Alþýðublaðið - 12.05.1966, Blaðsíða 10
Vormót
Framhald *I 5. sfðn
vera staersta verkefni Þjóð-
Jeikhússins fram á þennan
dag. En hann er sýnilega afburða-
maSur á sínum stað og leysir þetta
erfiSa, margbrotna viðfangsefni
af hendi með sama glæsibrag og
hið fyrra, sýningin ber vitni um
hugkvæmni og listræna árvekni
leikstjórans. Eina verulega mis-
fellan á henni stafar af öldungis
ófullnæfíjandi meðferð textans
sem gengur með köflum svo langt
að torvelt eða ómögulegt er að
fylgja söguþræðinum. Eru lang-
flestir leikendur undir þessa sök
seldir þó þeir hafi ekki jafngilda
afsökun og Magnús Jónsson sem
áður hefur sungið hlutverk Hoff-
manns á dönsku. Guðmundur Jóns-
son og Svala Nielsen skáru sig
ein úr og fluttu texta sinn á-
lieyrilega.
Um söngmennt er ég sem sagt
ekki bær að dæma, og læt mér
nægja að nefna nokkra söngvara
á nafn sem ég hafði mesta á-
nægju af að hlýða á. Og þar verða
þau Guðmundur Jónsson (Lind-
orf) og Svala Nielsen (Antonia)
aftur efst á blaði, fara bæði með
tilþrifum með hlutverk sín, fag-
urri söngrödd og góðum leikgáf-
um. Sýnilega er Svala Nielsen
upprennandi óperustjarna okkar
Magnús Jónsson er álitlegur
maður á sviðinu og hefur góða
framkomu en söngur hans hreif
mig ekki, né Þuríðar Pálsdóttur
ÍGiuliettu). Guðmundur Guðjóns-
son virtist mér hins vegar mjög
fikemmtilegur í kátlegu gervi upp-
finningamannsins Spalanzani, Ey-
gló Yictorsdóttir fór með furðu-
mikilli glettni með brúðuna Olym
piu dóttur hans, og það sópaði að
Jóni Sigurbiörnssvni í hlutverki
Crespels í þriðja þættinum, þætti
Antóníu. s)'m líklega er sá
áhrifamesti i sýningunni. Aðrir
verða ónefndir og því ólofaðir sem
vert væri — en vert er að geta
þess að söngfólk Þjóðleikhússkórs-
ins mætti vera léttara í vöfum
i upphafsþáttunum.
Leikmyndir sýningarinnar hef-
ur leikstjórinn sjálfur gert, falleg
og hugkvæmnisleg verk í róman-
tískum anda leiksins. Hann hefur
reynzt Þjóðleikhúsinu hinn þarf-
asti gestur í ár eins og í fyrra, og
er vonandi að leikhúsið eigi oftar
eftir að njóta verka hans, hvort
sem starf hans verður upphafið að
enn veglegra óperustarfi í Þjóð-
leikhúsinu en á hinum árlegu vor-
blótum til þessa. — ÓJ.
Sýning
Framhald úr opnu.
Eldon og er vel gerð. Meðal ann
arra teikninga ber að nefna mynd
irnar af Brynjólfi Jóhannessyni,
Jóhannesi Kjarval og Óskari Claus
en. Þær eru allar prýðilegar, þetta
eru að vísu skopmyndir, en snyrti
lega gerðar og særa engan. Þessi
sýning Helga Bergmanns er vissu
lega þess virði að menn gefi henni
gaum. Hún er yfirlætislaus en veit
ir frá sér góðum áhrifum.
Eggert K Laxdal.
Ábyrgð
Framhald af 1. síðu
galla. Það skyldi enginn gera. Neyt
endablaðið, Nr. 3 1965, sem út
kom í nóvember þ.á., fjallar sér
staklega um þessi efni. Nýir fé-
lagsmenn fá það við innritun, sem
auk skrifstofu samtakanna getur
gerzt í bókaverzlunum í miðbæn
um og um land allt. Árgjald 19
66 er kr. 200. —.
Séu menn í vafa um gildi á
byrgðar sem boðin er, skulu þeir
hvattir til að sýna Neytendasam-
tökunum ábyrgðarskírteinin. Fái
þeir þau ekki lánuð; ef«kaup eru
fyrirhuguð, gæti það verið frá
gangssök, hvað kaup snertir.
(Frá skrifstofu Neytendasamtak
anna.)
Framhald af 2. síðu.
urða kemst á smám saman og verð
ur tollur á hinum ýmsu afurðum
afnuminn á ýmsum tímum, en
byrjað verður á að lækka tolla á
olífuolíu 1. nóvember nk. Hinn
l. júlí 1968 verða tollar aðildar-
ríkjanna endanlega samræmdir
við hinn sameiginega tollmúr EBE
gagnvart öðrum löndum. Árlega
verður varið í mesta lagi 285 millj
ónum dollara til breytinga á ný
tízkuhorfum í landbúnaði aðildar
ríkjanna og mun þetta fé koma ít
ölum að mestu gagni.
Samningurinn er hins vegar
ekki endanlegur. Efnahagsmálaráð
herra Vestur-Þýzkalands; Kurt
Sehmuecker, sagði í dag að gildi
samningsins væri komið undir því
hvort samkomulag tækist í sum
ar um sameiginlega afstöðu til
Kennedy- viðræðnanna um
tollalækkanir og hvort verðlag á
m. fí. mjólk, kjöti, hrísgrjónum,
sykri og fituefni yrði ákveðið hið
sama í öllum aðildarríkjunum,
svo og því, hvort samkomulag tæk
ist um markaðsskipan varðandi syk
ur o.fl. Samkomulagið í dag verði
með öðrum orðum að falla inn í
heildarlausnina er samið verður
um í sumar.
SumarfoúlSir
Framhald af 3. sfðu.
Sumarbúðir þjóðkirkjunnar
verða á eftirtöldum stöðum í sum
ar: í Skálholti; Kleppjái'nsreykj
um,í Menntaskólaselinu í Hvera-
gerði, að Holti í Önundarfirði og
við Vestmannsvatn i Þingeyjar-
sýslu. Vonir standa til að hægt
verði að útvega húsnæði á Aust
ui'landi og verður tilkynnt bráð
lega um það.
Dvalartími hvers hóps í sumar
búðum verður um tvær vikur.
Búðirnar eru ætlaðar börnum á
aldrinum sjö til tólf ára. Umsókn
um um sumarbúðir í Skálholti,
Kleppjárnsreykjum og í Hvera-
gerði er veitt móttaka hjá æsku
lýðsfulltrúa kirkjunnar við biskups
embættið í dag, fimmtudag, frá kl.
eitt til þrjú, og næstu daga á sama
tíma. Verða þar veittar nánari
upplýsingar.
„Þeim sem sýndu mér hlýhug og vináttu á 75 ára af-
mælinu með gjöfum og heillaóskum eða á annan hátt
flyt ég mínar innilegustu þakkir —
Gunnar Andrew.“
SiiiiiMiiBiiíaiiÉiiiiiiiiiiiiiiiHsniiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBinwnBiiiiBiiHHiiiiBiiiinniiniiitHniniiiTifiiiinnnnnniiinniitmifiniTniiimiiinnTml
W00ÓOOOOO00000oooooooocc x>oooooooooooooooooooooo
útvarpið
Fimmtudagur 12. maí
7.00 Morgunútvarp.
12.00 HádegisútvaxT).
13.00 Á frivaktinni
Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óskalagaþætti fyr-
ir -sjómenn.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Síðdegisútvarp.
18.00 Lög úr söngjeikjum og kvikmyndum
18.45 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir
20.00 Daglegt mál
Árni Böðvarsson talar.
20.05 Konsert í F-dúr eftir Vivaldi-Bach.
Edida Giordani Sartori leikur á sembal.
20.15 Ungt fólk í útvarpi
Baldur Guðlaugsson kynnir þátt með blönd-
uðu efni
21.00 Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika
í Háskólabíói
Stjórnandi: Igor Buketoff. Söngkona: Adele
Addison frá Bandaríkjxmum.
21.45 Kvæði eftir Davíð Áskelsson
Baldvin Halldórsson leikari les.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.15 „Mynd í spegli" eftir Þóri Bergsson
Finnborg Örnólfsdóttir og Arnar Jónsson
les (3).
22.35 Djassþáttur
Ólafur Stephensen kynnir.
23.05 Bridgeþáttur
Hjalti Elíasson og Stef'án Guðjohnsen ræðast
við.
23.30 Dagskrárlok.
PreBtur
Framhald af 1. síðu.
hann skaut upp kollinum í dag var
hann klæddur eins og bóndi, í
grófgerðum buxum og
með gamlan stráhatt á höfðu.
Hempuna bar hann í bögli undir
hendinni.
Ussia, sem er 44 ára að aldri,
sagði svo frá, að kvöldið hinn
29. apríl hefði hann farið frá sendi
ráðinu á venjulegum tíma og ek
ið áleiðis til heimilis síns í Róm.
í miðju gamla borgarhverfinu rak
hann augun í aðra bifreið, er stóð
við vegbrúnina, og mann, er lá
við hliðina á bílnum. Ussia hélt
að maðurinn væri slasaður, steig
út úr bílnum 'og ætlaði að koma
honum til aðstoðar. En um leið og
Ussia fór að stumra yfir mann
inum spratt „hinn slasaði” á fæt-
ur, Qg Ussia var ýtt inn í kyrr-
stæða bílinn, þar sem á hann voru
sett gleraugu, sem hann sá ekki
í gegnum Síðan var ekið með
hann til- staðar, er hann taldi vera
urn 40 km. fyrir norðan Róm, við
Bracci ano-vatn, og var hann flutt
ur í herbergi þar sem fortjald
var fyrir glugunum.
Ussia sagði, að hinir þrír ungu
stjórnleysingjar hefðu veitt hon
um góða meðferð Þeir færðu hon
um maí og leyfðu honum að skrifa
nokkur bréf til sendiráðsins. Sjálf
ir skrjfuðu þeir dagblöðunum og
sögðu að þeir hefðu rænt prestin
um til að vekja athygli á aðbúð
hinna mörgu pólitísku fanga á
Spáni.
I.O.G.T.
Bazarinn og kaffisalan
verður n.k. sunnudag 15. þ.m.
Tekið verður á móti munum á
föstudag kl. 3-6 e.h. í G.T-húsinu.
Þær félagskonur, sem ætla að
gefa kökur komi þeim í G.T.-hús
ið kl. 10—12 f.h. á sunnudag.
Bazamefnd.
<s
Aðalfundur
Aðalfundur Sambands íslenzkra bygginga-
félaga v-erður haldinn kl. 5 e.h. föstudaginn
27. maí n.k. í Félagsheimili Húmvetni'nga,
L'aufásvegi 25 (gengið inn frá Þingholts-
stræti).
Venjuleg aðalfund'arstörf.
Stjórnin.
Skrifstofusfúlka
óskast við vélritun og önnur almenn skrif-
stofustörf. Enskukunnátta nauðsynleg.
x
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
Lækjarteig 2 — sími 38720.
fooo> >< ■■
•ooOOOOOOOOOOOOOCoooooooooooooooooooooooo
VÖ m-VÍ/U\l+Tfrt OfrZT
kASki
Eiginkona /nín
Guðrún Teitsdóttir
lézt í St Jósepsspítala Hafnarfirði 10. maí s. 1.
Jón Sveinsson.
Jarðarför móðir okkar
Ingibjargar Jónsdóttur
Litlu-Brekku Grímsstaðaholtl
fer fram frá Fríkirkjunni, föstudaginn 13. þessa mánaðar, kl.
1,30 eftir hádegi. Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum við
Suðurgötu.
(Fyriir hönd systkina
Eðvarð Sigurðsson.
10 12. maí 1966 - ALÞÝÐUBLA0IÐ