Vísir - 29.10.1968, Síða 2

Vísir - 29.10.1968, Síða 2
Efnilegt sundfólk Myndin er af unglingum þeim úr sundfélaginu Ægi, sem sigruðu á síðasta unglinga- meistaramóti íslands í sundi. Hlaut Ægir 132,5 stig og vann til eignar bikar gefinn af Albert Guðmundssyni stórkaupmanni. Nr. 2 var K.R. með 95 stig og nr. 3 H.S.K. meö 80,5 stig. Mörg góö afrek. voru unnin á mótinu og má þar nefna ís- landsmet Ellenar Ingvadóttur 1:20,9 i 100 m. bringusundi, metjöfnun Sigrúnar Siggeirs- dóttur í 100 m. baksundi 1:16,0 og telpnamet Helgu Gunnarsdóttur í 50 m. bringu- sundi 38,3 en það er bezti kvennatími á þessari vega- lengd s.l. 3 ár. Á myndinni með unglingun- um eru þjálfarar Ægis þeir Guðmundur Þ. Harðarson og Hreggviður Þorsteinsson. TOPPLIÐIN ERU KNATTSPYRNU □ Það er mikið um að vera hjá íþróttadeild sjón- varpsins þessa dagana. Þar er Sigurður Sigurðsson á- samt tæknimönnum að undirbúa útsendingar á efni frá Ólympíuleikunum, en efni þetta var sent til Evrópu gegnum gervi- hnött til Danmerkur, en danska sjónvarpið tók jafn óðum upp a segulband fyr- ir íslenzku „kollegana“. „Við eigum eftir um 10 tíma af ýmis konar efni“ sagði Sig- urður Sigurðsson við blaðamann Vísis í gær. „Engin sending verður frá leikunum á miðvikudagskvöld- ið, eins og ráðgert var, því þá eru úrslit í handboltamótinu, en þetta tvennt má ekki rekast á“, sagði Sigurður. Hins vegar verða send- ingar á laugardaginn, þá má bú- ast við að sjá m. a. knattspymu og ýmsar sýningaríþróttir, en búið er að sýna mest af hinum spenn- andi keppnisgreinum. — Og hvað með knattspyrnuna frá Englándi, Sigurður. Menn hafa undrazt það hversu mikið dálæti þið virðist hafa á Leicester City. „Það er raunar ekki okkur að kenna hversu mikið Leicester hef- ur veriö í sviðsljósinu hjá okkur undanfarið. Brezka firmanu ITC, sem tekur upp þennan þátt, eru VÆNTANLEG I SJÓNVARPSINS raunar skammtaðir leikir af enska knattspyrnusambandinu og fær ekki að hlutast til um hvaða leik- ir verða fyrir valinu hverju sinni. Þess vegna er ekkert val í þessu efni.“ Hins vegar munu vera á döfinni leikir toppliðanna og væntanlega hressist yfir knatt- spyrnuþáttunum í sjónvarpinu á laugardögum, en þáttur þessi hef- ur aflað sér geysilegra vinsælda. Fyrsti stórleikurinn á Seltjarnarnesinu Fram og FH keppa þar á fimmtudagskvbld Firmakeppni G.S. Hinn 29. sept. lauk firmakeppni Golfklúbbs Suðumesja á Hólms- ^ íþróttahúsið á Sel- tjarnarnesi, sem fyrir nokkru opnaði dyr sín- ar fyrir íþróttaæsku Sel- tjarnarness, og Reykja- víkur að nokkru leyti, hefur fengið sinn fyrsta, og líkíega ekki síðasta, stórleik ? handknattleik. Á fimmtudagskvöldið leika lið Fram og FH í húsinu, en það eru iþróttafréttamenn, sem standa fyrir leiknum. Það er ó- þarft að kynna lið Fram og FH. Með algjörlega ólíkan leikstíl hafa þessi tvö lið heillað á- horfendur í fjölmörgum leikj- um, undanfarin ár, hvort á sinn hátt. Það hefur yfirleitt verið gef- ið mál að leikur milli þessara .tveggja stórvelda í handknatt- leiknum okkar, hefur reynzt hin bezta skemmtun, enda er það .íetnaðarmál liðanna að fara með sigurinn af hólmi. Framarar hafa reynt undan- farið að „taka úr umferð" beztu menn FH, aðallega Geir Hall- steinsson, — en það hefur mis- tekizt, og síðast varð jafntefli hjá liðunum. ekki er að efa að leikurinn á Seltjarnarnesi verð- ur í sama dúr og fyrr. Áhorfendastæði eru í íþrótta- húsi Seltjarnarness, og verða aðeins þúsund miðar seldir, enda er það hámarksfjöldi þeirra, sem inn komast. Til að ekki myndist nein eyöa í leikkvöldið munu íþróttafrétta menn „togast á“ við föngulegt lið kvcnna úr hancjknr.t. 'ks-‘ liðum Reykjavíkur, úrvalsliði meyja úr þessum liðum. Það verður ekki tekið út með sæld- inni hjá fréttamönnum að sigra hmar frísku handknattleiks- meyjar. -jbp- velli í Leiru. Alls tóku 64 fyrirtæki þátt i keppninni. Keppnin var holukeppni með forgjöf. Til úrslita léku Fitjanesti og Jámsmíðaverk- stæði Sverre Stengrimsen og sigr- aði Fitjanesti en fyrir það lék Jó- hann Benediktsson, en fyrir Sverre Steingrimsen lék Sigurður Jónsson. Fundin mynd af glímu- mönnum á ÓL 1912 • Innan GLI’, Giimusambands fs- una, en íslenzka sjónvarpið átti lands er starfandi minjasafnsnefnd, hægari heimatökin hjá hinum skipuð þeim Þorgils Guðmunds- sænsku starfsbræðrum sínum, en syni, Sigtryggj Sigurðssyni og Ól- þar var filman niðurkomiri, og afi H. Óskarssyni. keyptj eintak af filmunni, að auki OÁ síðasta ári tókst nefndinni fyrir lægra verð en GLÍ bauðst. að hafa uppi á kvikmynd af ísl. • Nú mun GLI fá eintak af filmu glímumönnum á Ólympíuleikun- sjónvarpsins af glímumönnum fs- um 1912, sem haldnir voru í Stokk- lendinga á ÓL 1912 í Stokkhólmi. hólmi. Minjasafninu var ofviða Aðeins 2000 krónum var veitt til sökum fjárskorts að kaupa film- minjasöfnunar á fjárhagsáætlun GLÍ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.