Vísir - 29.11.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 29.11.1968, Blaðsíða 7
VIS IR . Föstudagur 29. nóvember 1968. 7 1 ö' ' ■ SS I morgun utlöiid í morgun útlönd : í raorgun útiönc í raorgun út.lönd ■D" Wilson neitar að liafa hótað að kveðja heim Rínarherinn — ef markið yrði ekki hækkað Wilson forsætisráðherra Bret- lands hefir neitað, að hann hafi í viðræöum við vestur-þýzka am- bassadorinn á dögunum, hótað að kveðja heim Rinarherinn brezka, ef markið yrði ekki hækkað. Wilson. Það var ekki smálítið , sem um þessa var birt í blöðum, m.a. sagt að ambassadorinn hefði veriö kvaddur á næturfund í Downing Street og svo mikið þótt við liggja að hann hefði komið þangað á náttfötunum! Ambassadorinn kom nú að vísu í „smoking“ —að því er síöar vitnaðist — en hvaö sem satt er eða ekki satt, gæti það sem gerðist haft einhver eftir áhrif, þegar Wilson fer í heimsókn sína til Bonn snemma á næsta ári. Wilson bar það til baka í neöri málstofunni allgramur, aö hann hefði haft í hótunum, og hefðu „ósannar upplýsingar" um fundinn komið frá Bonn. Forsætisráðherr- ann kvað það gagnstætt öllum venjum að skýra frá hvað geröist á slíkum fundum, — hann hefði rætt við ambassadora annarra ríkja yfir 100 sinnum og „aldrei orðiö fyrir öðru eins og þessu“. Gremja ábyrgra brezkra aðila stafar af því að vestur-þýzka stjóm hafi fyrir fund fjármálaráð- herranna tíu gert uppskátt um „lyf seðil sinn til lækningar meininu". En ljóst er, þótt ekki hafi veriö um hótanir að ræða, að Wilson mun hafa komið inn á stjórnmála- legar afleiðingar þess, að Bonn- stjórnin vildi ekki hækka markið og að þau áhrif gætu leitt til þess að taka yrði fyrir enn einu sinni útgjöldin viö að hafa brezkar her- sveitir í Vestur-Þýzkalandi. Wilson kvað það sem um þetta Bandarískt „tauga- stríð'' gegn N-Kóreu — til jbess oð áh'ófn Pueblo verði sleppt? hefði verið birt hafa verið alrangt og m.a. það, að Blankenhorn am- bassador hefði nánast verið „rif- inn upp úr rúmi“, til þess að koma á umræddan fund. Það liggur ijóst fyrir að þessi afstaða brezku stjórn- arinnar hefir engin áhrif haft á niðurstöður samkomulagsumleit- ananna í Bonn og helzt hefðu brezk stjórnvöld sennilega viljað, að ekk- ert hefði komið fram um þaö, sem geröist segir í skeytum frá London. Umræddur fundur var haldinn aö- faranótt 20. nóv. og sátu þeir fund inn Michael Stewart utanríkisráð herra og Roy Jenkins fjármálaráö herra. 'hodesíudeilan Wilson hafnar tilmælum um að afturkalla seinustu tiHógur Thomsons Wilson fosætisráðherra Bret- Iands hefir hafnað tilmælum all- margra þingmanna Verkalýðs- flokksins um að afturkalla tillögur, sem fram voru lagðar af Thomson ráðherra, í viðræðunum í Salisbury á dögunum, til lausnar Rhodesiudeilunni. Jafnframt endurtók Wilson, aö stjórnin myndi ekki hvika frá áð- ur fram lögðum grundvallar- atriðum, en þau eru 6 og hið helzta þeirra að skilyrði fyrir viöurkenn- ingu á sjálfstæöi Rhodesiu sé, að réttindi meiri verði tryggð. hlutans í landinu í Zambíu hefur lögreglulið og herlið verið sent til héraðanna, sem liggja að portúgölsku nýlendunni Angola. í héruðunum hefur verið óeirða samt, menn myrtir og hús í mörg- um þorpum brennd. Kaunda forseti kennir stjómar- andstæðingum um og segir þá hafa notað til hermdarverkanna lið þjálf uð í Angola, en þeirri staðhæfingu er neitað þar. 6 lönd hafa fengið vopn og skotfæri ólöglega frá Sviss Tilkynnt var opinberlega í gær , Slíkur útflutningur, sem hér var í Sviss, að tveir starfsmenn vopna-1 um að ræða, var óheimill að iög- og skotfæraverksmiðju hefðu játað á sig, að hafa falsað gögn til út-1 flutnings á hergögnum og skot- til færum til 6 landa. I um. Utflutningur þessi átti sér stað Nigeríu, sambandsríkisins, Egyptalands, ísraels, Líbanon, Saudi-Arabíu og Suður-Afríku. Það, sem út var flutt ólöglega, var: 5000 eldfiaugar, 350 loftvarna- byssur og 250.000 byssukúlur. New York: Bandaríkin hafa hrundið af stað dálitlu taugastríði gegn Norð ur-Kóreu í von um að það leiði til að áhöfninni af Pueblo verði skilað. Könnunarskipið Pueblo var sem kunnugt er tekið úti fyrir ströndum N-Kóreu í janúar og skipið kyrr- sett og áhöfn þess. Bandarískir erindrekar eru að sögn komnir til Rotterdam en þar er verið að smíða fyrir Norður- Kóreu tvö „móðurskip" fyrir fisk- veiðiskip, útbúin sem „fljótandi verksmiðjur“. Annað þessara skipa er um þessar mundir nær tiibúið til afhendingar og leggur brátt af stað í langferðina frá Hollandi til Noröur-Kóreu, en áhöfn er þegar komin til Rotterdam til þess að taka við skipinu. Erindrekarnir eru sagðir gefa í skyn, að þessi verðmætu skip kynnu að veröa tekin á leiöinni og ekki skiiað fyrr en aö minnsta kosti áhöfninni af Ppeblo (82 mönnum) veröi skilað. Ráðstafanir Jenkins rædd- ar / neíri málstohmri — Við atkvæðagreiðslu sigraði stjórnin með 40 atkvæða mun í neðri málstofu brezka þingsins var í gær rætt um þá ákvörðun fjármálaráðherra fyrir skemmstu, að innflytjendur greiði fyrirfram 50% andvirði innflutnings. Töldu málsvarar Ihaldsflokksins, að þetta jafngilti því að knýja innflytjendur til þess að veita rík isstjóminni vaxtalaus lán. Var það um ofangreint atriði. Við atkvæðagreiðsluna um sumar aðrar tillögur Jenkins efnahagnum Við atkvæðagreiðslu í iok um- tu stuðnings var meirihlutinn enn ræðunnar bar stjórnin sigur úr být j naumari, allt niður í 40. um með sextíu og eins atkvæöis I Um 20 þingmenn Verkalýðs- meirihluta. I flokksins sátu hjá. Farið fram á yfirlýsingu um, að Falklandseyjar verði ekki afhentar Argentínu íhaldsmenn í neðri málstofu j brezka þingsins hafa lagt fram til- j lögu til þingsályktunar varðandi Falklandseyjar. Er hún þess efnis, að stjórnin , lýsi yfir, að eyjaskeggjar þurfi J ekki að óttast, að yfirráð eyjanna j veröi fengin í hendur Argentínu, ! sem gerir kröfur til þeirra. Tillagan er fram komin vegna gruns, sem margir ala, um aö sam- komulag sé á döfinni um eyjarnar, en af hálfu stjórnarinnar var end- urtekið, að sú stefna hennar væri óbreytt, að eyjarnar verði ekki afhentar Argentínu gegn vilja eyjaskeggja. Greinargerö um afstöðu beggja ríkisstjórnanna er sögð væntanleg innan skamms. Heimshorna mil Þessi mynd var tekin einhvers staðar skammt sunnan hinnar svo kölluðu afvopnuðu spildu á mörk- um Norður- og Suður-Víetnam — á degi þakkarhátíðarinnar, sem árlega er i.aklin í Bandaríkjunum. Nokkuð hefur verið um bardaga á þessum slóðum að undanförnu, en engin stórátökin. Skotið hefur verið af sprengjuvörpum og fallbyssum frá stöðvum þar á bandarískt — og suður-víetnamskt Iið, en það mun og hafa farið inn á spilduna til þess að eyðileggja þar herstöðvar. ; LONDON: Stewart utanríkisráð- herra Bretlands sagði í gær í Raw- alpindi Pakistan, að þótt Bretar ætluðu á brott með herafla sinn frá stöðvum austan Súezskuröar, bæri ekki að skilja það svo, að þeir hefðu ekki áhuga fyrir vörn- um þcr, og þeir væru mótfallnir bví, að utanaðkomandi veldi tækju við því hlutverki, sem Bretar gegna þar. LONDON: Um 212.000 studentar verða við háskólanám í Bretlandi á nýbyriuðu háskólaári. Um 60.000 nýir stúdentar innrituðust. LONDON: í Sierra Leone hafa tvö blöð verið bönnuð og ritstjóramir handteknir. TEL AVIV: Flokkur 17 flugu- manna frá Jórdaníu var í fyrra- dag handtekinn á Hebron-landsvæð inu og forsprakkar þeirra. I förum þeirra voru vopn og sprengjur. BULAWAYO: í Bulawayo, Rho- desíu, hafa 8 Afríkumenn verið dæmdir í 20 ára fangelsi hver, fvr- ir að laumast inn í landið vopnaðir í þeim tilgangi að vinna þar hermd- arverk. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.