Alþýðublaðið - 18.05.1966, Page 3
Ur ræðu Björgvins Guðmundssonar
GRUNDVALLARSTEFNA ALÞÝÐUFLOKKSINS er hta sama I
bæjarmálum eins og í landsmálum, sagði Björgvta Guðmundsson í
útvarpsumræðunum í gærkvöldi. Það eru i raun og veru sömu
atriðin, sem Aípýðuflokkurinn leggur áherzlu á í borgarstjórn
Reykjavíkur og á Alþingi, það er samhjálp og félagshyggja.
Björgvin nefndi dæmi af konu,
sem misst hafði mann sinn frá
tveimur börnum. Hún hafði feng-
ið tíðar heimsóknir af kosninga-
skrifstofum íhaldsins og framsókn-
ar, en hafði svarað þeim á þá lund
að nú fyrst skildi hún, hvaða þýð-
ingar almannatry.ggingar hafa, er
hún hefði þurft á þeim að halda
sjálf. Hún ætlaði því að kjósa
Brotizt inn í
lögreglustöðina
Reykjavík. — ÓTJ.
NOKKVÐ hefur verið um smá-
'innbrot síöustu daga, en litlu stol-
Framhald á 1S. síðu
Alþýðuflokkinn.
Að sjálfsögðu hefur Alþýðu-
flokkurinn komið fram hugsjóna-
málum sfnum með aðstoð annarra
flokka, sagði Björgvin, þar á með-
al Sjálfstæðisflokksins, sem nú
fer með stjórn Reykjavíkur. Hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn, sem er
í eðli sínu einstaklingshyggju-
flokkur, smám saman fallizt á
tryggingar og margvíslegar aðrar
félagslegar ráðstafanir. Þessi
stefnubreyting hefur gert Alþýðu-
flokknum kleift að starfa með
Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn.
Björgvin benti á mörg félags-
ið leyst á viðunandi hátt í Rvik.
leg vandamál, sem ekki hafa ver-
Nefndi hann þar sem dæmi skort-
inn á dagskólum og leikskólum,
en hinir síðastnefndu eiga að vera
það margir, að þeir geti tekið
börn frá barnmörgum heimilum
og létt störf húsmæðranna, auk
þess sem þeir taka böm af ein-
stæðum mæðrum, sem vedða að
vinna úti.
Þá minntist Björgvin á sumar-
búðir og dvalarheimili baraa, og
taldi, að borginni bæri að veita
meiri stuðning þeim aðilum, sem
halda uppi þeirri nauösynlegu
starfsemi. Enn eitt vandamál, sem
snýr að börnum og unglingum,
er sumarvinna. Benti Björgvin á
að hópurinn, sem þyrfti á slíkri
vinnu að halda, færi sífellt
stækkandi. Vinnuskóli Reykjavík-
ur leysti að visu vanda margra
13—15 ára unglinga, er einkum
skorti verkefni fyrir 10—12 ára
börnin.
Björgvin Guðmundsson taldi, að
Reykjavík væri öðru vísi, eins og
íslenzkt þjóðfélag í heild væri
öðru vísi, ef Alþýðuflokksins hefði
Björgvta Guðmundsson .
ekki notið við og hann hefði ekkt
borið fram hugsjónir sínar og bar-v
izt fyrir þeim. Áhrif Alþýðuflokksi
ins í borgarstjórn Reykjavikun
þyrftu að aukast og mundu þaui
ávallt verða til góðs.
Banaslys á Reykjavíkurflugvelli
Reykjavík. — ÓTJ.
SEXTÁN ára piltur beið bana
á Reykjavíkurflugvelli í gser-
morgun, er traktor sem hann ók
morgun, er traktor sem hann ók
steyptist niður í fjögurra metra
djúpan skurð. Pilturinn var Þór-
arinn Kristbjörnsson, til hebnil-
is að Skólagerði 11 l Kópavogi.
Magnús Eggertsson hjá rann-
sóknarlögreglunni sagði Alþýðu-
blaðinu að verið væri að skipta
um jarðveg í flugbraut, þar sem
slysið varð, og var grafinn þar
skurður um fjögurra metra djúp-
ur. Þórarinn var sem fyrr segir á
traktor, sem útbúinn var með
skóflu, og var að hreinsa burt af
bakkanum. Mun hann hafa ekið
of tæpt með þeim afleiðingum
að traktorlnn kollsteyptist ofan í
skurðinn og varð Þórarinn undir
honum. Lögregla og sjúkraliff
komu fljótlega á vettvang og var
Þórarinn fluttur á Slysavarðstof-
una, en þar lézt hann skömmóf
síðar.
Opnum f dag
FERÐA- OG SPORTVÖRUDEILD
Veiðistengur frá kr. 130.00
Veiðihjól og margt fleira til stangaveiða.
Tómstundabúðin Nóatúni,
ferða og sportvörudeild II hæð.
Sími: 21901 og 17270.
Innflutt tjöld, 10 gerðir uppset I verzluninni.
Vönduð sterk ódýr. Mikið litaval.
Sænskir teppasvefnpokar, verð: kr. 780.00
Diska og bollasett í tösku kr. 390,00
4 tjaldstólar og borð kr. 1.175.00
Gaseldurnartæki
Myndin er tekin í verzlnninni.
Myndin er tekin í verzluninni.
t
Hi
h'
l-
\ ‘
ALÞÝÐUBLAÐIÐ, 18, maí 1965 %