Alþýðublaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 10
t=RitstiörTÖrn Eidsson heiðursforseti ÍSÍ Kjartan Guðjónsson Ólafur Guðmundsson Beztu frjálsíþróttaafrekin: Jón Þ. vann lang- bezta afrek ársins Hástökk og langstökk eru þær greinar, sem hæst ber á afreka skránni 1966. Afrek Jóns Þ. Ólafs sonar í liástökki 2,08 m. er á al- þjóðamælikvarða og fremst á Evr ópuskránni. Langstökk Ólafs Guð mundssonar, 1,23 m., cn það vann hann í tugþrautarlandskeppninni í Olofsström í örlitlum mótvindi er glæsilegt unglingamet og árang ur á Noröurlandamælikvarða. Ár angur þessara tveggja manna ber af í þessum greinum ,en ýmsir fleiri hafa unnið þokkaleg afrek. Hér koma afrekin.: Hástökk: Meðaltal 20 beztu 1,6495 m. Jón Þ. Ólafsson ÍR, 2,08 Kjartan Guðjónsson ÍR 1,88 Erlendur Valdimarsson ÍR 1,81 Helgl Hólm ÍR, 1,80 Valbjörn Þorláksson KR, 1,78 Sigurður Lárusson Á, 1,75 Ólafur Guðmundsson KR, 1.75 Einar Þorgrímsson ÍR, 1,70 Páll Eiríksson KR, 1,61 Ágúst Þórhallsson Á, 1,60 Hróðmar Helgason Á, 1,60 Þórarinn Ragnarsson KR, 1,60 Guðjón Magnússon ÍR, 1.55 Jóhannes Gunnarsson ÍR, 1,50 Ásgeir Ragnarsson ÍR, 1,50 tílfar Teitsson KR, 1,48 Snorri Ásgeirsson ÍR, 1,45 Stefán Jóhannsson Á, 1,45 Skúli Arnarson ÍR 1,45 Þórarinn Sigurðsson KR, 1,45 Langstökk: Meðaltal 20 beztu 6.3055 m. Ólafur Guðmundsson KR, 7,23 Kjartan Guðjónsson ÍR, 6,98 Ragnar Guðmundsson Á, 6,86 Valbjörn Þorláksson KR, 6,76 Úlfar Teitsson KR, 6,75 Jón Þ. Ólafsson ÍR, 6,60 Einar Frímannsson KR, 6,48 Skafti Þorgrímsson ÍR, 6,39 Þórarinn Arnórsson ÍR, 6,30 Einar Gíslason KR, 6,25 Páll Eiríksson KR, 6,24 Einar Þorgrímsson ÍR, 6,24 Helgi Hólm ÍR, 6,24 Erlendur Valdimarsson ÍR, 6,18 Þórarinn Ragnarsson KR, 5,93 Þór Konráðsson ÍR, 5,89 Björn Sigurðsson KR, 5,75 Finnbj. Finnbjörnsson ÍR, 5,71 Guðjón Magnússon ÍR, 5,69 Hróðmar Helgason Á 5,64 Jón Þ. Ólafsson yfir ránni. „Fótmál dauðans .fljótt er stig ið“ Þessi upphafsorð séra Björns Halldórssonar frá Laufási, í einum Snjallasta sálmi íslenzkrar kristni komu mér í hug, er ég frétti lát Benedikts G. Waage heiðursforseta i ÍSÍ, sem bar að næsta óvænt. Glað ur og reifur í góðra vina ihópi í dag-.en horfinn sjónum verum, að fullu og öllu iá morgun. „Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla, hverf ull reykur“ segir sérg Björn enn fremur. BenediktGuðjónsson Waage, for ] eldrar Guðjón Einarsson prentari I og kona hans Guðrún Benedikts1 dóttir, var Reykvíkingur í húð og hár. Fæddur ihér í borg hinn 14 .júní 1889, var 'því rúmlega 77 ára, er hann lézt. Benedikt lagði fyrir sig verzlunarnám og starfaði i því sambandi að námi loknu, fyrst hiá öðrum síðan sem herra „eigin búða“. Stofnaði húsgagnaverzlun ina ,,Áfram“ er var þjóðkunn á sínum tíma, o'g rak hana ásamt bróður sínum fyrst í stað síðar einn, um árabil. Vissulega var Benedikt G. Waage dugmikill kaupsýslumaður, en sem slíks verður hans ekki fyrst og fremst minnst. Það er af öðru til efni, sem nafn hans ber hátt. í sögu þjóðarinnar, á sviði íþrótta mála’og margþættra brautryðjenda starfa þar, bæði er tekur til íþrótta iðkana. keppni og félagsmálastarfa á vettvangl íiþróttahreyfingarinn ar í heild. Segja má, að allt frá bví skömmu eftir aldamótin, er nokkurt skipulagslegt snið kom á starfsem; þessa, hafi Benedikt G. Waage verið þar í fylkingu. Hann hreifst sem un'gur dreng ur, af hugsjónum íþróttanna, tók sér stöðu undir merki þeirra og stóð þar öruggur og traustur ú verðinum, unz yfir lauk. Hann brást aldrei. Starf hans og trölia tryggð við æskuhugsjónir eru öll um fagurt fordæmi. Með stofnun íþróttasambands ís lands árið 1912, var heildargrund völlur lagður að alhliða starfi í- þróttahreyfingarinnar með þjóð- inni. Saga þessara miklu félagssam taka og líf o'g starf Benedikts G. Waage, er um áratuga skeið svo samslungið, að vart verður greint þar á milli, árið 1915 tekur Bene dikt sæti í æðstu stjórn samtak anna og á þar sæti til aldurstila stundar, fyrst sem gjaldkeri, sið. an varafox-seti og forseti frá 1926 ! — 1962 og loks heiðursforseti frá ( 1962. Þannig varð Benedikt sá for ystumaður, sem öðrum fremur, markaði stefnuna í hinni frjálsu íþróttahreyfingu þjóðarinnar. Auk þess vann hann margvís leg önnur störf: fyriir hreyfing una, gaf út íþróttablöð og ritstýrði þeim, þýddi bækur og ritlinga, lög og reglur. Þá tók hann á yngri árum mikinn þátt í íþróttastarf inu sjálfu, með þáttöku í ótal í- þróttasýningum og kappleikjum. En frægast var þó það íþróttaafrek hans, er hann synti í september 1914 frá Viðey til Reykjavikur, og þá talinn mesta sundþraut, sem sögur fóru af hér á landi, önnur en sund Grettis úr Drangey. Vega lengdina svam Benedikt á 1 klst. og 56 mín. Formennsku gegndi Benedikt um árabil bæði í KR og ÍR o'g full trúi var hann í alþjóðaolympíu nefndinni frá árinu 1946. Um 10 ár var hann íþróttaráðunautur Reykjavíkui’borgar. Þá vann liann og að stofnun ýmsra íþróttafélaga. Benedikt G. Waage var verðugur boðberi mikilla hugsjóna. Megin starf langrar ævi var ihelgað því xð opna augu ungra og gamalla fyrir gildi íþrctta og útilífs. Af el.iu ag ósérplæ'gni boðaði hann fagn aðarei-indi iþróttanna og hollra 'lífshátta. Með Benedikt G. Waage er horf jnn af skeiðvelli lífsins. djarfur forystumaður og drengur góður, sem kunni hóf á hverjum hlut. Hans verður ætíð minnzt, af öll um þeim mörgu sem með honum störfuðu, sem eins hins bezta manns sem þeir höfðu kynnzt. Einar Benediktsson var í miklu uppáhaldi hjá Benedikt og oft vitn aðj hann, til hins mikla skáldjöf urs í hvatningarræðum sínum á I fundum með íþróttafólki. Leyfist mér þá einnig að lokurn að vitna til Einars Benediktssonar, er leið ir skilja um sinn, um leið og þökk uð eru áratuga kynni og margþætt vinsemd: vor ævi stuttrar stundar er stefnd til Drottins fundar, að heyra lífs ag ljðins dóm. Þeirri stefnu og dómi þarf félagi vor og vinur Benedikt G. Waage ekki að kvíða. í „aldastormsins straumi" stendur minning hans ó- liagganleg. Einar Björnsson. | ’ i Þátttökutilk.vnningar í meist- .: aramóti íslands í handknattleik ií verða að berast stjórn HKRR í ' * siðasta lagi 20. nóv. Tilkynningar sendist í íþróttamiðstöðina. Landsleikur við V-Þýzkaland? Hætt hefur verið við lands leikinn við Noreg í hand- knttelik, en orsökin er að Norðmenn treysta sér ekki að koma hingað næsta haust. HSÍ hefur boðið Vestur- þfóðverjum til landsleiks hingaS í lok þessa múnaðar og eru miklar vonir til þess dð úr þeirri heimsókn geti orðið. Það mál verður ákveð ið á fundi v.þýzka sambands- ins í dag . MINNINGARORÐ: 10 11 nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.