Alþýðublaðið - 12.05.1966, Page 4
Á
mmm
RtbtJóríJ". Gylíi Gröndal (4b.) oí Benedlkt GrBndal. — RKstjiirnarfuU-
triU: EiBur GuSnaaon. — Slmar: 14900-14903 — Auglýatngaalml: 1490«.
ASaetur AlþýSubúslO vlO Hverflsgötu, Reykjavflt. — PrentamlSja AlþýOu
blaSalna. — Askrlftargjald kr. 95.00 — 1 lausaaölu kr, 6.00 BlntakíO.
Utgefandl AlþýOuflokkurinH.
Síldcrrverð i Noregi
NORSKA BLAÐIÐ „FISKAREN“ skýrði svo frá
fyrir nokkrum dögum, að samningar stæðu yfir milli
ríkisstjórnarinnar annars vegar en sjómanna og út-
gerðarmanna hins vegar um aðstoð norska ríkisins
við fiskveiðamar. Sagði blaðið, að fulltrúar sjó-
manna og útgerðarmanna hefðu slakað á kröfum
sínum um aðstoð sem nemur 50 milljónum norskra
króna, er jafngildir um 300 milljónum íslenzkra. Er
ætlunin, að þessi ríkisstyrkur verði tekinn af þeirri
síld, s-em lögð verður upp í verksmiðjur til bræðslu.
Aí þessum fregnum kemur fram, að í Noregi
hafa til þessa verið stórfelldir ríkisstyrkir, meira að
segja á bræðslusíld, sem hér á íslandi hefur verið á-
góðasamasti hluti allrar útgerðar síðustu ár. Enda
þótt Norðmenn treysti sér nú til að lækka uppbæt-
ur á bræðslusíld, er ætlun þeirra samkvæmt frásögn
„fiskaren“ að hafa ákveðna upphæð (en „pott“ eins
og Norðmenn kalla það) til ráðstöfunar í styrki til
bræðslusíldar, þar sem þess er talin nauðsyn.
Enda þótt lækka eigi ríkisstyrk á bræðslusíld,
fylgir fregninni, að ekki verði dregið úr uppbót-
um á aðra síld og skyldar fisktegundir. Hafa samning
ar um þessi mál verið hinir hörðustu, að því er hið
norska blað segir.
Oft er talað um, að síldar- og fiskiverð til sjó-
manna og útvegsmanna sé hærra í Noregi en það hef
ur verið á íslandi. Þær upplýsingar, sem hér hafa
verið nefndar, eru án efa veruleg skýring á þeim
mun. Norska ríkið greiðir stórupphæðir í uppbæt-
ur með fisk- og síldarverði og heldur því uppi. Ekki
þarf að efast um, að síldarverð mundi hækka veru-
lega hér á landi, ef 300 milljónir væri greiddar úr
ríkissjóði f uppbætur með bræðslusíld.
Neyzlufiskur
FISKLEYSI í Reykjavík er einhver bvimleiðasti
vandi, sem húsmæður borgarinnar þurfa við að
istríða. Mundi erfitt að sannfæra aðkomumenn um
að það geti hugsanlega verið erfitt að sjá ekki
istærri borg fyrir neyzlufiski, þegar borgin er reist
rétt við ein mestu fiskimið veraldar.
Björgvin Guðmundsson hefur minnzt á þessi mál
í skrifum sínum í Alþýðublaðinu, og ýmsir fleiri hafa
valfið á því 'athygli. Til dæmis hefur komið fram sú
hugmynd, að Bæjarútgerð Reykjavíkur tæki að sér að
leysa þennan vanda á einn eða annan hátt. Þarf þá
að gera ráð fyrir, að þær 'aðgerðir kosti eitthvað og
má ekki líta eingöngu á slíkt mál frá gróðasjónar-
miði. Þjónusta við almenning á ekki að vera gróða-
lind. Borgarstjómarmeirihlutinn er ótrúlega þröng-
sýnn í þessu máli, en á vonandi eftir að heyra rödd
húsmæðra.
4 12. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar
Seljum næstu daga allar okkar vörur á heildsöluverði, þar sem
loka á verzluninni um óákveðinn tíma. — Notið þetta einstæða
tækifæri.
Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar
Austurgötu 2, Hafnarfirði.
Páll
Framhald af 5. sífíu.
um 100 rúm fyrir allt Reykja-
víkursvæðið í dag, og þar af
a.m.k. 50 fyrir slys eingöngu ef
með eru talin höfuðslys.
Slysadeild í sambandi við Slysa
varðstofu (þyrfti því að hafa 50
sjúkrarúm ef hún ætti að ann-
ast það. hlutverk er hér hefur
verið rakið. Hér verða þessi mál
ekki rædd í smáatriðum, en þess
ar hugleiðingar leiða að því hug
ann, að nauðsyn ber til að ríki,
sveitarfélög og einstaklingar er
annast sjúkrahúsrekstur og heil-
brigðisþjónustu skipti með sér
verkum um hin ýmsu svið þess-
ara starfa. Æskilegast væri að
sjálfsögðu að samvinna væri milli
þessara aðila, en reynslan hefur
sýnt að slíkrar samvinnu er varla
að vænta.
P. Sig.
Óskar
Framhald úr opnu.
sem leita verði lausnar á eftir
félagslegum leiðum og með
fjárhagslegum stuðningi ríkis
og sveitarfélaga.
Alþýðuflokkurinn varð fyrst-
ur stjórnmálaflokka hér á landi
til þess að móta þessa stefnu
og vinna henni fylgi með þjóð-
inni.
Jafnaðarmenn hafa alla tíð
látið sig húsnæðismólin miklu
skipta, þæði á Alþingi og í
borgarstjórn og tekizt að þoka
fram verulegum umbótum á
þessu mikilvæga sviði.
Þessari baráttu mun
Alþýðuflokkurinn halda áfram.
, Endanleg lausn húsnæðismála í
velferðarríki mun sjálfsagt al-
drei finnast. Umbóta mun því
ávallt þörf. Að þeim munum
við vinna hér eftir sem hingað
til.
Alþýðuflokkurinn heitir á
Iiðveizlu allra umbótasinnaðra
manna, kvenna sem karla og
ekki sízt unga fólksins, sem
mest á undir því að húsnæðis-
mólin komist í eðlilegt horf.
Bifreiðaeigend ur
sprautum og réttum
Fljót afgreiðsla.
Bifreiðaverkstæðið
Vesturás h.f.
Síðumúla 15B, Sími 35740.
Símar: 23338 og 12343
KAUPMENN
OG KAUPFÉLÖG
Fyrirliggjandi:
Mjög fallegt úrval af kjóla-, pilsa-
og blússuefnum.
Kr. Þorvaldsson & Co heildv.
Grettisgötu 6 — Símar 24730 og 24478.
KAUPMENN
OG KAUPFÉLÖG
Fyrirliggjandi:
Fallegt úrval af hvítu og mislitu
silkidamaski.
Kr. Þorvaldsson & Co heildv.
Grettisgötu 6 — Símar 24730 og 24478.
KAUPMENN
OG KAUPFÉLÖG
Fyrirliggjandi:
Dúnhelt og fiðurhelt léreft.
Kr. Þorvaldsson & Co heildv.
Grettisgötu 6 — Símar 24730 og 24478.
Söluskattur
Dráttirvextir falla á söluskatt fyrir 1. ársfjórðung 1966,
svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila,
'hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagl fyrir
15. b.m
'Dráttarvextirnir eru V/2% fyrir hvern byrjaðan mán-
uð frá gjalddaga, sem var 15. apríl s.l. Eru því
lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16.
þ.m.
Hefst þá án frekari fyrirvara stöðvun atvinnurekstrar
þeirra, sem eigi hafa skilað gjöldunum fyrir lokun
skrifstofunnar laugardaginn 14. þ.m.
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN
Arnarhvoli.