Vísir - 09.10.1968, Side 4

Vísir - 09.10.1968, Side 4
' ............. . .. -x James Drury. Danir eru í þann veginn að hefja sýningar i sjónvarpi sínu á kúrekaþáttunum, „Maðurinn frá Virginíu“, sem á sínum tíma hlaut miklar vinsældir vestanhafs. Sá sem fer með hlutverk mannsins frá Virginíu, er James Drury. Soraya, fvrrum keisaraynja í Persíu, hefur notið samúðar um heim allan, frá því að kéisarinn skildi við hana hérna um árið. Var talið, að hún gæti ekki fætt erfingja handa blessuðum keisar- anum. Nú virðist hún hafa tekið gleði sína að nýju. Sagt er, að glóð ástarinnar brenni nú í hjarta hennar. Hún hefur nýlega flutt búferlum úr hótelíbúð sinni til „fínasta hverfisins“ í útjaðri Róm Þar býr hún nú ásamt aðdá- anda sínum, Franco Romain Indovina, sem er stjórnandi kvik- mynda. Indovina er kominn mitt í hóp hinna „fínustu". Meðal fyrri að- dáenda Sorayu eru léikararnir Richard Harris og Maximilian Schéll, aðalsménnirnir Jose Luis ViIIalonga og Férnando mark- greifi, söngvarinn Bobby Darin, „baseball“kappinn Bob Belinsky og Peter nokkur Haff, sem. er hélzt titlaður sem „nautnasegg- ur“. Það þarf víst ekki að vor- kenna Sorayu. „Alain Delon er enn i táningur, þótt hann sé yfir þrítugt44 segir Nathalie, fráskilin kona hans „í mfnum augum eru allir karl- menn bara karlmenn. Ég sé ekkert sérstakt við þá. Um leið og ég hitti einhvem þeirra, næ ég ein- hvers konar „sambandi" við hann. Þá veit ég strax, hvort ég get búið með honum í heilan mánuð, eða verið með honum í einn dag, eitt kvöld eða aðeins nokkrar klukkustundir og látið mér líða dásamlega vel. Á eftir má hann fara sína leið, eins og ég sjálf, sem dreg mig til baka inn í eigin veröld sem frjáls og óháð kona“. Þannig farast orð Nathalie nokk- urri Delon, sem nýlega hefur feng jð skilnað frá franska' leikaranum fræga Alain Delon. „Ég skildi við Alain, af þvi aö mér fannst hann veikgeðja. Ég á við, að hann var ,,háður“, og Alain var háður mér meðal ann- ars. Ég kæri mig ekki um, að karlmaður „hangi í pilsunum á mér“. Þar að auki er hann háður fjölmörgu öðru, sér í lagi pening- um og góðum árangri í starfinu. Ég vil sjálf ekki vera háð nein- um eða neinu. Ég er ekki háð Ala- in, starfi minu sem leikkona eða peningum.". „Veröld mín hrundi ekki til grunna þegar við Alain slitum samvistum. Ég veit að ég dey ekki úr hungri, þótt peningana þrjóti eða enginn vilji lengur horfa á mig í kvikmyndum. En Alain er þrjátíu og þriggja ára, og hann er enn þá táningur. Peningar eru hið eina sem gefur honum sjáífs- traust." . Nathalie býr i 10 herbergja íbúð í Francois-stræti í París með syni sínum Anthony, þriggja ára, og tveimur aðstoðarkonum, vinnu- konu og bamfóstru. Anthony er áreiðanlega eini karlmaðurinn, sem Nathalie þyk- r vænt um. — „Hann er ekki hlutur, ekki maður. Hann er sonur minn“, segir hún. Anthony litli þrýstir sér að brjósti móður sinn- ar og segir: „En hvað þú ert falleg mamma. Þú ert sú falleg- asta í öllum heiminum.“ Nathalie Delon hrífst af „mini“-pilsum og kjól- um og háum stígvélum. -<S> Sally verður ■ ■ ð íáÉfe: **" '<I;W \ 'OT,ifðiv ■■: ■ - 1 , m dXSÉs Sally er eins og nafnið bendir til hefðarmær, Að auki er hún urriði sinnar tegundar, og vegur 125 kíló. Hún hefur aldrei kært sig hið minnsta, hvorki um sjáv- ardýr né mannfólkið, þar til Curl- ey Loomis var ráðinn sem dýra- gæzlumaður í Marineland í Kali- forníu, sem er einn frægasti dýra garður heims, en þar á ungfrú Sallv heima. Fyrir hálfu ári tók Loomis að mála málverk neðansjávar, klædd ur kafarabúningi. Hann kom trön um sínum fyrir og málaði fisk- ana með olíulitum á léreft, sem ekki skemmist í vatni. Þessi atburður dró þótt undar legt megi virðast, til sín fjölda fiska. Einn mesti aðdáandinn var Sally, sem rak hina alla burt. Þessi risafiskur settist, ef svo mætti segja, í fangið á Curley, í hvert sinn sem hann fór að mála. Curley kitlar nú Sally iöulega undir hökunni, og ungfrúin hegð- ar sér eins og „ástfanginn fisk- ur,“ þegar hann er nærri. Þegar hann háfði til fulls unnið sér traust fisksins, 1 fékk hann að bursta hinar hvössu tennur í þess- um risafiski. Það er raunalegt, að Sally hefur ekki séð vin sinn, eins og hann er í raun og veru. Höfuð hans er alltaf á bak við hjálm- inn. igjg ifcr Ó, hvað það er gott að láta klóra sér undir hök- ... og að láta vin sinn bursta tennurnar í sér. unni. Mál, sem alla varðar Sá styr, sem upp kom vegna neitunar á útflutningsleyfi á salt fiski til Ítalíu fyrir nokkru hef- ur yakiö óskipta athygli aiis þorra fólks. Var því haldió fram, aö um hærra verö væri aö ræöa, en áður hefur veriö selt á. Sölu- samtök fiskframleiöenda höfðu fyrir nokkru harmað söluerfið- leika og lækkandi verö, og töldu útlitið mjög ískyggilegt. Nú virö- ist hins vegar allt fiskmagn vera selt og að leyfa einstakl- ingi að selja sína eigin fram- ieiöslu er af forráðamönnum SÍF taliö háskalegt, hvemig sem það á aö skiijast, ef veröiö er nægilega hátt og tryggt er að gjaideyri veröi skilaö. 1 fljótu bragði mætti segja, að það væri furöulegt í lýðræö- isþjóðfélagi, ef samfélagiö legg- ur slikar hömlur á framleiðanda, að hann hafi ekki heimild til að selja hæstbjóöanda vöru sína. allra, þar eö vandkvæðin sem af samdrætti útflutningsatvinnu veganna hljótast, koma mjög Ekki skal iagöur á það dómur hér, hvort þessi mál þola dags- ins Ijós eða ekki, en þar eð ætla JQ&idii*íGötu Virðist það vera mikil skeröing á athafnafrelsi. Nú eru forustumenn fisksölu- mála komnir heim frá útlönd- um, væntanlega eftir happa- drjúga ferö. Skýringar á gangi mála hafa samt ekki verið lagð- ar á horðið fyrir almenning, þó þessi mál ættu aö varöa viö allan almenning í landinu. Hitt er ljóst, að því, sem þessir aðilar láta eftir sér hafa ber mjög il'a saman, lítið er rætt um verö c söluskilmála á afurðum okkar, sem virðast vera eins konar íeimnismál, svo fólk veit vart hveriu það á að triia um þessi mál. má, aö forustumenn útflutnings- .nála hafi þá einlæga trú að núverandi fyrirkomulag sé hiö eina rétta, sem tryggi farsælan árangur, þá fyndist mér, að þeir og aðrir, sem málln varða, ættu að óska eftir að allsheriar út- tekt færi fram á þessum mál- um, sem sannaðl bú, að þéir hefðu á réttu að standa. Ef ekki, þá á almenningur og ekki sízt þeir fiskeigendur sem vilia selja sinn fisk sjálfir, skýlausan rétt iíl þess að fá útflutningsleyfi, ef verð eru viðunandi. ; Eins og oft áður ætti að skipa hlutlausa nefnd til að kanna sölumál fiskafurða okkar almennt með tilliti til, hvort breytinga sé ekki þörf. Það þótti sjálfsagt að skipa rannsóknar- nefnd út af kali, hafís, stöðlun í skipasmíðum, svo aö eitthvað sé nefnt. Það mundi aðeins líta annarlega út, ef ekki færi fram ítarleg rannsókn á útflutnings- málum okkar í þeim tilgangi að bæta úr bví sem hugsanlegt væri, að væri til úrbóta. Mál bessi varða alla þjóðina. ^ Þrándur í Götu. j

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.