Vísir - 29.10.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 29.10.1968, Blaðsíða 9
V1 SIR • Þriðjudagur 29. október 1968. y koma mér í Hógvær og hlé- drægur „trésmiður“ eins og hann enn nefnir sig í síma- skránni verður formaður Félags íslenzkra iðnrekenda áður lítt þekkts félagsskapar. Það var Kristján Jóhann Kristjánsson, annar aðaleigandi Kassagerðar Reykjavíkur. Hann sagði þá: „Alþingis- menn okkar þurfa að þekkja nýja atvinnuveginn íslenzkan iðnað. Kynnast verksmiðjum og vélum af eigin raun.“ Dag nokkurn var kynningarferðin farin. Að henni lokinni var haldið til hádegisveröar að Hótel Borg, þar flutti Kristján Jóhann eftirminnilega ræðu um íslenzkan iðnað og hlutverk hans. Létu þingmenn þess getið að margir hlutir hefðu komið þeim á óvart, sem þeir sáu og heyrðu í þessari för. Þama urðu þáttaskil. Iðnaðurinn hóf sókn til viðurkenningar og frama. ÁHö 1949: Kristján Jóhann hafði nokkrum árum áður ver- ið aöalhvatamaður að stofnun lítils flugfélags sem nefndi sig Loftleiðir h.f. Þegar hér var komið átti félagið m. a. milli- landaflugvélina Geysi, og þurfti * Cvipmyndir 3 hug. Árið 1946: banka íslands h.f. Málið var til síðustu umræðu i efri deild. Það var komiö fram á kvöld. Umræður gengu fjörugt um málið í deildinni og það var vitað að andstaðan var hörð og úrslitin' gátu oltið á einu at- kvæði. Ekki voru aðrir á áhorfenda- pöllum en Kristján Jóhann og undirritaöur. En hann sat þar sjaldan kyrr. Öðru hverju skauzt hann til viðtals við einstaka þingmenn í bakherbergjum til þess að reyna að sannfæra þá um réttmæti laganna. Þegar hin örlagaríka afgreiðsla fór fram, og lögin voru samþykkt með eins atkvæðis mun, var Krist- ján Jóhann glaðari en frá megi segja. Hann hafði unnið sigur sem svo oft áður á sinn yfir- lætislausa hátt. Kristján Jóhann er ljóöelskur og prýðilega hagoröur sjálfur. Hann orti svo fyrir skömmu: Þótt bráðum ég hverfi sem upp- höggvin eik og einskis nýt reynist mín vinna, er ég þó stöðugt í eltingaleik við uppfylling hugsjóna minna. Kristján Jóhann kann þá list að eiga hugsjónir og láta þær komast til framkvæmda. Það gerir hann ekki einn, heldur með annarra aðstoð. Þetta er honum ljóst. En það er ekki öll- um gefinn sá hæfileiki að kalla fram áhuga annarra og að fá þá tii að starfa, ef til vill að fjarlægu markmiði. Kristján Jóhann er atorku- | og framfaramaður og hefur trú k á landi sínu og þjóö. Hann | hefur byggt upp fyrirtæki sitt | af þrautseigju, kjarki og dugn- aði. En þessir hæfileikar hans | hafa einnig notið sín við að H koma á fót og byggja upp önn- | ur þjóðþrifa fyrirtæki. Bsr þar I hæst flugfélagið Loftleiðir h.f., f en eins og kunnugt er var hann | einn af aðaistofnendum þess og | stjórnarformaður fyrstu 10 ár- S in. Kristján Jóhann er gæddur | ríku hugmyndaflugí og hefur sá p eiginíeiki átt drjúgan þátt í ® velgengni hans. Hann hefur ver- ;■ ið fljótur að átta sig á nýjung- « um og hagnýta sér þær í fyrir- | tækium sínum og ber Kassa- gerðin þess glöggt merki. Öll- | um er kunnugt um baráttu hans íj fyrir því að teknar verði upp I nýjungar i mjólkurumbúðum 2 hér á landi. Þó að Kristján Jóhann sé nú | 75 ára hefur þessi hæfileiki S ekkert sljóvgazt, og þekki ég jj| ekki annan athafnamann, sem íi er svo ungur í anda sem Krist- ián Jóhann. Hann er sífellt að leita aö og fást við ný viðfangs- efni, án þess þó að hlaupa frá því, sem fyrir er. En það sem örugglega á drjúgan þátt í þeim eldmóði, sem auðkennir störf Kristjáns Jóhanns er, aö iðnaðurinn er honum ekki einungis brauð- strit, helduv hugsjón. Þess vegna hefur hann helgað fé- lagsmálum iönaðarins drjúgan skerf af starfskröftum sínum. Hann var kosinn í stjóm Kristján Jóh. Kristjánsson 75 ára hún að fara í yfirlitsskoðun og aðgerð til borgarinnar Oakland í Califomiu. Engir peningar vom til. Formaður félagsins Kristján Jóhann bauð undirrit- uðum með í tóma flugvélina og ömggustu loftsiglingamenn Loftleiða lentu heilu og höldnu í Oakland. Viðgeröin tók 6 vik- ur. Það var ekki laust við er líða tók á aðgerðina að menn þar vestra yrðu ókyrrir, vegna þess að ekki komu inngreiðslur á viðgerðarkostnaö. En Kristján Jóhann reiknaði dæmið rétt. Hann sagði við mig: „Ameríkanamir eru komnir svo langt aö þeir verða að ljúka viðgerðinni. Bankinn heima getur varla annað en lofað okkur fyrirgreiðslu úr því að viö erum komnir vestur og viðgerð er komin þetta langt.“ Morgun hvern, þegar viögerð var að ljúka, stóð Kristján Jó- hann í stöðugu símasambandi við Reykjavík. Á tólftu stundu kom banka- ábyrgð fyrir nokkrum hluta kostnaðar, og forstióri hins bandaríska fyrirtækis sagði, er hann kvaddi okkur Kristján Jóhann: „Þetta hefi ég aldrei gert fyrir nokkurt flugfélag fyrr,“ og viö mig sagði hann að lokum: „Segðu Kristjáni Jó- hanni að hingað komi menn af öllum heimshornum með flugvélar sínar til viðgerðar, en ég hafi aldrei upplifað það að þeir kæmu hér án þess að hafa dollar í vasanum til að greiða með. En ég gerði þetta vegna þess hvað mér fellur framúr- skarandi vel við þennan mann.“ Árið 1951: Átök mikil höfðu orðið á alþingi um það, hvort leyfa skyldi stofnun Iðnaðar- Þessi þáttur í skaphöfn og fari Kristjáns Jóhanns minnir nokkuð á lýsingu Snorra á Erlingi Skjálgssyni frá Sóla: „Öllum kom hann til nokkurs þroska". Við Kristján Jóhann Krist- jánsson höfum þekkzt i 23 ár. Hann er svipmikill samtíðar- maður. Þaö þarf ekki að kynna hann eða æviatriði hans fyrir þeim sem nú eru komnir yfir miðjan aldur. Fyrir hina og þá sem á eftir koma vil ég minna á það, að um hann og fyrirtæki hans hefur margt verið ritaö og vil ég þar nefna m. a. bæk- umar „ísland i dag“ .og „Is- lenzkir samtíðarmenn“, auk tímaritsins „íslenzkur iðnaður", en hitt er sönnu nær, að per- sónuleg kynni ein gefa hið rétta og sanna mat. Lífsfjör, dugnaður og fram- sýni Kristjáns Jóhanns geta alltaf komið manni að óvörum. Hann hefur tekið þátt í marg- víslegum félagsmálum, verið formaður F.Í.I., formaður Iðn- aðarbanka íslands h.f. um skeið og átt sæti f Verzlunarráði ís- lands, svo að eitthvað sé nefnt. Stofnun Loftleiða h.f., for- mennska þar og bjargráð frá mörgum blindskerjum er einn af bautasteinum Kristjáns á at- hafnasviðinu. að ógleymdri Kassagerð Reykjavíkur, sem hann rak í mörg ár með Vil- hjálmi Bjarnasyni. en nú með syni sínum Agnari, mikið þjóð- þrifafyrirtæki, vel búið að vél- um og vinnukrafti. Eigi hirði ég hér upp að telja öll þau fyrir- tæki sem Kristján Jóhann hefur tekið þátt i að setja á stofn, styrkja, styðja og stjórna, en ég get þó ekki látið hjá líða að minna á skerf hans til þess aö Dagblaðið Vísir komst yfir mikla fjárhagsörðugleika en fagnar nú nýjum og bjartari degi sem annað útbreiddasta dagblað á íslandi. Helga dóttir Kristjáns er gift bandarískum lögfræöingi og eiga þau efnileg börn. Börn Agnars Kristjánssonar eru Krist- ján Jóhann yngri, er nýlega hef- ur lokið stúdentsprófi, og Leif- ur, sem les til stúdentsprófs í Verzlunarskóla íslands, en yngst er Agatha, 11 ára að aldri. Sesselja Dagfinnsdóttir, hin fríða og fágaða kona Kristjáns Jóhanns, tók við uppeldi bam- anna og bústjórn eftir að systir hennar, fyrri kona Kristjáns Jóhanns Agatha, féll frá á bezta aldri. Til þeirra er gott að koma að Hringbraut 32 og hlusta á kímnisögumar um Snæfellinga og aðra, sem Kristján Jóhann hefur ætíð á hraðbergi. Það er ekki nokkur efj á því aö það verður fjölmennt hjá afmælisbarninu í dag i húsa- kynnum Kassagerðar Reykja- víkur h.f„ því að maðurinn er vinsæli með afbrigðum. Ég sendi honum og fjölskyldu hans beztu heillaóskir i tilefni af afmælinu Páll S. Pálsson. * Tðnaður á íslandi á sér ekki langa sögu, en þeim mun viðburðaríkari. Þessi yngsti at- vinnuvegur okkar Islendinga hefur á skömmum tíma vaxið upp í það að vera bæði stærsti og fjölmennasti atvinnuvegur okkar í dag. Jafnframt bendir allt til þess að hann muni i framtíðinni verða sú atvinnu- grein, sem íslendingar verða að treysta á, eigi þeir að geta búið við viðunandi kjör í landi sínu. En saga einnar atvinnugrein- ar hlýtur fyrst og fremst að vera saga þeirra manna, sem ruddu brautina og mörkuðu spor með framtaki sínu og þeim nýjungum, er þeir inn- leiddu í atvinnulífið. Þannig er saga iðnaðarins saga þeirra manna, sem af framsýni, stórhug, þrautseigju og ríku hugi íyndaflugi, fóru inn á nýjar brautir í atvinnu- háttum. Einn þeirra manna, sem drýgstan þátt hefur átt f að skapa sögu iðnaðarins á íslandi er 75 ára í dag. Það er Kristján Jóhann Kristjánsson, oftast kenndur við Kassagerð sína, eins og Kassagerð Reykjavíkur er nefnd f daglegu tali. Hann er einmitt gæddur þeim kostum, sem iðnaðarmaður og iðnrek- andi þarf að hafa til þess að geta náö árangri I starfi sínu. Kristján Jóhann lærði tré- smíði og stundaöi þá iðn um árabil. en árið 1932 stofnaði hann ásamt Vilhjálmi Guð- mundssyni ' ssagerö Reykja- víkur. Eins og raunin hefur ver- iö með mörg okkar beztu iðn- fyrirtæki. var byrjaö smátt. Smíðaðir voru trékassar, sem negldir voru saman með hamri, en undir stjóm þeirra félaga og síðar Kristjáns Jó- hanns og sonar hans, hefur fyr- irtækið þróazt og dafnað og er f dag eitt glæsilegasta iðnfyrir- tæki þessa lands. Félags íslenzkra iðnrekenda ár- ið 1943, og kjörinn formaður árið 1945. Gegndi hann því starfi til ársins 1956. Á þessum árum lagði hann grundvöll að því starfi, sem síðan hefur ver- ið unnið á vegum Félags ís- lenzkra iðnrekenda. Hann hef- ur verið óþreytandi við að tala máli iðnaöarins og á drjúgan þátt í þeirri viðurkenningu, sem iönaðurinn hefur hlotið með þjóðinni. Kristján Jóhann hefur gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir iðnaðinn. Hann sat í stjórn Iðnaðarbankans fyrstu 10 árin og var formaður bankaráðs í 5 ár. Hann hefur m. a. einnig átt sæti í stjómum Iðnlána- sjóðs, Vinnuveitendasambands íslands og Verzlunarráðs ís- lands. Sem vott þakklætis og sem viðurkenningu fyrir störf hans í þágu fslenzks iðnaöar, var hann geröur heiðursfélagi Fé- lags íslenzkra iðnrekenda árið 1957 og er hann eini heiðursfé- lagi þess. Ég vil svo á þessum tíma- mótum flytja honum og fjöl- skyldu hans árnaðaróskir mín- ar og allra féíagsmanna í Félagi íslenzkra iðnrekenda. Ber ég um leið fram þá ósk, að iðnað- urinn og þjóöin öll megi enn lengi njóta starfskrafta hans. Ef iðnaðurinn ber gæfu til að hafa alltaf á meðal sín menn eins og Kristján Jóhann, mun okkur famast vel í landi okkar. Gunnar J. Friðriksson. Kristján Jóhann Kristjánsson tekur á móti vinum sfnum f kaffistofu Kassagerðarinnar kl. 5—7 í dag.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.