni gamalt stígvél á honum. En veiðimennimir hafa næga þolinmæði, svo að við yfirgefum þá £ sólskininu i þeirri von að þorskarnir fáist til að opna munninn. í kili skal kjörviður. í upphafi hefur eflaust verið valinn viður í þessum skipum, en tíminn og særótið hafa gert hann feyskinn. Þessir tveir ungu menn heita Stefán Ingi Þórhallsson og Jón Þessi bátur getur varla talizt augnayndi, en margir bölvuðu sjálfum sér fyrir að hafa ekíd Sigurðsson og fóru til fiskveiða við Sundahöfn. Aflinn var sýnt honum meiri áhuga, þegar í ljós kom, að hann var fullur með séniver og göfgar veig- tregur, en ekki dró það úr áhuganum. ar. /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.