Alþýðublaðið - 29.01.1966, Qupperneq 7
Sótbíásturinn frá
díesel-bílunum
„Eftir að sett voru ákvæði um
að díesel-bílar ekki viegi spúa frá
sér reyk og sóti takmarkalaust,
hafa bifreiðaeftirlitsmenn og lög-
regla athugað um 4000 díesel-bíla.
Við athugun kom í Ijós, að út-
blásturinn frá 30—40% þessara
bíla var óhreinni, en reglurnar
sögðu t.il um, og varð því að líta
á þá sem hættuleg tæki í umferð-
inni.”
Er þessi klausa tekin úr ís-
lenzku blaði? Nei, að sjálfsögðu
★ í Noregi hefur verið komið
á fót sérstökum skóla, sem gegna
á því hlutverki, að kenna mönnum
að aka í snjó og hálku og hvernig
á yfirleitt að hugsa um bila á vetr-
um og hvað gera þarf svo menn
þurfi ekki að óttast að bilar þeirra
ekki fari í gang í kuldaköstum.
Aðsókn að skólanum hefur verið
mjög mikil og mun meiri en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona.
★ 26 ára gamall Bandaríkja-
maður Butch Sum hefur sett nýtt
hraðamet í bifreið sinni. Hann ók
með 654 kilómetra hraða á klukku-
stund, og er það 10 kílómetrum
hraðar en Donald Campell ók, er
hann setti hraðamet í fyrra.
Það œtti ekki að þurfa að taka
jþað fram að billinn, er hann ók var
ekki af neinni venjulegri gerð,
heldur sérstaklega smíðaður og
knúinn 4 Chrysler mótorum.
ekki. Bílafjöldinn einn gefur til
kynna að svo er ekki, og svo hefur
heldur ekki heyrzt, að bifreiða-
eftirlitið íslenzka, eða lögreglan
hafi gert sérstakar ráðstafanir
gegn hinum ótalmörgu díeselbíl-
um sem spúa hér reykjarsvælu
og sóti yfir allt og alla, í trássi
við reglugerðarbann.
Það þótti ýmsum tími til kom-
inn þegar ákvæði voru sett í reglu
gerð um útblástur díesel-bílanna.
En þótt fallegt sé og gaman að
eiga margvísleg reglugerðar-
ákvæði á prenti, þá er harla lítið
gagn í þeim, ef ekki er einu sjnni
gerð tilraun til að framfylgja þeim.
Greinarstúfurinn hér að ofan er
tekinn úr norska Arbeiderbladet
fyrir nokkrum dögum og sést þar,
að Norðmenn hafa tekið þessi
mál fastari tökum, en nokkurn
mann hér virðist dreyma um.
Enda hafa menn þar gert sér ljósa
þá hættu, sem stafar af þessum
skítuga útblæstri díeselbílanr.f J
og gerðar eru ráðstafanir til vernd-
ar almenningi.
Er það til of mikils mælzt, að
framfylgt sé reglugerðarákvæðum
í þessum cfnum? Ef til vill er
það svo. Meðan yfirvöld hér láta
sig hafa það, að þegja þunnu hljóði
um ýmsan öryggisbúnað í sam-
bandi við bifreiðar og láta það
jafnvel viðgangast að öryggis-
belti séu tekin úr flest-
um bandarískum bílum, sem hing-
að eru fluttir, er þess líklega ekki
að vænta, að öllum reglugerðar-
ákvæðum sé framfylgt.
<xk>ooooooo<x>ooooooooooooooooóooo
Bifreiðaeign
og vegakerfi
Eftirfarandi töflur eru teknar úr ræðu, sem Egill Gests-
son formaður samstarfsnefndar tryggingarfélaganna hélt á
umferðarmálaráðstefnunni um sl. helgi: ,
Fjöldi ibúa á hvern bíl:
Ár íbúar á bíl
1915 6.000
1930 75.9
1940 47.1
1950 13.4
1960 8.2
1965 5.6
Ár Ibúar Bifreiðir Akfærir vegir
1915 90.000 15 500
1930 109.000 1430 2.500
1940 112.000 2600 5.400
1950 144.000 10700 7.900
1960 177.000 21600 10.900
1965 194.000 34500 12.100
oooooooooooooooooooooooooooooooo
Eins og sjá má á þessari mynd hefur Mercedes Benz árgerð 1966 tekiff talsverðum breytinsum,
en Benz verksmiffjurnar breyta ekki á hverju ári, tins og ýmsar affrar bíiaverksmið'jur heldur Iíður
ævinlega lengri tími, oftast um 5 ár milli þess sem stórbreytingar eru gerffar.
Meira til gamans
en verulegra nota!
Á umferðarmálaráðstefnunni, er
haldin var að Hótel Sögu um sið-
astliðna helgi kom margt fróð-
legt fram. Meðal annars hélt Egill
Gestsson formaður samstarfsnefnd
ar tryggingafélaganna erindi þar
sem hann vitnaði í ýmislegt úr bók
Guðlaugs Jónssonar lögregluþjóns,
„Bifreiðir á íslandi,” þar sem ítar-
lega er greint frá umræðum á Al-
þingi um aðdraganda þess er fyrsta
bifreiðin var keypt til íslands.
Ekki voru allir á einu máli um
fjárveitingu til bifreiðakaupanna
og sagði þá einn háttvirtur þing-
maður: „Því fæ ég eigi annað séð,
að fjárveiting þessi yrði til annars
en að myrða bæði fólk og fé, þar
sem þessir vagnar mundu naum-
lega geta verið notaðir án þess
að slys yrði að .... ”
Margir kvöddu sér hljóðs um
þetta stórmál og ekki er meiri
bjartsýni fólgin í þessum orðum
annars þingmanns: ,,Ef þingið veit
ir þessa fjárhæð (til að styrkja
Detlev Thomsen til að kaupa fyrsta
bílinn hingað til lands) þá munu
verða fleiri jarðarfarir árið 1905
en nokkru sinni áður svo það
yrði mesta nauðsyn að fjölga prest
um til að jarða alla þessa menn
og læknum, þó ekki væri til ahn-
ars en að gefa dánarvottorð.”
Það er sem sé augljóst af þessu,
að menn voru ekki ýkja bjartsýn-
ir á framtíð bifreiðanna á íslandi,
en samt voru ýmsir sem gerðu
sér fullkomlega ljóst hvert þarfa-
þing var hér á ferðinni, og beittu
sér fyrir stuðningi við það.
Á árinu 1914 var samþykkt á
Alþingi lagafrumvarp um notkun
bifreiða, og tóku lögin gildi fyrri
hluta árs 1914.
Enn höfðu fjölmargir þingmenn
samt megnustu óbeit á bifreiðum
og öllu sem þeim fylgdi.
Magnús Kristjánsson þingmað-
ur Akureyringa sagði til dæmis í
★ í Ungverjalandi hefur verið
tekinn upp sá siður, að birta nöfn
þeirra kvenna sem gerast sekar um
gáleysislegan akstur. Sagt er að
•þetta gefi góða raun. ,en hins vegar
fylgir það ekki sögunni hvort karl-
menn séu undanþegnir þessum á-
kvæðum eða ekki. Aðeins er
minnzt á kvénfólk.
★ Bedford verksmiðjurnar
brezku eru stærstu útflytjendur
vörubifreiða í heiminum. S. 1. ár
fluttu verksmiðjurnar út um 45%
af allri vörubílaframleiðslu sinni.
umræðum um þetta frumvarp:
,,Ég skal skjóta því hér inn í, að
ég álít, að bifreiðir geti aldrei
orðið nein framtíðar flutninga-
tæki, sem að almennum notum
yrðu hér á landi.”
í fyrstu var almennt litið á bif-
reiðir, sem skemmtitæki eða lúx-
us og því var það að einn hátt-
virtur þingmaður sagði um þær:
„Þær verða ævinlega meira til
gamans, en verulegra nota.”
★ Volkswagen á síauknum vin-
sældum að fagna í Noregi og í des-
ember s.l. voru 16,5% nýskráðra
bila í Noregi af þeirri gerð, en í
næsta sæti var Opel Kadett með
9,8%.
★ Tóyota verksmiðjurnar i Jap-
an fengu nýlega Deming-verðlaun-
in sem þar í landi njóta mikiis
álits og veitt eru því fyrirtæki,
sem árið áður er talið hafa haft
bezt gæðaeftirlit í framleiðslu
sinni og fylgzt bezt með því; að
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. janúar 1966 J