Vísir - 29.11.1968, Qupperneq 3
V1S IR . Föstudagur 29. nóvember 1968.
Hér ræðast við fyrir framan dyr hátíðasalarins þeir Sturla Friðriksson, Þorbjöm Sigurgeirs
son og Halldór Halldórsson forseti Vísindafélags íslendinga.
Þorsteinn Þorsteinsson fyrrum hagstofustjóri og Lúðvik
Kristjánsson ræðast við.
Yísindin efla alla dáð
V'isindafélag Islendinga 50 ára
TTm þessar mundir er Vísinda-
félag íslendinga 50 ára og í
þvl tilefni gekkst félagið fyrir
ráðstefnu sem haldin var í há-
tíðasal Háskóla fslands í gær
og fyrradag.
Vísindafélag I’slendinga var
stofnað 1. desember 1918 af 10
háskólakennurum. Þaö voru þeir
prófessorarnir Ágúst H. Bjarna
son og Sigurður Nordal, sem
höfðu stefnt til fundar þennan
dag öllum háskólakennurunum
„til að ræða stofnun félags, er
ynni að því að efla vísindalega
starfsemi hér á landi".
Myndsjáin var uppi í Háskóla
í gær um þaö leyti er félags-
menn komu til að sitja sfðari
hluta ráðstefnunnar. Prófessor
Halldór Halldórsson, núverandi
forseti félagsins var þar fyrir, og
um starfsemi félagsins sagði
hann:
„Starfsemi félagsins er í þrem
ur meginþáttum. 1 fyrsta lagi út-
gáfustarfsemi, í öðru lagi félags
fundir, þar sem flutt eru erindi
um einhver vtsindaleg efni, og
í þriðja lagi ráðstefnuhald á
borð við þetta, sem nú stendur
yfir.“
Halldór sagði frá því, að tala
félagsmanna hefði farið vax-
andi allt frá stofnun. Fyrst var
félagatalan hækkuð upp í 36, síð
an 48, því næst 72, og nú loks
84. Ekki er hægt að sækja um
inngöngu í félagið, heldur á-
kveða félagsmenn sjálfir, ef til-
efni þykir til að bæta einhverj
um í hópinn.
Hámarkstala félagsmanna er
sem sagt 84 — en félagamir eru
ekki svo margir heldur aðeins
69. Þar að auki eru f Vísinda-
félagi Islendinga „bréfafélagar",
það er að segja menn, sem eru
búsettir úti á landi eða f útlönd
um, svo að þeir hafa ekki tök á
að sitja reglulega fundi.
Rétt aður en ráðstefnan hófst
stóðu þeir, sem komnir voru, á
göngum Háskólans og skröfuðu
saman innan um- stúdentana,
sem voru á leið í kennslustundir,
sennilega einbelttir í þvf kð kom
ast sem fyrst inn í þennan harð
snúna hóp fræöimanna.
Jón Jónsson jarðfræðingur, Jakob Gfslason raf orkumálastjóri og prófessor Matthfas Jónasson
ganga inn á ráðstefnuna.
MYNDSJÁ
Náttúruvísindamenn þinga: Prófessor Sigurður Þórarinsson, Þorleifur Einarsson og Unnsteinn
Stefánsson,