Austanfari


Austanfari - 16.12.1922, Blaðsíða 3

Austanfari - 16.12.1922, Blaðsíða 3
3 AUSTANFARI 26. tbl. SKOSMIÐAVINNUSTOFA Sigurgísla Jónssonar Seyðisfirði. Hefur á boðssíólum ÚTLENDAN SKÓFATNAÐ, sérlega vandaðan og smekklegan. — — LÆGST VERÐ í BÆNUM — — Leysir fljótt og vel af hendi allar viðgerðir á skófatnaði. Býr til nýjan skófatnað eftir máli Afsláttur tíl jóla. Aðeins notuð beztu efni Út af skeyti því, sem hér er um að ræða, kallaði bæjarfógeti bæjarstjórn saman á fund — og var samþykt að hafa þegar vörð um skip þau, er hingað kæmu. Var sóttvarnarnefnd falið að útvega mann til starfans. Svartidauði (pest) er kunnari af fyrri afspurnum hér á landi en frá þurfi að segja. Er hann ávalt hin mesta manndrápsfarsótt, en þó mis- munandi eftir því hvaða tegund hans er um að ræða. Stundum kemur hann fram sem kýlapest, þar sem allur líkaminn verður þakinn sárum, stundum grefur að eins í kirtlum og stundum er hann lungnaveiki og þá v skaölegastur og skjótvirkástur á að stytta mönnurn aldur. Deyja menn þá á 1. og 2. degi. Eftir því hvaða tegund hans er um að ræða, munu deyja um 60 og upp í 90afhundraði þeirra er veikjast. Hefur hann haft einskonar fast aðsetur í Asíu, en hefur gert vart við sig mörgum sinn- um í Evrópu, svo sem á 6. 14, 16. og 17. öld. Síðan hefur hann drepið fjölda manns í Rússr landi og Tyrklandi og stungið sér öðruhvoru niður í hafnarborgum, svo sem Qlasgow árið 1900, Hamborg skömmu fyrir stríðið og víðar. Um aldamótin kvað mikið að honum á Indlandi og í Mandschuríu, í Kína 1910. Þá hefur hann ,gert mikið manntjón í Afríku, San Francisco og ýmsuni hafnarborgum í Ástralíu. Hann er því ekkert einsdæmi og ekki ástæða til að fólk fyllist ótta, þó að af honum fréttist, enda munu öll nærliggjandi lönd telja skyldu sína að sporna gegn útbreiðslu hans af fylsta megni. Aftur á móti eru ráðstafanir stjórnarinnar sjálfsagðar og rétt að hafa við alla varúð. Þess skal loks getið, að í Mandschuriu í Kína er murmeldýrategund, sem ber í sér pestarbakteríur og menn veiða sakir skinnsins, sem er mjög dýrt. Er altítt að þeir menn, er veiða þessi dýr, sýkist og deyi af svarta- dauða. Er og talið víst, að frá þess- um dýrum hafi veikin stafað, er hún gekk í Mandschúríu og var hin skæðasta 1910. Tjáð hefur. ritstj. blaðs þessa Jón E. Waage verzlunarstjóri, að hann hafi sótt um leyfi til að reka kvikmyndahús hér í bænum. Hefur hann vélar og myndir til sýninga og hyggst að reisa hús á vori komanda. Heyrst hefur, að ætlaður sé samkomuhúsinu væntan- lega rétturinn til kvikmyndasýninga hér í bænum, en setja mætti þau skilyrði, að ekkert yrði það til fyrir- stöðu, þótt veitt væri nú öðrum slíkt leyfi. Qæti og bæjarstjórn lagt einhvern skatt á kvikmyndasýning- arnar, og ef henni sýndist svo, látið hann renna í samkomuhússjóð. En á því er enginn vafi, að kvikmynda- sýningar eru menningarbót, sé vel á haldið, Um hid látna stórmenni, Hannes Hafstein, verður grein í næsta blaði. Vegna þrengsla verður margt að bíða næsta blaðs, meðal annars listi yfir aukaútsvör hér í bænum, kr. 50 og þar yfir. Símfréttir. Erlent: Bæjarstjórnarkosningar hafa farið fram í Kristjaníu. Lauk þeim þannig, að hægri menn fengu 39 fulltrúa, kommúnistar 34 og aðrir fokkar 11. Stórþing Norömanna hefur veitt Frið- þjófi Nansen friðarverðlaun Nobels Lloyd George er tekinn að gefa út endurminningar sínar. Poincare segir að ekki sé rétt sagt frá öllu og hefur gert athugasemdir. Brezka stjórnin hefur sent samninganefnd til Ameríku.til þess að semja um greiðslu á skuldum, Er fjármálaráðherrann Ágætlega skorið N eftóbak fæst hjá Jörgen Þorsteinssyni. Skiftafundur í dánarbúi Sigurðar Sveinssonar, frá Breiðuvík í Borgarfjatðar breppi verður haldinn hér á skrifstofunni miðvikudaginn 27. þ. m. kl. 12 á hádegi. Skrifstofa Norður-Múlasýslu 16- desember 1922. Ari Arnalds. \ J o 1 a v i n d 1 a n a kaupa hyggnir menn hjá Sveini Árnasyni Skiftafundur í dánarbúi Þórarins Jörgenssen, frá Seyðisfirði, verður haldinn hér á skrifstofunni, fimtudaginn 28. þ. m. kl. 12 á hádegi. Skrifstofa bæjarfógeta Seyðisfjarðar 16. desember 1922. Ari Arnalds. Til sölu á Ijósmyndasíoíunni: LJÓSMYNDAVÉL ódýr mjög hentug JÓLAGJÖF. — Plötur og filmpakkar 9x12 o fl. teg. svo og allsk. ljósmyndaefni MAGNEUMSBLYS og fl. Verzlun Imslands erí. hefur eftirfarandi vörur nýkomnar í meira úrvali en annarsstaðar er kostur á. Leirvörur, allskonar. Glervörur, margar tegundir. Postulíns- vörur, svo sem: Bolfapör með samstæðum diskum. Kaffistell og fleira. Pletvörur, fallegar og ódýrar. Leikföng. Jólatrésskraut. Jólatré og fjölda margtannað, ormaður nefndarinnar. Englandsbanki hefur kvatt á fund fulltrúa frá öllum löndum til þess að ræða um að koma einhverri reglu á myntgengið í heim- inum. Ulsterþingið hefur samþykt að héraðið Ulster skuli ekki sameinast írska fríríkinu. Afvopnunarráðstefnunni í Moskva er slitið án alls árangurs. Friðarfund- inum í Frakklandi er frestað fram yfir jól. Óöld mikil er í Grikklandi, mann- dráp og upphlaup. Spánverjar hafa rieitað að semja við Finna utn verzlun og viðskifti, nema þeir nemi úr gildi bannlögin. Innlent: Hæstiréttur hefur staðfest dóm HV(T LÉREFT ýmsai' teguitdir fást í verslun \ Jörgens Þorsteinssonar sem of langt yrði upp að telja Margar tegundir af afbragðs góðu sætu K-E-X-I, íást í verzlun JÖRöENS ÞORSTEINSS. Gosdrykkjaverksmiðja Seyðisfjarðar hefur fyrirliggjandi á lager nfi fyrir jólin allskonar iimonaði, sódavatn og sæta saft undirréttar í skaðabótamáli íslands banka gegn Ólafi Friðrikssyni. Ólafur greiði 20 þús. króna skaðabætur, málskostnað allan og 300 króna sekt eða sæti 60 daga einföldu fangelsi. Qóður afli á togarana og bærileg sala. Þorvaldur Bjamason stórbóndi á Þorvaldseyri, fyrrum þingmaður Rangvellinga er dáinn. Látinn er og Jóhannes Jóhannesson, bóndi á Úti- bieiksstöðum í Húnavatnssýslu, faðir Björns Líndal. Jafnað var niður á Akureyri 101, 595 kr. Hæstu útsvör, Hofnersvnrzl- un 5200,00 kr., Samein. ísl. 4800,00 kr. og Snorri Jónsson 4000,00 kr.

x

Austanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.