Vísir - 30.11.1968, Síða 13

Vísir - 30.11.1968, Síða 13
Martinus áíslenzku IJ't er komin hjá bókaforlaginu Leiftur h.f. „Heimsmyndin eilífa", 1. bók, eftir danska lífs- spekinginn Martinus. Martinus er íslendingum vel þekktur. Hann hefur komið hingað fimm sinnum og flutt hér erindi um kenningar sínar. Um bók sína „Heimsmyndin eilífa" segir hann m. a. f formála: „Þessi bók hefur að geyma í samþjöppuðu formi sjálfan kjam- ann í alheimsgreiningum mínum“. Heimsmynd Martinusar er sett fram í samfelldum rökfræðilegum hugsanakeðjum, sem fela í sér öll hin margbreytilegu afbrigði þróun- ar mannlegs vitundarlífs. Martinus sýnir fram á með óhrekjandi rök- um, að vilji maðurinn öðlast frið og lífshamingju, verður hann aö læra að þekkja sjálfan sig og þau lögmál, sem stjórna framvindu alls lífs. Hann verður að rannsaka þá orku, sem streymir út frá sjálfi hverrar lifandi veru og stendur að baki allri lífsbirtingu. Og það er útstreymi þeirrar orku, sem öllu ræður um velferð okkar og lífs- hamingju. Sé hún neikvæð, skapar hún það ástand, sem rikjandí er í heiminum í dag, allra stríð gegn öllum, er hvílir nú eins og mara á öllu mannlcyni. Er ekki skýringin einmitt sú, að mannkynið hefur ekki enn þann dag í dag fengið vistmunalegar skýringar á upp- byggingu alheimsins og þeim kosmisku lögmálum, sem stjórna framþróun alls lffs í alheimi? Hvar væru allar þær tæknilegu framfar- ir, sem fært hafa mannkyninu ó- metanleg gæði f lífsbaráttunni, ef vísindin hefðu ekki með rannsókn- um sínum, sem bundnar eru vits- munalegri þróun mannsins, öðlazt þekkingu á eðli efnisins og þeim lögmálum, er það lýtur? Án þekk- ingar engar framfarir. Hvemig má þá vera, aö hægt sé að stofna til friðar á jörðu hér, skapa það mannríki, sem Kristur boðaöi, nema með þekkingu og vitsmunalegum greiningum á þeim alheims lög- málum, sem stjóma framþróun alls lífs í alheimi og mannkynið verður að læra að þekkja og breyta eftir til þess að þetta ríki veröi að raun- veruleika. Martinus skilgreinir í þessu I. bindi — svo langt sem efni þess nær — hin helztu þessara raun- gilda eða lögmála, og eru þau út- skýrð með 16 táknmyndum í litum. Helztu niðurstöður heimsmyndar Martinusar eru: Lífið er eilíft. Allt er kærleikur Æðsta markmið lífs- ins er kærleiksboðorðið: „Elskið hver annan“, og það er það eina, sem leitt getur til fullkomnunar og fært heiminum hinn langþráða frið. Allt er lff umlukt lífi. Allt er háð ákveönum, óbreytilegum lögmál- um, sem stjórnast af alvizku og alkærleika guðdómsins. Gegnum óendanlega margbreytileg lífsgervi til skynjunar lífsins í öllum mynd- um, gegnum mismunandi lífs- og tiiverusvið, gegnum efnisleg og and leg lífssvæði, frá dimmum of köld- um hnöttum til heitra og sólbjartra heima, liggur vegur lífsins. Heimur formsins, lífsmyndirnar, breytast, en að baki þeim geislar og tindrar lífið, eilíft og ódauðlegt. Hver sá, er þráir skilning á eigin tilveru og þróun lífsins, þráir að'friður, rétt- læti og lífshamingja megi verða hlutskiptj íbúa þessarar jarðar, öðl- ast nýtt og bjartara lífsviðhorf viö að kynnast kenningum Martinusar. Þessi bók er gefin út í aðeins 500 eintökum, og ættu því þeir, sem áhuga hafa á þessum málum, að tryggja sér hana í tíma. Vignir Andrésson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.