Alþýðublaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 6
I BILAR OG UMFERÐ
{ Þótt ennþá séu um það bil tveir
‘jmánuðir þangað til amerísku bíl-
-t arnir árgerg 1967 koma á markað-
l inn, hafa borizt út fregnir um
' helztu breytingar, sem á þeim
:verða frá fyrra ári.
\ Að venju leggja bandarískir
bílaframleiðendur mesta áherzlu
á útlitið. Á markaðinn bætast
Ifleiri bílar með svokallaðri „fait
;Jback“yfirbyggingu, og „Coea-
'Cola-flöskulagið“, sem General
Motors hafði á sumum bíla sinna,
, mun breiðast út til annarra fram-
'ileiðenda.
>| Eins og kunnugt er náðu Ford-
'verkcmið.iurnar allmiklu forskoti
þegar þær settu Mustanginn á
markaðinn, en nú ætlar GM að
taka upp samkeppnina á því sviði
með nokkurs konar „anti-Must-
ang“ frá Chevrolet. Hefur honum
verið gefið nafnið Panther, en
þar sem Chevrolet hefur haldið
sig við nöfn, sem byrja á C — Cor
vair, Chevelle, Corvette — þá má
búast við að hjð endanlega r>3<n
verði annað. En hvað sem því líð-
ur, þá virðist svo sem að hann
verði hrein eftirlíking af Mustang
— svipaður að stærð og með sömu
hlutföll. Línur verða svolítið
mýkri, bera keim af Oldsmobile
Toronado. Vélina má fá allt frá
lítilli sex strokka, 120 hestöfl og
upp í V-8 sem er 300 hestöfl.
En Ford hefur ekki sofið nein-
um þyrnirósarsvefn, þrátt fyrir
forskotið. Stærri gerð af Mustang
verður framleidd með 10 cm.
lengra á milli hjólanna. Verður
hann kallaður Mercury Cougar, en
auk þess verður Mustanginn í all
breyttri mynd. Gerðirnar Fair-
lane og Galaxie koma til með að
verða nær óbreyttar frá fyrra ári.
Hins vegar verða nú gerðar
nokkrar breytingar á Tunderbird
og er það í fyrsta skipti í mörg
ár. Hann verður 10 cm. lengri og
mun að öllum líkindum fás.t fjög-
urra dyra.
Á bílum frá GM verða nú fá-
•anleear diskabremsur. og án auka
kostnaðar á öllum útflutt.um b;l-
Framhald á bjs. 11
Þessi Chevrolet á að keppa við Mustanginn. Hann er naúðalík
ur Mustang en línurnar svipaðar og á Toronado.
Stóri bróðir Mustangs — Mercury Cougar. Fjarlægðin milii öxla
lengist um 10 cm, svo að rýmra verður í aftursætinu.
nwvnmtMÆWMWWWwwwMwtvAmvAwwiwwwMiwwwwiwWMWMWWnwwvmwvwwvmvwww
LEIÐBEININGAR UM HÆGRIBEYGJU
FRÁ
VARÚÐ
A
VEGUM
Hægri beygja við gatnamót.
Ef beygja á tii hægri, skal, ef aðstæður leyfa, ekið að mið-
línu vegar.
a. Við gatnamót, þar sem akbrautinni er skipt með miðlínu,
brotinni ljnu (akreinalínu) eða heilli ljnu (varúðarlínu).
b. Við gatnamót, þar sem akbraut aðalbrautar eða megin-
brautar er skipt með varúðarlínu (miðlínu).
J~\
Hægri beygja við gatnamót.
Ef beygj t á til hægri, skal, ef aðstæður leyfa, ekið að mið-
lfnu vegar. Nú eru tvær eða fleiri akreinar, fyrir aksturs
stefnu á vegi, og skal þá ökumaður í táeka tíð, áður en kom
ið er að gatnamótum, færa ökutækið á þá rein, sem heppi
legust er, miðað við fyrirhugaða akstursstefnu.
c. Við gatnamót, þegar komið er eftir einstefnuakbraut og
ekið til hægri inn á tvístefnuakbraut.
diVið gatnamót, þegar komið er af einstefnuakbraut inn
á aðra oiiií-tefnuakbraut.
Þegar komið er yfir gatnamótin, skal ökutækið vera
vinstra megin á akbraut þeirri, sem ekið er inn á. Þetta
gildir þó ekki um akstur inn á einstefnuakbraut, saman
ber mynd.
EKKI má beygja til hægri, fyrr en nálæg ökutæki sem á
móti koma, hafa farið framhjá,
WMMMVUWMWWWWiWVtWVMWMWMWWWVWWVHVWWMUWWWWWMWVWWMUWWWCUCWWWWWM
Samkvæmt fréttum frá Japan
eykst stöðugt salan á Toyota Cor
ona. Á tæpum tveimur árum hafa
Toyota verksmiðjurnar flutt út
yfir 10.000 bíla af þeirri gerð.
6 5. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ