Alþýðublaðið - 08.05.1966, Qupperneq 11
Ritstióri Örn Eidsson
<l§> MELAVÖLLUR fl
Reyk j avíkurmótið
VALUR - VÍKINGUR
í kvöld kl. 20.30
Dómari: Baldur Þórðarson
Línuverðir: Sölvi Óskarsson og Páll
Pétursson.
Á MORGUN, mánudagskvöld
FRAM - KR
kl. 20.30.
Dómari: Magnús V. Pétursson
Línuverðir: Björn Karlsson og Björn Krist-
jánsson. ;;
MÓTANEFND K.R.R.
GÆZLUKONUR
óskast til starfa á barnaleikvöllum í sumar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir n.k.
fimmtudag.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Akureyri Saabsöluumboð
Söluumboð á Akureyri hefur
Tómas Eyþórsson c/o Veganesti.
SAAB-umhoðið
Sveinn Björnsson & Co.
Reykjavík.
Reykjavíkurmeistarar Fram, sem sigruðu íslandsmeistara FH í fyrrakvöld.
Fram vann Islands-
meistara FH 25-23
Framtíðarstarf
Starfsmaður óskast á skrifstofu stöðvar-
stjóra félagsins á Beykjavíkurflugvelli.
Góð málakunnátta nauðsynleg. Þarf að geta
unnið sjálfstætt. Nokkur reynsla í skipu-
lagsmálum æskileg. Kaupkröfur óskast.
Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstof-
um félagsins, sé skilað til Starfsmanna-
halds fyrir 15. maí n.k.
FRAM- sigraði nýbakaða íslands
meistara FH með 25 gegn 23 í
íþróttahöllinni. Leikur þessi var
háður í fjáröflunarskyni vegna ut-
anfarar landsliðsins til Banda-
ríkjanna í næstu viku. Áhorfend-
lir voru allmargir.
1 Nokkur forföll voru í báðum lið-
lim, hjá FH vantaði þrjá sterka
menn, þá Geir Hallsteinsson,
Karl M. Jónsson og Ragnar Jóns-
son, en Framarar léku án Sigurð-
ar Einarssonar, Tómasar Tómas-
★ Frakkland vann Vestur-
|>ýzkaland 1 gegn 0 og Rúmenía
Austurríki með sömu markatölu í
Jandsleikjum unglinga.
!■
★ Irvine, Burnley var marka-
hæstur í ensku knattspyrnunni,
hann skoraði 37 mörk. Næstur
kemur Hurst, West Ham. með 38
og þriðji er Hunt úr Liverpool
með 28 mörk.
★ Danek, Tékkóslóvakíu, hef-
lir kastað lengst 64,24 á þessu
eumri. Heimsmet hans frá í fyrra
er 65,22 m.
Eyjólfur K. Siguriónsson,
löggiltur endurskoðandþ
Flókagötu 65. — Síml 1790S.
sonar og Gylfa Hjálmarssonar.
FH byrjaði leikinn vel og að
nokkrum minútum liðnum var
staðan 6—2. En þetta breyttist
smám saman, Fram saxaði á for-
skotið og komst yfir 12—11. FII
átti þó síðast orðið í hálfleiknum
og hafði einu marki betur í hléi,
13 gegn 12.
Framarar byrjuðu síðari hálfleik
glæsilega og skoruðu fjórum sinn-
um án þess að FH svaraði í sömu
mynt, 16—13. FH tókst nokkrum
sinnum að minnka muninn í eitt
mark, en Fram var ávallt sterkari
aðilinn og vann verðskuldað, 25
gegn 23.
Gunnlaugur var eins og áður sá
leikmaður í liði Fram, sem mest
kvað að og skoraði flest mörkin
eða alls tólf.
Hjá FH var það Birgir, sem
mest vann og hann er greinilega
að komast í sitt gamla form.
Björn Kristjánsson dæmdi
leikinn.
í forleik léku Víkingur, nýlið-
arnir í I. deild og KR, sem féll
niður í 2. deild. KR-ingar voru
mun betri í fyrri hálfleik, 11-6,
en Víkingur minnkaði bilið mjög
í síðari hálfleik. Leiknum lauk þó
með verðskulduðum sigri KR, 19
gegn 17.
Frjálsíþróttanám-
skeið KR-inga
Frjálsíþróttadeild KR efnir til
námskeiða í frjálsíþróttum fyrir
unglinga á aldrinum 12-16 ára á
íþróttasvæði félagsins við Kapla-
skjólsveg og hefst föstudaginn 13.
maí næstk. kl. 8,30—10. Kennt
verður á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum.
Þjálfari verður hinn góðkunni'
þjálfari féiagsins Benedikt Jak-
obsson, og honum til aðstoðar
verða nokkrir þekktir frjálsíþrótta
menn, svo sem Valbjörn Þorláks-
son, Svavar Markússon, Sigurður
Björnsson, Einar Frímannsson ofl.
í lok námskeiðsins 21. maí fer
fram sveinameistaramót Reykja-
víkur 1966 og geta allir tekið þátt
í því sem vilja.
Frjálsíþróttadeildin væntir þess
að allir þeir sem tóku þátt í inn-
anhússnámskeiðunum sl. vetur,
komi á þetta námskeið svo og aðr-
ir nýir menn er áhuga hafa á í-
þróttum fyrir hrausta unga menn.
Íslandsglím-
unni frestað
Íslandsglíman, sem fram
átti að fara í dag, hefur ver
ið frestað þar til á laugar-
dag. Hún verður háð í Aust
urbæjarbíói. Þess skal getið,
að á þessu ári eru 60 ár
liðin, síðan fyrst var glímt
um Grettisbeltið. Fyrsti sig-
urvegari var Ólafur V. Dav-
íðsson.
MHMHMmWUMHHMIMW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. maí 1966