Austanfari - 05.08.1922, Qupperneq 4
AUSTANFARl
7. tbl.
Nýkomið í verzlun
Jörgens Þorsteinssona:
Ytri fatnaðir, karla og unglinga, kvenkápur, nærfatnaðir, karla, kvenna
og barna, telpukjólar. — Gaflar, hnífar og skeiðar úr nikkeli og silfri,
ansjósur, Agra margarine ódýrara en áður, kartöflur, Libbys-mjólk
ogm. fl. -Allir geta komist að afbragðs kaupum
Kennarastaða
Eiðahrepps er laus. Umsóknir sendist fræðslunefnd fyrir 15. ágúst
VERZLUN E. J. WAAGE
hefur nú fengið
Sultutau i bollum, glösum o. s. frv.
Kamgarnspeysur, brúnar og bláar
Ullarnærfatnað á 13,00 kr. settið
Kjólatau. Káputau. Fataefni
Gummisólaskór. hvítir & brúnir
Lax
Sardínur
Döðiur
Gráffkjur
Perur
Ananas
Gummistígvél hálf og fullhá koma nú með Goðafoss.
Byssur og rifflar, sömu teg. og fyr, með fyrstu ferð.
Margt fæst í
Stefánsbdð.
Nú með síðustu skipum komu bollapör, tepott-
ar, rjómakönnur, sykurker, vatnsglös o. fl., og
eru öll þessi áhöld full af indælli jarðarberjasultu
og þessháttar góðgæti. Hér má slá tvær flugur í
einu höggi, fá góð ílát og ódýr og gott sultutau
— — þess utan mikið af öðru ávaxtamauki. —
Hf. Hinar samein. ísl. verslanir
Seyðisfirði
selja ýmsar vðrur í heildsSlu, svo sem:
Kaffi, óbrent
Exportkaffi
Melís í tunnum
og kössum
Sáldsykur
Hafragrjón
Hveiti. Rúgmjöl
Margarine
Kol — Salt
Kaupa allar íslenzkar afurðir
„AUSTANFARI “
kemur út vikulega. Verð 5 kr. ár-
gangurinn, ef borgað er í haust-
kauptíð í haust, annars 6 kr. —
Afgreiðslu og innheimtu annast
Guðm. G. Hagalín
Sími 54
Tvö stór samliggjandi her-
bergi til leigu frá 1. okt. fyr-
ir einhleypa. Ritstj. v. á.
S k o n r o k
er betra, heilnæmara og ódýrara en
útlent kex. Fæst ætíð nýbakað hjá
Sveini Árnasyni.
Ágætur úrgangsfiskur
fæst hjá
Imslands erf.
Símfréttir.
Rvík 4/s.
Bayern hefur neitað að viður-
kenna ráðstafanir þýzku stjórnar-
innar t'l verndunar lýðveldinu.
Nokkur önnur smáríki hafa sam-
þykt að styðja Bayern í baráttunni.
Málið er talið uppreistartilraun og
bíður úrskurðar ríkísréttar. Þjóð-
verjar hafa beðið Bandamenn um
að færa næstu skaðabótagreiðslu
niður úr 2 milliónum í hálfa milli-
ón sterlingspunda. Bandamenn
hafa neitað. Poincare hefur hótað
þvingunarráðstöfunum, ef ekki verði
full trygging sett fyrir greiðslunni,
þegar í stað. Franska lögreglan
hefur uppgötvað þýzkt keisara-
sinnasamsæri gegn Poincare.
Bandamenn hafa árangurslaust
reynt að miðla málum með Tyrkj-
um og Grikkjum. Grikkir vígbúast
og hafa haldið með 70,000 manna
her til Tchatchaldcha. Grikkja
stjórn hefur skipað hernum að
hætta framsókninni í bráð, vegna
mótmæla Bandamanna. Banda-
menn tilkynna að Konstantinopel
sé hlutlaus. Grikkir mótmæla.
Gunaris forsætisráðherra, kveður
ásetning Grikkja að taka borgina.
Grikkir hafa lýst þvíyfir.að Smyrna
sé sjálfstæð. Facta hefur endurnýj-
að ráðuneyti Ítalíu. Landið er í
hershöndum vegna styrjaldar milli
jafnaðarmanna og facista (þjóð-
ernissinna). Til mótmæla þeirri
styrjöld er verkfall um land alt.
Ámundsen hefur frestað flugferð
sinni yfir norðurpólinn. Norðmenn
hafa samþykt með 104 atkv. gegn
47 samninga við Spán. Verða að
drekka 500 þús. lítra af heitum
vínum á ári.
Síra Magnús Andrésson á Gils-
bakka andaðist á mánudag. Björn
Kristjánsson, alþingismaður, hefur
fundið koparnámu í Hornafirði.
Skemtidagur verzlunarmanna var
haldinn hátíðlegur í fyrradag uppi
á Árbæ. Varð bifreiðaslys á heim-
leiðinni. Lenti bifreiðin í skurðinn
á hraðri ferð. Bifreiðastjórinn og
tvær stúlkur, er voru farþegar,
stórmeiddust: Stórriddarar hafa
orðið af fálkaorðunni Pétur Beyer,
Halldór Danielsson, Guðm. Björns-
son. Riddarar. Sighvatur Bjarnason,
Scheele og Hede.
Svipall.
Hitt og þetta.
Leiðrétting.
í síðasta blaði í frásögninnj um
Vigfús Eiríksson hefur misprent-
ast vinur fyrir vinir.
Kirkjan
hér er nú fullbúin, prýðilega
máluð og vel frá henni gengið
að öllu. Verður hún vígð á morg-
un af Jóni Guðmundssyni, pró-
fasti á Nesi í Norðfirði. Er sagt
að 5 prestar muni verða viðstadd-
ir vígsluna.
Verzlunarmannafélagið
hér heldur hinn 14. þ. m. há-
tíðlegan frídag sinn frammi í dal
og hér í skólanum. Verða þar
ræðuhöld, matur og drykkur og
annað, sem hugann má kæta.
Knattspyrna
milli Hjaltastaðaþinghármanna
og íþróttafélagsins „Huginn" verð-
ur hér háð á morgun. Verður
nánar auglýst á götunum um leik-
tímann. Er aéskilegt að fólk fjöl-
menni og styðji með því íþrótta-
líf bæjarins og Héraðsins. Er von-
andi að hvorttveggju félögin dugi
vel og skal engu spáð um það,
hvoru í skaut fellur sigurinn, og
að lokum bæði látin sannmælis
njóta. En hjá almenningi eiga þau
að njóta áhuga síns — og eiga
menn að sýna í verkinu, að hann
sé metinn að verðleikum.
Aflabrögö
hafa verið ágæt síðustu dagana,
Síld hefur fiskast nokkuð, bæði
hér og suður á fjörðum. Ms. Óð-
inn, sem stundar hringnótaveiði,
kom inn með 80 tunnur nýlega.
Nótin hafði rifnað og skipið mist
um 300—400 tunnur. Er vonandi
að Óðinn komi inn fullur næst
— því að eigi væri lítið undir
því komið, að tækist að sýna, að
enn hefði eigi öll síldargæfa yfir-
gefið Austfirði.
Hjónaband.
Gefin voru nýlega saman í
Hofteigi ungfrú Arnbjörg Sveins-
dóttir, systir Jóns Sveinssonar,
bæjarstjóra á Akureyri, og Guð-
mundur Jónsson frá Fossvöllum.
Bæði til heimilis á Hvanná. —
„Austanfari" óskar heilla.
„Anna Ho“
kom hér í gærkvöld og „Guð-
rún“ aukaskip Bergenska kom
hingað fyrrihluta dagsins í gær.
„Goðafoss" er væntanlegur annað
kvöld.
Vilhelm Knudsen
skrifstofustjóri hjá Nathan &
Olsen er hér nú á ferð eystra.
Þessa dagana dvelur hann hér í
bænum.
Margt
af ýmsu tægi verður að bíða
næsta blaðs sökum rúmleysis.
Prentsmiðja Austurlands