Vísir - 18.09.1968, Side 10
10
wémdk
V í SIR . Miðvikudagur 18. september 1968.
ESFT"1 T'5K.:-ts)y. a™ga»j.)MM»»iiimmi
Fjöliðjan —
w>—> i >iðu y
fógetinn á ísafiröi tjáði blaðinu í
morgun, að hann hefði heyrt, aö
elnhverjir kaupmenn þar í bæ
SKH’AFRÉTTin
Shll'AUUitMÖ KlhlSINS
M.s. Blikur
fer vestur um land í hringferö
26. þ.m. Vörumóttaka fimmtudag,
föstudag, mánudag og þriðjudag til
Patreksfjarðar, Tálknafjarðar, Bíldu
dals, Þingeyrar, Flateyrar, Suður
eyrar, Bolungavíkur, ísafjarðar,
Norðurfjarðar, Siglufjarðar, Ak-
ureyrar, Húsavíkur, Kópaskers,
Raufarhafnar, Þórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnafjaröar, Norðfjarðar,
Eskifjarðar, Reyöarfjaröar, Fá-
skrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og
Breiðdalsvíkur.
IVIs. HergéSfur
fer til Vestmannaeyja, Hornafjarð-
ar og Djúpavogs 26. þ.m. — Vöru-
móttaka fimmtud., föstud, mánud.
og þriðjudag.
M.s. Baðdur
fer til Snæfellsness- og Breiðafjarö-
arhafna í dag.
hefðu kært verksmiðjuna til sak-
sóknara.
Á síðastliðnu ári vann maður
nokkur hér í Reykjavík að bygg-
ingu eigin húss. Honum var þá
boöið gler með hagstæðu verði, og
var það pantaö frá Fjöiiðjunni.
Hann segir svo frá, að hluti glers-
ins hefði átt að koma f desember
s.l. og afgangurinn í janúar. Sam-
þykkti hann tvo víxla til greiösl-
unnar um 13 þúsund krónur hvorn.
Nú leið langur tími. I apríl barst
honum fyrsta sendingin, og var
sumt brotiö. Aðra sendingu fékk
hann aldrei. Hann geröi verksmiöj-
unni það tilboð aö greiða þann
hluta glersins, sem hann hefði
fengið, en því var hafnaö. Nú ný-
lega fékk hann rukkun frá útibúi
Landsbankans á ísafirði, þar sem
honum var gert að greiða nær 32
þúsund krónur, en útibúið hafði
keypt víxilinn. Svo virðist, sem maö
urinn verði aö greiða þessa fjár-
hæð, þótt hann telji sig hafa verið
hlunnfarinn í viöskiptunum.
NEW YORK: Lyndon Johnson
Bandaríkjaforseti skoraði í gær á
kjósendur í Texas að styðja
Humphrey heilhuga og bar á hann
hið mesta lof.
Argonsuðumaður
óskast. — Löng vinna.
Uppl. í SINDRA, skrifstofunni, Hverfisg. 42.
RANNSÓKNARSTÚLKA
ÓSKAST
í Heilsuhæli Náttúrulækningafélags íslands
í Hveragerði. Umsóknir sendist yfirlækninum
sem veitir upplýsingar um starfið.
Jfs £
^^ÐISFVP^
VINNINGAR
MERCEDES BENZ 220
ÁRGERÐ
1969
VERÐMÆTI
KR.: 854.000,00
VERÐ KR.: 100
DREGIÐ 5. NÓVEMBER 1968
V.R. fundur —
—> 16 siöu
er að gefa áhugafólki tækifæri til
þess að brjóta til mergjar þann
vanda í íslenzku þjóðfélagi, sem
kynni að hafa skapazt vegna á-
hrifaleysis yngri kynslóðarinnar á
gang þjóömála.
Ungt fólk í iðnaði, sjávarútvegi,
verzlun, landbúnaði, flugi, sigling-
um o. s. frv., sem er að hefja sitt
lífsstarf í atvinnulífi þjóöarinnar
á mikið í húfi, aö á íslandi sé rek-
in heilbrigö stjómmálastarfsemi af
traustum stjórnmálamönnum, þar
sem staða atvinnuveganria og þýð
ing er rétt metin og eðlileg uppbygg
ing þeirra tryggð. Vegna framtíðar
sinnar og þjóöarinnar verður það
að vera virkur þátttakandi, sagði
Guömundur Garðarsson að lokum.
Óúuægður —
m—> 9 slöu
— Hótel Saga hefur e. t. v.
áhuga á að reka næturklúbb í
húsakynnum sínum eins og
mörg stór hótel gera?
„Nei, ég hef ekki áhuga á að
reka slíka stofnun innan hótels-
ins að svo komnu máli. Hér
þarf margt að gera áður. Hins
vegar er ég ekki í nokkrúm
vafa um, aö næturklúbbur á rétt
á sér í Reykjavík. Hann mundi
e. t. v. verða til þess að draga
úr þessu hvimleiða „partí“-
standi á fólki fram eftir öllum
nóttum í heimahúsum. Það hafa
sagt mér lögreglumenn, að eftir
að rýmkað var um lokunartíma
vfnveitingastaðanna, þ. e. opið
til kl. 1 á föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöldum,
hafi stórminnkað kvaðningar í
heimahús veg*a ölvunar."
— Hér eru ekki greiddir
drykkjupeningar. Hvað finnst út
lendingum um það?
„Það finnst þeim yfirleitt öll-
um stórkostlegt, og þaö án til-
lits til hvort þeir eru efnaðir
eða ekki. Og varðandi þjónust-
una, þá held ég að þeir fái ná-
kvæmlega jafngóða eða jafn-
slæma þjónustu, hvort sem þeir
hafa borgað drykkjupening eða
ekki.“
— Konráö, geturöu sagt mér
aö lokum, hvað er hægt að gera
til að (halda uppi þeim „stand-
ard“, Sem Hótel Saga hefur þeg-
ar náð?
„Það er hægt með því einu að
hafa gott starfsfólk og vera ó-
ánægðu, frá morgni til kvölds,
sígagnrýnandi og finnandi að.
Þannig heldur maður uppi þeim
,,standard“, sem fyrir er,“ sagöi
Konráð Guðmundsson hótel-
stjóri að lokum.
- jbp-
Þjóðbúningar —
> 16 slöu
kynningar væri þörf á þeirri
hefð, sem við ættum fyrir, áður
en frekar yrði að gert.
Á fundi nefndarinnar í marz
1968 var samþykkt að fara þess
á leit við Þjóðminjasafn íslands
aö það efndi til sýningar á ís-
lenzkum kvenbúningum. Bauðst
ÆSl til þess á móti að standa
straum af kostnaöi sýningar-
skrár, sem jafnframt yrði fræö-
andi rit um efnið.
Textinn var sendur Þjóðminja
safninu, sem ekki gat samþykkt
hann óbreyttan. Þær breytingar,
sem Þjóðminjasafnið kom með,
gat ÆSÍ ekki fallizt á.
Kom ÆSÍ með aöra miðlunar-
tillögu, sem var á þá leið í aöal-
atriðum, að sýningin yrði haldin
en hætt við útgáfu kynningar-
rits. Þess í stað yrði gefin út
einföld sýningarskrá. ÆSl bæri
áfram fjárhagslega ábyrgð á
gjöldum umfram tekjur. ÆSÍ
beitti sér, eins og áður stóð til,
fyrir kynningu og áróðri vegna
sýningarinnar m. a. I því skyni
að skipulagöar yrðu skólaheim-
sóknir á sýninguna. Yrðu tekjur
af sýningunni umfram gjöld
fengi ÆSl upp í sannanlegan
kostnaö sinn af kynningarst-arf-
inu, en umframtekjur rynnu til
Þjóðminjasafns Islands.
Var bréf þetta sent Þjóðminja
safninu þann 9. sept. Setti þjóð-
minjavörður sig í samband við
ÆSÍ simleiðis eftir að hann
hafði lesið bréfið og taldi ekki
eftir að hafa ráðfært sig við
aðila innan safnsins, að grund-
völlur væri fjrrir frekara sam-
starfi.
I lok greinargerðarinnar segir,
að ÆSl hafi enn ekki ákveðiö,
hvernig þaö muni haga fram-
haldsstarfi sínu til þess að efla
áhuga ungs fólks á íslenzka þjóð
búningnum, en ákvörðun um það
verði tekin fljötlega.
I'MiIHL'I
BELLA
Af hverju ætliö þið frekar að
fara á ball en passa með mér.
Sjáið þið litluu greyin, ekki ætla
þau út og eru samt komandi
kynslóöir.
lÍSMET)
Vinsælasta sígarettutegund í
heimi er „Winston", filter síga-
rettur. Framleiðendur eru R. J.
Reynolds Tobacco Co. og selja
þeir árlega um 74.700 milljónir
stykkja.
VISIR
50SE3
Jwir
Söngskemmtun heldur Arngrím
ur Valagils í kvöld kl. 9 I Bár-
únni. Gefst mönnum kostur á að
heyra þar vel sungið.
VEÐRIB
I DAG
Hægviðri, austan
gola. Hiti 9-12
stig. Skýjað úr-
komulaust.
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA 1968
BENFICA - VALUR
Hann er í DAG KL. 18,15 leikurinn, sem nllir hnfa beðið eftir
Forsakm er 'i tjaldi v/ð Útvegsbankann klukkan 12,00-16,00 og v/ð Laugardalsvóllinn frá klukkan 13.
Arth.: Böm fá ekki aðgang í sæti nema með sætismiða.
✓
__________________________________________________________
^—MaBBaBaaHW—inwmwwiiiwgraBW—■—BHaaigEBBMaaa—■—