Alþýðublaðið - 28.01.1966, Blaðsíða 2
(gfmeimsfréttir
.........siáasfliána nótt
★ GENF: — Afvopnunarráðstefnan í Genf hófst að nýju í
<gær eftir fjögurra mánaða hlé á svipaðan hátt oc síðasta fundi
liennar lauk — með iiarðri árás sovézka fulltrúans, Semjon Tsarpa_
l:ins, á stefnu Bandaríkjastjórnar í Vietnam og Dóminíksa lýð-
veldinu. Johnson forseti hefur sent ráðstelnunni áætlun í sjö lið-
um er miðar að því að draga úr stríðshættunni og á að stuðla að
latgerri afvopnun í framtíðinni. Bæði hann, Páll páfi og U Thant,
iframkvæmdastjóri SÞ. skora á ráðstefnuna að ná samkomulagi um
Biann við útbreiðslu kjarinorkuvopna.
★ WASHÍNGTON: — Johnson forseti svaraði ákveðið játandi
Isegar hann var að því spurður í grær hvort Bandaríkjamenn gætu
bæði staðiff undir kostnaffinum í sambandi viff Vietnamstríffiff og
áætlanirnar er felast í hinu „stóra þjóðfélagi" Johnsons. En um
leiff varaffi forsetinn ákafar en áður viff því, aff aukin útgjöld í
Vietnam og skorlur á hófsemi í efnahagsmálum gæti leitt til
£kattahækkana.
★ WASHTNGTON: — Bretar hyggjast halda fast við gamlar
efculdbindingar sínar imx heim allan, en hægt er að gera breyt-
ángar á hennaðarskuldbindingunum austan Súezskurðar án þess
í'.ð valdahlutföllin raskist. Þetta var meginefni þess sem brezku
aáðherrarnir Stewart og Healey sögðu bandarískum embættis-
ájræðrum í Washington í gær, að því er igóðar heimildir herma.
★ SALISBURY: — Ian Smith forsætisráffherra lýsti því yfir
* gær, aff Rhodesíumenn mundu aldrei afsala sér sjálfstæði sínu.
Hann kvaðst þess fullviss, aff þjóðinni tækist að framfleyta sér
Tirátt fyrir hinar efnahagslegu refsiaffgerðir, þótt þaff kostaffi ó-
Itægindi. Hann kvaff þaff hafa snortið sig djúpt aff nokkur suður-
afrísk félög hefðu ákveðið aff gefa Rhodesíumönnum olíu. Rhod-
esíustjórn hefur ákveffiff að liverfa aftur til gullfótarins og yfir
gefa sterklingsvæðiff.
★ LONDON: — Meirihluti Verkamannaflokksins í Neðri mál
Atofunni jókst úr tveimur atkvæðum í þrjú við andlát eins íhalds
ti)ingsmanns í gær samtímis iþví sem kjósendur í Hull flykktust
í kjörstað að kjósa nýjan þingmanna í tvísýnum aukakosning-
iúm. En jafnvel þótt Verkamannaflokkurinn ibíði ósiigur í Hull er
■sjórnin ekki talin í 'hættu á næstilnni vegna dauða íhaldsþings-
-inannsins.
★ SAIGON: — Suffur-vietnamiskir hermenn hafa tekið 100
Uietcong-nýliða til fanga í þjálfundarbúffum á láglendinu ná-
1 tægt landamærum Kambódíu. 14 skæruliffar voru leiddir í bar-
dögum viff þessar leynilegu þjálfunarbúðir, og urffu Vietcong-
*itenn að láta undan síga. Mörg þúsund stjórnarhermenn tóku
Jóátt í þessum aðgerðum á landamærunum, en allt bendir til
tless aff Vietuongmenn hafi hafzt þar lengi viff.
Ný ráðstefna um
afvopnun í Genf
I Solisti Veneti
leika hér / kvöld
GENG, 27. janúar, (NTB-Raut-
er). — Afvopnunarráðstefnan í
Genf hófst að nýju í dag eftir
4’jögurra mánaða hlé á svipaffan
Mliátt og síðasta fundi hennar lauk
— meff harðri árás sovézka full-
írúans, Semjon Tsarpakins, á
i tefnu Bandaríkjanna í Vietnam
; Og Dóminíska lýffveldinu,
Sovézki fulltrúinn sagði að frið
arumleitarir Bandaríkjamanna
væru tilraun til að leyna áfram-
'lialdandi vígbúnaði í Viotnam.
Vsarapkin sagði á eftir, að ræða
CÍn hefði verið beiskjuleg en op
Liská. Tsarapkin hét því að at-
Km'ga 'gaumgæfilega uppkast að
-cammngi um bann við útbreiðslu
Ttjarnorkuvopna, sem lagt hefur
%erið fyrir ráðstefnuna. Þetta
.lerður sannilega mikilvægasta
unái ráffstefnunnar.
Ráðstefnunni 'hafa bor>zt orð-
sendingar m.a. frá Páli páfa. U
Thant framkvæmdastjóra SÞ, og
Johnson forseta Bandar'kjanna.
Bæði U Thant og Páll páfi skora
á ráðstefnuna að sameinast um
öruggar ráðstafalndr til að tryggja
friðinn og stöðva vígbúnaðarkapp
hlaupið.
U Thant kvaðst þess ýullviss,
að áfram mundi miða í viðræð-
unum um útbreiðslubann. þar
sem aðildarríki SÞ hefðu lagt á-
herzlu á nauðsyn öruggra og
skjótra ráðstafana til þess að
hindra frekari útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
Johnson forseti segir í boðskap
sínum til ráðstefnunnar, að þótt
fulltrúa hennar greini á um Viet
nam og ■ önnur mál sé það knýj
andi nauðsyn aff gerffar verði ráð
stafanir til að stöðva útbreiðslu
Framhald á 15. síffu
Reykjavík. — ÓTJ.
ÍTALSKA strengjasveitin „I
Solisti Veneti” heldur hljóvileika
í Austurbsejarbíói klukkan 9 í
kvöld. Hana skipa þrettán hljóö-
færaleikarar og stjórnandi, og hef-
ur sveitin haldist að mestu óbreytt
frá því aö þeir stofnuöu hana áriö
1959. Þeir hafa leikiö mjög víöa
í heiminum, og hvar scm þeir
koma, standa gagnfýnendur á önd-
inni af hrifningu.
Á fundi með fréttamönnum
sagði stjórnandinn, Claudio Schi-
mone, að þeir hefðu allir verið
nánir vinir áður en þeir stofnuðu
sveitina, hefðu lært saman og því
náið samband á milll þeirra. —•
Hefði þetta hjálpað þeim mikið
til þess að ná samstillingu í leik
sínum. Þessi strengjasveit er ísl.
tónlistaraffdáendum að góðu kunn,
því að hún kom liérna fyrir ein-
um tveimur árum síðan og ldaut
frábærar undirtektir þótt þeir
væru óheppnir með tímann, því að
tónleikarnir voru daginn, sem
Kennedy var myrtur. Var . því
færra en ella á tónleikunum, þar
sem margir liættu við að fara, en
vafalaust bæta þeir sér það upp
núna. I Solisti Veneti halda
tvenna tónleika liér, en þeir
síðari eru eingöngu fyrir styrkt-
armeðlimi Tónlistarfélags Garða-
hrepps. Þegar fundi fréttamanna
lauk voru listamennirnir á leið-
inni niður í Ríkisútvarp þar sem
upptaka átti að fara fram á leik
þeirra, og ætti það að vera nokkur
huggun þeim, sem ekki ná í miða
í kvöld og ekki eru styrktarmeð-
limir Tónlistarfélags Garðahrepps.
ítalirnir eru hér á vegum Skrif-
stofu skemmtikrafta, sem Pétur
Pétursson veitir forstöðu.
Reykjavík. — EG.
Á LISTANUM yfir þær vöru-
tegundir, sem innflutningur hefur
nú verið gefinn frjáls á, eru með-
al annars eldspýtur. Nokkurrar
óánægju hefur gætt með þær eld-
spýtur, sem hér hafa undanfarin
ár verið til sölu, en þær eru frá
Póllandi og Tékkóslóvakíu. Hefur
viljað brenna við, að eldspýturn-
ar brotni, þegar kveikt er á þeim,
eða hausinn splundrist af. Jón
Kjartansson forstjóri Áfengis- og
Wilson
ekki i
iiætlu
London, 27. janúar. (ntb-reut.).
Meirihluti V erkamannaflokks-
stjórnarinnar í Neöri málstofunní
jókst í dag úr tveimur atkvæðum
í þrjú vegna andláts eins íhalds-
þingmanns, Dame Edith Pitt, savv-
tímis því sem kjósendur í Hull
flykktust á kjörstað til þess að
kjósa nýjan þingmann í aukakosn-
ingum. Úrslitin frá Hull voru ekkl
væntanleg fyrr en í nótt, en jafn>
vel þótt Verkamannaflokkurinn
bíði ósigur er stjórnin ekki talin
vera í neinni hættu næstu vikr
urnar vegna andláts þingkonunnari
Dame Edith Pitts hafði 11.159
atkvæði meirihluta í kjördæml
sínu í Birmingham, og er hér um
að ræða eitt öruggasta þingsætl
íhaldsmanna. Verkamannaflokkur
inn vann aðeins með 1.181 atkvæða
mun í Hull-kjördæminu í síðustll
kosningum. Flestir stjórnmála-
fréttaritarar töldu í dag, að
Verkainannaflokkurinn mundl
halda kjördæminu og sennilega
auka meirihluta sinn í um 4000
atkvæði. Verkamannaflokkssigur
eykur sennilega möguleikana á
nýjum þingkosningum innan
skamms.
SÍÐUSTU FRÉTTIR.
Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins vann glæsilega í Hull
með 5351 atkvæðis meirihluta
fram yfir frambjóðanda íhaids-
flokksins.
tóbaksverzlunar ríkisins tjáði AI-
þýðublaðinu í gær, að engar á-
kvarðanir hefðu verið teknar
með innflutning á eldspýtum frá
öðrum löndum, en búast mætti
hins vegar við, að eldspýtnabrél
kæmu hér á markað í framtíð-
inni.
Forstjórinn sagði, aff Áfengis-
og tóbaksverzlunin mundi aff
sjáifsögðu gera samanburði á verði
og innkaupakjörum eldspýtna frá
öðrum löndum, nú þegar innflutn-
ingurinn hefði verið gefinn
frjáls, en á þessu stigi máls væri
ekkert hægt að fullyrða um hvort
! hafinn yrði eldspýtnainnflutning-
j ur frá öðrum löndum, en íslend-
I ingar flytja nú árlega inn cld-
spýtur fyrir allmargar milljónir
króna. Þegar niðurstöður þesa
samanburðar lægi fyrir, sagði Jón
Kjartansson, að innkaupum yrði
hagað eftir því hvar ódýrastar eld
spýtur yrði að fá og hvað bezt
Framliald á 15. síffu
<>0000000000000000000000000000000
Spilakvöld í Reykjavík
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur spilakvöld í
kvöld og hefst þaff klukkan 8,30. Spiluff verffur félagsvist,
Njörffur Njarðvík flytur ávarp og aff lokum verffur stiginn dans. Y
Fólk er hvatt til aff mæta stundvíslega. ^
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
ELDSPÝTNABRÉF
SENN SELO HÉR
2 28. janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ