Vísir


Vísir - 09.10.1968, Qupperneq 3

Vísir - 09.10.1968, Qupperneq 3
I VlsIR . '"'.gur 9. oRíOaei itryJi 3 JJagfarslega eru læknar allra manna alvarlegastir og á- byrgðarmestir. Þeir ávarpa sjúkl inga sína með hinni viðteknu læknisrödd og hafa ekki tilfinn- ingamál í flimtingum. Þeir hlusta á kvartanir fólks meö yfir mannlegri ró, humma, ræskja sig og segja með sinni alkunnu: þetta-er-nú-ekki-svo-alvarlegt við-skulum-sjá-hvað-við-getum gert-góði — rödd. En þeir skvetta sér upp eins og annað fólk og þá kveður held ur betur við annar tónn. Þá syngja þeir sorgarlag lækna- nema um hann Þórð gamla, sem Heiðursgesfirnir sátu við háborðið. Á myndinni sjást: Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn og kona hans frú Halldóra Eldjám, Jóhann Hafstein, heilbrigðismálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson, félagsmálaráðherra, Geir Hallgrímsson, borgarstjóri og Arinbjörn Kolbeinsson form. Læknafélags Islands. Loff Malakoff á 50 ára afmælinu eins og alltaf hjarir enn, þótt devi aðrir dánu menn. Læknafélag Islands er orðið hálfrar aldar gamalt og í tilefni þess var efnt til hátíðarhalda. Einn liðurinn var læknahóf og þar sungu læknar um hann Þórö gamla með tilheyrandi Loff Malakoffi, en það er fastur liður hjá læknum að syngja þennan mikla brag þegar þeir safnast saman og skemmta sér. Og það fer hrollur um gesti þeirra, þeg ar þeir syngja af mikilli tilfinn- ingu: nú kryfjum við þann húðar sel. En enginn var krufinn nú frekar en endranær á Hótel Sögu og raunar hvergi í bæn- um. Það er einmitt eitt höfuð- vandamálið við læknakennslu, að ekki hefur verið hægt að fá lík til að kryfja við læknadeild ina í fleiri áratugi, Margt var til skemmtunar haft í læknahófinu og skemmtu menn sér hið bezta; leikir jafnt sem lærðir. Myndsjájn bregður upp nokkrum svipmyndum frá hóf- inu. Tveir Pálar í söngskapi, Páll Sigurðsson tryggingayfirlæknir og Páll Gíslason, yfirlæknir á Akranesi. Andrés Ásmundsson, kvensjúkdómalæknir og Karl Strand, geðlæknir skiptast á skoðunum. Á milli heirra situr Eggert Steinþórsson. Ás.nundur Brekkan, yfirlæknir og Ólafur Jensson, eitthvað með hugann við vandamál hversdagslífsins. Yfir borðum. Á myndinni sjást m.a. Jón Steffensen prófessor, Torfi Bjarnason, héraðslækn- ir og Stefán Guðnason tryggingalæknir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.