Vísir - 16.12.1968, Blaðsíða 6
V í S IR . Mánudagur 16. desember 1968.
18
MM
—Listir -Bækur -Menningarmáí-
y
Jón Hjartarson skrifar bókmenntagagnrýni:
TEYGÐUR LOPINN
Guðmundur Frímann
Stúlkan úr Svartaskógi.
Skáldsaga
207 bls.
Útg. Ægisútgáfan.
P uðmundur Frímann hefur ver
ið ið:nn við skriftir síð-
ustu árin éftir langt hlé, en hann
vakti fyrst athygli á sér fyrir
ljóðasmíð á kreppuárunum og
þótti sumt dágott eftir hann,
þótt aldrei kæmist hann á bekk
með stórskáldum.
Guömundur hefur sent frá sér
nokkur smásagnasöfn núna sein
ustu árin og í ár kemur út hans
fyrsta langa skáldsaga.
Stúlkan úr Svartaskógi ger-
ist til sveita, líklega einhvern
tíma um það leyti, sem stríöinu
er að ljúka, þegar vélmenningin
er að hefja innreið sína í sveit
imar. Sonur bóndans i Hamra-
koti, tvítugur rumur, tekur
skyndilega að kenna manndóms
síns, hamast við búverkin og
oyggir framtíöaráætlanir, sem
ofbjóða karli föður hans. — Og
svo pantar hann sér kaupakonu,
þýzka. Þá fer heldur betur að
færast líf i tuskumar. Hún er
rétt eins og goðinborin dís. All
ir strákamir í sveitinni verða
vitlausir í henni. Þar kemur þó
svo aö hún leiðir Bokka bónda
son í hjónasængina. Hann bygg-
ir sér hús. Og í þessu húsi
fokheldu standa þau skötuhjúin
í sögulok. Allt er í lukkunnar
velstandi, erfingi í vændum og
hamingjan í framtíðinni.
í flestöllum svona ástarsög-
um kemur upp eitthvert ógur-
legt vandamál, sem elskendum-
ir verða að yfirstfga til þess að
geta notizt. — Hér er ekkert
slíkt vandamál. Þetta rennur
allt farsællega beint inn í höfn
hjónabandsins og allir em á-
nægöir með alla. — Illugi karl-
sauðurinn er að vísu eitthvað að
hnusa, líkast til af öfund út í
soninn.
Allt er þetta gott og blessað,
en boðskapurinn í sögunni er
ekki skóbótarvirði. Og það er
svo sem afsakanlegt. Efnisþráö
urinn er næsta einfaldur og
margspunninn í ótal skáldsagna
tilbrigðum seinni ára. —Það
undrar mann hversu hægt er að
skrifa svo langt mál um ekki
meira efni. — Höfundurinn
spinnur upp langar hugrenning-
ar, sem hann lætur gera sig I
persónunum til skiptis. Oftast
þó í Illuga bónda f Hamra-
koti. Oftast er hann að þmgla
um vitleysuna í imga fólkinu.
Slíkt er ekki heldur neitt nýtt
af nálinni. Hins vegar býr höf-
undurinn yfir sérvizkulegu orða
lagi, sem oft á tíðum er
skemmtilegt. En víða er frásögn
in langdregin og þreytandi.
Að lestrinum loknum veit
maður ekkert hvað höfundurinn
er að vilja með þessari sögu
sinni, nema þá ef vera skyldi
að skemmta lesendum sfnum.
Rómantískir ástarleikir í sög-
unni eru kannski til þess falln
ir m.a. Spennandi getur sagan
þö naumast kailazt, til þess er
lopinn of teygður. Höfundur er
þarna að tyggja margtuggna
tuggu. Það er mergurinn máls-
ins. Það ætti höfundur að taka
til greina, ef hann heldur á-
fram sagnasmíð sinni. Er þá
kannski ekki fráleitt, að honum
tækist aö reka saman þokka-
legri skáldsögu.
Frágangur bókarinnar er
hvorki vandaöri né óvandaðri
en gerist og gengur I útgáfu hér
á landi. Fullmikið er þó um 6-
þarfar villur og svo ambögur I
máli, sem auðveldlega hefði
mátt snfða af. — Ósmekklegust
er þó baksíða þessarar bókar,
þar sem snúizt er við óvæginni
gagnrýni af bamalegum of-
stopa.
GÓLFTEPPAHREINSUN
HÚSGAGNAHREINSUN
Söluumboð fyrir;
VEFARANN
rEPPAHREINSUNIN
BOIHOITI í
Simar: 3S607 4123) ■ 34005
** Við ryðverjum ullur tegundðr bifreiðu — FIAT-verkstæðið
Látið okkur gufuþvo mótor bifreiðarinnar! Látið okkur gufubotnþvo bifreiðina! Látið okkur botnryðverja biíreiðina! Látið okkur alryðverja bifreiðina! Við ryðverjum með því efni sem þér sjálfir óskið. Hringið og spyrjið hvað það kostar, áður en þér ákveðið yður.
FIAT-umboðið
Laugavegi 178. Sími 3-12-40.
/
Félagsmenn sem greiða árgjald a) eða b)
velja sér tvær eða fjórar af þessum bókum. Auk þess fá
allir félagsmenn í kaupbæti nýtt hefti af bókaflokknum
Myndlist: Paul Gauguin (kemur út í marz). Þeir sem
kjósa bækumar bundnar þurfa að greiða aukagjald
fyrir bandið, en bækur 5)—6) og myndlistarbókin
verða aðeins heftar.
Með því að reikna tímaritið sem eina bók kostar hver bók'
(óbundin) félagsmenn tæpar 217 krónur ef þeir greiða ár-
gjald a), 200 krónur ef þeir greiða árgjald b) og.aðeins 183
krónur ef þeir greiða árgjald c), og er þá myndlistarbókin
ótalin. Verðið fer því lækkandi eftir því sem teknar eru fleiri
bækur.
Félagsliækur á árinu eru þessar:
1) Jarðfrœði, eftir Þorleif Einarsson.
2) VIðreistt í WadUöpiny, skáldsaga eftir
Hjalmar Bergman, þýdd af Nirði P. Njarðvík.
3) ttm íslenzhar fomsögur, eftir Sigurð
Nordal.
4) Sjödœgra, eftir Jóhannes úr Köthim.
5—6) „Pappírskiljur“ 1.—2. Bandaríkín og
þriðji heimurittn eftir David Horowitz,
Inngangur að félagsfræði eftir Peter L.
Berger.
Þrennskonpr árgjald sem félagsmenn
geta valið um:
a) Kr. 650,00: fyrir það fá félagsmenn Tímarit Máls
og menningar ,og tvœr bækur.
b) Kr. 1.000,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið og
fjórar bækur.
c) Kr. 1.280,00: fyrir það fá félagsmenn Tímaritið og
sex bækur.
ITOI MAL OG
V MENNING
M Laugavegi 18
argus auglýsingastofa