Vísir - 05.10.1968, Blaðsíða 2
2
V1S IR . Laugardagur 5. október 1968.
Ritstjóri: Stefán GuÓjohnsen
Staöan l tvimenningskeppni
' Bridgedeildar Breiðfirðingafélags-
; ins er þannig eftir tvær umferðir:
1. Jón — Stefán, 2. Guðlaugur —
' Tryggvi, 3. Magnús — Ásmundur,
, e, mgíbjörg — Sigvaldi, S. Magn-
ús — Kristján, tí. Guðlaugur —
Magnús. Þriðja og jafnfram síðasta
umferðin verður spiluð í Ingólfs-
kaffi, þriðjudaginn 8. október kl.
20.
♦
Úrslit í einmenningskeppni
Bridgefélags Reykjavíkur urðu þau,
að sigurvegari varð Ríkarður
Steinbergsson. Röð og stig efstu
manna varð annars þessi:
1. Ríkarður Steinbergs. 1128 stig
2. Páll Bergsson _ 1126 -
3. Hörður Þórðarson 1094 —
4. Karl Ágústsson 1090 —-
■5. Öm Guðmundsson 1079 —
6. Eiríkur Baldvinsson 1063 -
■7. Hjalti Elíasson 1055 -
8. Þorgeir Sigurösson 1055 —
Þrír efstu menn fá verðlaun fyr
-ir frammistöðuna. Næsta keppni
félagsins er tvímenningskeppni og
hefst hún n.k. miðvikudagskvöld.
Er hún opin öllum og þar meö til
valið tækifæri fyrir nýliða að fá
að þreyta keppni við marga beztu
bridgespilara landsins.
I síöustu umferð einmennings-
keppninnar kom fyrir lærdómsríkt
spil. Er hart að vita til þess að
nokkur skuli tapa svona spili, þar
eð um tiltölulega einfalda öryggis
spilamennsku er að ræða. Staðan
var allír á hættu og suður gat.
♦ 8-7-4-2
¥ A-6
♦ K-G-6-3
♦ K-8-3
♦ A-K-3 ♦ 5
♦ G-8-3-2 ¥ D-10-9-7-4
♦ 8 ♦ D-10-9-5
4, 9-7-5-4-2 4> D-G-6
♦ D-G-10-9-6
♦ K-5
♦ A-7-4-2
4> A-10
Á öllum tólf borðunum var
lokasamningurinn sá sami, fjórir
spaöar og doblaðir á einu. Aðeins
sjö sagnhöfum tókst að vinna spil-
ið og er það mjög lélegt hlutfall.
Ef við lítum nánar á spilin, þá
sjáum við að sagnhafi gefur alltaf
tvo slagi á tromp og vandinn er því
að gefa aðeins einn slag á tígul.
Þetta er mjög auðvelt eins og spilið
liggur, því maður þarf aðeins að
hreinsa upp hjartað og laufið og
fara síðan I tígulinn. Þegar tígul
áttan kemur frá vestri er spilið
öruggt.
’C’inn vinsælasti skákmeistari síð-
ari tíma er Eistlendingurinn
Paul Keres. Hann hefur verið á
toppnum f skákheiminum í rúmlega
30 ár, eða allt frá því er hann vann
AVRO-mótið í Hollandi 1937. Sá
sigur veitti honum rétt til að
skora á þáverandi heimsmeistara,
Alekhine. En heimsstyrjöldin með
öllum sínum hörmungum kom í
veg fyrir þetta einvígi. Keres var
aðeins 21 árs að aldri er hann
sigraði á AVRO-mótinu og hann
virtist sannarlega hafa tímann og
framtíðina fyrir sér. En þetta
tækifæri sem heimsstyrjöldin svipti
Keres kom aldrei aftur. Alekhine
lézt skömmu síðar og Botvinnik
tók völdin í skákheiminum með
sigri sínum í 5 manna móti sem
haldið var um heimsmeistaratitil-
inn 1948. Bronstein varð síöan á-
skorandi Bótvinniks 1950 og síðar
Smyslov 1953 og 1956, en Keres
’héit sig f 2. sæti.
Á áskorendamótinu 1959 virtist
langþráðu marki náð á skákbraut
Keresar. Bronstein var ekki lengur
meðal keppenda og Smyslov tefldi
ekki af því öryggi sem hafði veitt
honum sigur á áskorendamótunum
’53 og ’56. Keres hefur líklega
aldrei teflt jafnvel og á móti þessu
og var í efsta sæti langt fram eftir
mótinu. En ný stjarna var risin
á skákhimninum. M. Ta! var ó-
stöðvandi um þessar mundir og
þótt Keres sigraði Tal í skákum
þeirra innbyrðis 3:1 vann Tal mót-
ið með því að gjörsigra neðstu
mennina, Benkö, Friðrik, Gligoric
og Fischer. Keres gekk hins vegar
ekki eins vel með botninn og hlaut
2. sætið.
Keres hefur nú dregið sig í hlé
frá kapphlaupinu um heimsmeist-
aratignina. En hann heldur enn ó-
skertum skákstyrk'eika, svo sem
sigur hans í Bamberg 1968 sýndi,
en þar varð Keres 2 vinningum
fyrir ofan næstu menn, Petroshan
og Schmid. Hér kemur vinr.ings-
skáfc Keresar gegn Schmid, en það
var eina skákin sem Schmid tapaði
f mótinu.
Hvftt: P. Keres.
Svart: Schmid.
Sikileyjarvörn.
1. d4 c5 2. e4 cxd 3. Rf3 Rf6
Svartur leggur ekki í að halda
peðinu. Eftir 3. ... e5 4. c3 fær
hvítur hættuleg sóknarfæri fyrir
peðið Sú leið sem svartur velur er
ekki algeng. 3. ... d6 4. Rxd Rf6
beinir byrjuninni inn á þekktari
brautir.
4. e5 Re4 5. Dxd d5 6. Rbd2 Rc6
7. Bb5 Bf5
Hér var betra 7. ... RxR 8. BxR
e6, með traustri stöðu.
8. 0-0 a6 9. BxRt bxB 10. Da4
Dd7 11. RxR BxR 12. e6!
Sterkur leikur, sem riðlar svörtu
stöðunni.
12. .. Dxe
Ef 12. . . fxe 13. Re5 með yfir-
burðastöðu.
13. Rg5 Dg6 14. RxB dxR 15. Bf4
f5 16. Dc4 c5
Svartur er í vanda staddur og
afræður að láta peðiö af hendi og
reyna að létta á stöðunni. En Keres
herðir aðeins tökin.
17. Hadl Dc6 18. f3 h6.
18. ... exf 19. Hxf myndi aðeins
opna fleiri sóknarlínur fyrir hvitan.
19. fxe Dxe. 20. Dxc e6. 21. Dc7
Be7. 22. Hd7 Bd8. 23. HxBf! HxH.
24. Dxg Hf8
Ef 24. ...Dd4t 25. DxD HxD
26. Be5.
25. Bxh Dd4f
Þvingað. Ef 25. . . Hf7 26. Dg8t
Ke7. 27. Bg5t
26. D?cD HxD. 27. c3! Hd6. 28.
BxH KxB.
Svartur hefur tveim peðum
minna og frekari barátta svarts er
raunverulega óþörf.
29. Hel Kf7. 30. Kf2 Kf6. 31. Ke2
e5. 32. Hd! Hb6. 33. b3 Kg5, 34.
c4 Kf4. 35. Hd3 Hh6. 36. Hh3 Hg6.
37. Hh4t Kg5. 38. g3 a5. 39. c5 e4.
40. Ke3 Hg8. 41. Hf4 Hd8. 42. h4t
Kf6.
Eða 42. .. Kg6. 43. g4 fxg 44.
Hxgt
43. g4 Hd3t 44. Ke2 Ke4. 45.
Hxft Kd4. 46. g5 He3t 47. Kfl Hh3.
48. c6 Hxh. 49. g6 e3. 50. g7 Hhlt
51. Ke2 Hh2t 52. Kel Gefiö.
Jóhann Sigurjónsson.
—Listir -Bækur "Menningarmál
„Skömmin44
— ný mynd eftir Bergman hlýtur
frábærar viðtökur
Að undanförnu hefur verið
töluvert af góðum myndum í
kvfkmyndahúsunum og betur
vaeri, að þannig héldi áfram í
vetur þvf að örugglega er af
nógu að taka.
Sænski kvikmyndameistar-
inn Ingmar Bergman hefur nú
sent frá sér tvær myndir, sem
eflaust verður hægt að fá hingað
innan skamms. Þær heita „Stund
úlfsins” og „Skömmin”. Ég hef
heyrt það á skotspónum, að til
greina komi, að Hafnarbíó hefji
sýningar á hinni fyrmefndu inn
an tiðar, og væri það verðugt
merki þess, að nú er verið að
brjóta blað í sögu þess.
„Skömmin” var frumsýnd i
Stokkhólmi fyrir fáeinum dög-
um 29. september nánar tiltekið.
Þetta er 36. mynd Bergmans, og
gagnrýnendur og aðrir, sem við
staddir voru frumsýninguna áttu
varla orð til að lýsa hrifningu
sinni.
Með aöalhlutverkin í þessari
nýju mynd fara Liv Ullmann,
Max von Sydow og Gunnar
Bjömstrand. Öll hljóta þau mik
ið lof fyrir frammistöðu sína,
en Liv Ullmann þó miklu mest.
Gagnrýnendur segja, að hún
hafi unnið ótrúlegan leiksigur,
og það sé öruggt, að Bergman
hafi tekizt að gera stórkostlega
leikkonu úr þessari norsku
stúlku.
Myndin fjallar um styrjöld
í Sviþjóð, og þau áhrif, sem sá
ómennski atburður hefur á
mannlífiö.
Margir biðu spenntir eftir að
sjá eitt atriði myndarinnar, sem
Bergman ætlaði að leika í —
en það kom fyrir ekki, því að á
frumsýningunni kom á daginn,
það atriði hafði verið klippt
úr.
Nú er spurningin aðeins: Hve
nær fáum við að sjá þessar tvser
nýjustu myndir Bergmans?
EINKUNNAGJÖF:
Til þess að í framtíðinni verði
auðveldara að átta slg á kvik-
myndagagnrýni blaðsins.
verður tekin upp einkunna-
gjöf, sem franska ritið .,Cahi-
ers du Cinéma“ tók fyrst upp.
en er nú almennt viðurkennd.
Þessa einkunnagjöf ber að
túlka þannig:
•kir-k-k Stórkostleg
★★★ Mjög góð
★★ Sæmileg
★ Á takmörkunum.
• Misheppnuð
Einkunn hverrar myndar mun
sfðan birtast með nafni henn-
ar. eins og sjá má hér á síð-
unni.
Yfirgefið hús
★★★
Stjómandi: Sidney Poli-
ack. Kvikmyndun: James
Wong Howe. Aðalhlut-
verk: Robert Redford,
Natalie Wood, Charles
Bronson Mary Badham
o.fl. Amerisk, íslenzkur
texti. Háskólabíó.
þessi mynd gerist i kreppunni
£ Mississippi-fylki i Banda-
ríkjunum. Sögusviðið er smábær
sem byggir tilveru sína á járn-
brautarstöðinni og þeirri at-
vinnu, sem skapast kringum
hana, en söguþráðurinn er byggð
ur á leikriti eftir Tennessee
Williams.
Með eldri dótturinni og komu-
manni takast ástir, en þegar
starfi hans er lokið heldur ungi
maðurinn brott. Atvinnuleysi
ríkir í bænum, hann er dauða-
dæmdur. Ekki er ástæða til að
skýra frá endi myndarinnar,
enda er þetta aðeins hin ytri at-
burðarás.
Það er sannarlega athyglis-
vert, að myndir á borð við jjessa
skuli koma frá Hollywoodáþess
um siðustu timum.
Stjórnandinn, Sidney Pollaek
virðir persónur sínar fyrir sér
eins og úr fjarlægð. Fylgist með
tómlegu lífi þeirra og óhamingju
— án þess að reyna að hafa
nokkur brögö i frammi til að
hræra áhorfandann til samúð-
ar með þeim. Pollack stjómaði
einnig myndinni „The Slender
Thread“, sem sýnd var íHáskóla
bíói, en það var fyrsta kvikmynd
hans, þar sem hann starfaði áð-
ur við sjónvarp.
Kvikmyndatakan í þessari
mynd er kapítuli út af fyrir sig,
sjaldan hef ég séð jafnvel tekna
litmynd. Það er James Wong
Howe, sem sér um kvikmynda-
5. síða
I skugga risans
Til bæjarins kemur ungur mað
ur (Robert Redford) til að sjá út
leiðir til að skipuleggja starf
stöðvarinnar, þannig að færri
menn þurfi að vinna á staðnum.
Hann fær gistingu í litlu hóteli
sem kona nokkur rekur ásamt
tveimur dætrum sínum (Natalie
Wood og Mary Badham). Eldri
dóttirin og raunar móðirin líka
er heldur laus á kostunum.
*
I skugga
★
Stjórnandi: Gianni Grim-
aldi. Leikendur: Stephen
Forsyth, Anne Shemtan,
Conrado Sanmartin Helga
Line, Frank Ressei, o.fl.
Spænsk-itölsk, enskt tai,
danskur texti. Austurbæj-
arbió.
J>etta er ein af þessum sigildu
kúrekamyndum að öllu leyti
— nema því að Bandarikjamenn
gera hana ekki, heldur Italir og
Spánverjar. Þeim tekst mjög vei
til, og nú er það yfirleitt orðið
svo, að kúrekamyndir frá ital-
íu og Spáni eru betri, en „heima
tilbúnar” bandarískar myndir af
sama tagi. Enda voru Bandaríkja
menn komnir hættulega langt
niður í B-myndaframleiðslu
sinni.
Það tekur því varla að rekja
★★
(Cast á Giant Shadow).
Stjómandi: Melville
Shavelson. Kvikmyndun:
Aldo Tonti. Tónlist: Elm
er Bemstein. Leikendur:
Kirk Douglas, Senta Berg
er, Angie Dickinson, Jam
es Donald, Frank Sinatra
Yul Brynner, John Wayne
dauðans
söguþráðinn i þessari mynd, en
sem kúrekamynd er hún mjög
sæmilega skemmtileg, og gam-
an verður að sjá fleiri italskar
kúrekamyndir, þar sem nokkrar
þeirra hafa jafnvel öðlazt alþjóð
lega frægð.
Ymsir bandarískir leikarar
hafa nú flúið Hollywood til að
leika i myndum fyrir ítalina, t.d.
Clint Eastwood, Lee Van Clif,
Ray Danton og Stephen Forsyth
ef ti! vill samkvæmt máltækinu
um, að betra sé að vera laukur í
lítilli ætt en strákur í stórri.
o.fl. Amerísk, islenzkur
texti. Tónabió.
essi mynd fjallar um þá bar-
áttu, sem Gyðingar háðu í
Palestínu fyrir stofnun ísraels-
ríkis. Sem amerísk stríðsmynd
er hún i fyrsta flokki — sem
listaverk kemst hún ekki á blað.
Amerískur lögfræðingur og
stríðshetja er fenginn eftir strið
ið til að fara til ísrael til að
skipuleggja hersveitir Gyðinga.
Kirk Douglas Ieikur hetjuna. —
Hann á við mörg persónuleg
vandamál að stríða, og er fjallað
um þau í atriðum, sem eru lysti
lega gerð til að kitla tárakirtl-
ana.
Síðan er fjalíað um áframhald
og þröun stríðsins fram að
vopnahléi, og eru þar mörg góð
atriði. Ýmsir þekktir leikarar
koma við sögu. Landslagið fall-
egt og kvikmyndatakan afbragð.
Um þessa mynd er sem sagt
fjölmargt gott að segja, en fyrir
minn smekk er hún allt of væm
in og barnaleg. Þó er það öruggt
að þeir sem aðeins eru á höttum
eftir stríðsmynd með góðurr
leikurum finna þarna verk við
sitt hæfi.
Þráinn Bertelsson skriíar kvikmyndagagnrýni:
i
i