Vísir - 16.12.1968, Síða 5
(
V1SIR . Mánudagur 16. desember 1968.
17
■Listir-Bækur-Menningarmál-
Jón Hjartarson skrifar bókmenntagagnrýni:
Alþýðleg fræðimennska
94Mi
Guðlaugur Guðmundsson
Reynistaðabræður
139 Ws.
Tjað má kalla í nokkuð ráöizt,
að fjalla á nýjan leik um
örlög Reynistaðarbræðra. Svo
margt hefur verið um þá atburði
ritað, bæði í ljóðum og lausu
máli, að erfitt mun að bæta um
betur.
Það er því engin furða, þótt
Guðlaugur Guðmundsson fari að
öllu með gát, þegar hann tekst á
hendur að skrifa sögu þeirra vá
legu atburða, sem gðrðust á 'Kili
árið 1780. Hann kannar vel stað
háttu, gerir sér ferð inn á Kjöl
til þess að skoða Beinhól, tínir
til allar munnmælasögur um
ferðir þeirra félaga, sem kostur
er á, flettir upp í veðurbókum
og tínir til fleiri heimildir.
Hann rekur stuttlega sögu
þeirra félaga, Reynistaðar-
bræðra og Jóns Austmanns í
upphafi sögunnar og hnýtir aft
an við hana ættartali Reynistaö
arbræðra.
Höfundurinn víkur hvergi frá
staðreyndum í frásögninni, þar
sem þær er á annað borð aö
hafa. Hann rekur nákvæmlega
ferðir þeirra félaga og fjárkaup
á Suðurlandi, staldrar við ýms-
ar sagnir, sem þar hafa geymzt.
Þessum sögnum fylgir jafna
römm forlagatrú. Fólk þykist
sjá fyrir váleg örlög þeirra og
sjálfir renna þeir grun í, hvað
verða vill. Einkum er það Einar
litli, sonur klausturhaldarans á
Reynistað, sem finnur á sér
hvílíkt feigðarflan þeir eru
að leggja út í. — En ekkert
tjóir að letja þá fararinnar. Þeir
leggja upp á hálendið í fylgd
Sunnlendinga meö feigðarspá.
Frásögnin er að sjálfsögðu
nokkuð bundin af þessum munn
mælasögum. Höfundi er annt
um að lýsa staöháttum sem ná
kvæmast, kennileitum á leið
þeirra og umhverfi. Verður því
sagan dálítið annálsleg, en þó
aldrei beinlínis þurr. Höfundur
gætir þess jafna að krydda hana
með líflegum lýsingum. Honum
er vel sýnt um að lýsa dýrunum,
kindum, hundi og hesti..— Nátt-
úrulýsingar hans eru jafna trú-
verðugar og aldrei yfirdrifpar.
Og hann talar um veðrið eins og
glöggur bóndi.
Sagan er þrátt fyrir allt hvað
líflegust á meöan höfundurinn
gétur stuðzt við staðreyndir og
munnmælasögurnar. Þegar þeim
sleppir, verður hún öll iausari
í reipunum. Mikið af endurtekn
ingum lopinn teygöur. Það er
eins og höfundurinn þori ekki
almennilega að magna söguna
neinum skáldskap nema þá rétt
að geta í eyðurnar. En öll er frá
sögnin sennileg, eins eftir að
staðreyndunum sleppir.
Bók þessi um Reynistaðar-
bræöur er öilu frempr rituð af
alþýðlegri fræðimennsKu en
skáldlegu innsæi. Hún er ekki
rishátt verk ^n vandað. Höf-
undur er sjálfum sér trúr allt
frá upphafi, heldur sig við jörö
ina ef svo má segja, en leyfir
sér hvergi að láta gamminn
geisa. Hann er einlægur og
traustur f frásögn sinni.
Þessi bók er á ýmsan hátt
vandaðri en hliðstæð rit um al-
þýðlegan fróöleik, bæði hvað
snertir meðferð söguefnis og frá
gang allan.
Hitt er svo annað mál, hvaða
erindi þessi bók á til fólks. Hún
varpar ekki neinni nýrri birtu
yfir þessa atburði, svo heitið
geti. Hún er öll þar sem hún er
sögð, staöreyndir og sennilegar
tilgátur um afdrif Reynistaðar-
bræðra. — Maður hefði haldið
að þessir -atburðir væru upplagt
efni í dramatískt skáldverk. Ó-
víst er hins vegar að fróðleiks-
þyrstir lesendur hefðu sætt sig
við slíka meðferö þessa efnis.
Hér hafa þéir bók, sem hægt
er að reiða sig nokkurn veginn
á og sætta sig við.
Jólaglansmyndir
á jólakort
LATR
LANDGRÆÐSLUSJÓDS eru komin — Salan er hafin
AÐALÚTSÖLUR LAUGAVEGI 7 OG FOSSVOGSBLETTI 1.
Iðnaðarhúsnæði
sem er á byrjunarstigi. Þeir, sem óska eftir að
eignast hluta úr iðnaðarhúsnæði (um 1000
ferm.), sem er á mjög góðum stað, sendi nöfn
og símanúmer til augl.d. Vísis fyrir n.k. laug-
ardag merkt „Bðnaður — 909“
Aðrir útsölustaðir í Reykjavík:
Vesturgata 6
Hornið Birkimelur — Hringbraut
Við Seglagerðina Ægi, Grandagaröi
Bankastræti 2
Laugavegi 54
Laugavegi 63
Jólabasarinn, Þverholti 5
Við Miklatorg, Eskihlíð A — Hagkaup
Verzl. Krónan, Mávahlíð 25
Blómabúðin Runni, Hrísateig 1
Verzl. Nóatún, Nóatúni
Erikablóm, Miðbær — Háaleitisbraut
Háaleitisbraut 68
Grænmetismarkaöurinn, Síöumúla 24
Við íþróttaleikvanginn í Laugardal
Blóm og grænmeti, Langholtsvegi 126
Borgarkjör, Grensásvegi 26
Viö Bústaðakirkju, Tunguvegi
Árbæjarblómið '
Heimakjör, Breiðholti.
í Kópavogi:
Gróðrarstöðin Birkimel v/Nýbýlaveg
Meltröð 8
Blómaskáíinn, Nýbýlav.-Kársnesbr.
Víghólastígur 24.
Birgðastöð Fossvogsbletti 1
Símar 40-300 og 40313.
Greinar seldar á öllum útsólustöðum
AÐEINS FYRSTA FLOKKS VARA
John leCarré: LAUNRAÐ um LA6NÆTTI
JOHN LE CARRÉ sýnir enn einu sinni í þessari bók, að hann er
snillingur, og George Smiley mun sannfœra lesendur urn það
enn einu sinni, að hann er með slyngustu söguhetjum, sem unnt
er að kynnast.
JOHN LE CARRÉ er höfundur metsöluhókanna: NJÖSNARiNN, SEM KOM
INN ÚR KULDANUM og NJÓSNARINN í ÞOKUNNI.
Bókaútgáfan VÖRÐUFELL