Dagur - 08.10.1997, Qupperneq 5

Dagur - 08.10.1997, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 8.OKTÓBER 1997 - S ÞJÓÐMÁL Taívanar vildu fnnd með Verslimarráði Sendinefndin frá Taív- an sem nú er stödd á íslandi reyndi fyrir komu sína að fá fund með Vilhjálmi Egils- syni, framkvæmda- stjóra Verslunarráðs. Verslunarráð varð ekki við því og er sú skýring gefin að Vil- hjálmur er staddur í útlöndum. Birgir Armannsson, lögfræðingur hjá Verslunarráði, staðfestir að leitað hafi verið eftir fundi. „Þeir höfðu samband við Vilhjálm í siðustu viku og óskuðu eftir því að hitta hann. Vilhjálmur fór hins vegar í morgun [í gær] á fund í Portúgal og þess vegna datt þetta upp fyrir. Mér vitan- lega verður enginn fundur, en ég útiloka ekki að Vilhjálmur hafi vísað á einhverja aðra í viðskipta- lífinu," segir Birgir. „Aðallega utanriMsmál Birgir vill að öðru Ieyti Iítið tjá sig um hvort fundur Davíðs Odds- sonar og LIi Chen, varaforseta Taívans, muni hafa langvarandi afleiðingar á íslenskt efnahagslíf. „Mér finnst þetta aðallega utan- ríkismál frekar en viðskiptamál. Við höfum hins vegar sagt að við séum reiðubúnir að ræða við alla sem hafa áhuga á að versla við Is- lendinga." Fundur Davíðs Oddssonar og Lli Chen, varaforseta Taívans, fer fram í dag og sýndu Kínverjar klærnar í gær. Þeir frestuðu í gærmorgun viðskiptafundi með íslenskum fyrirtækjum í mót- mælaskyni og vöruðu erlend ríki við að taka á móti varaforsetan- um, sem Kínverjar viðurkenna ekki sem þjóðarleiðtoga. Taívan er hérað í Kína að þeirra mati. Viðskipti Islendinga og Kín- veija hafa margfaldast að undan- förnu og hefur verið rætt um Kína sem eitt helsta sóknarsvæði fyrir útflutning sjávarafurða. - BÞ Sægreifaiunmæli dauð og ómerk Upp setning fjárlaga gagn rýnd Fyrsta umræða um fjárlaga- frumvarpið hófst á Alþingi í gær. Sú breyting sem orðið hefur á uppsetningu Ijárlagafrumvarps- ins var fyrirferðar mikil i um- ræðunni. Fjármálaráðherra, Friðrik Sophussyni, varð tíðrætt um efnahagsbata, trausta stöðu og stöðugleika í ríkisfjármálun- um. Hann sagði að helstu þætt- ir fjárlagafrumvarpsins væru að frumvarpinu væri skilað með af- gangi, lækkun útgjalda og og skatttekna sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og að lánsljár- þörf ríkisins minnkaði um 8 milljarða króna á næsta ári. Gagnrýni stjórnarandstæð- inga var á sömu nótum og kom fram í Degi í viðtölum við tals- menn hennar í síðustu viku. Gagnrýnt er hversu erfitt er að bera þessi fjárlög saman við íjár- lög síðasta árs vegna breyttrar uppsetningar. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir óskir þingmanna um samanburðarhæfni með því að setja fram gildandi fjárlög á skýran hátt. Þeir gagnrýna líka að selja á eignir til að sýna tekjuafgang. Þeir gagnrýna niðurskurð í heil- brigðis- og tryggingakerfinu og að svo kallað góðæri skili sér ekki til almennings. — S.DÓR Ritstjórl Helgarpósts- ins dæmdur til að greiða Hreggviði Jóns- syni miskabætur og ummæli um „sæ- greifann46 dæmd dauð og ómerk. I Héraðsdómi Reykjavíkur kvað Valtýr Sigurðsson í gær upp þann úrskurð að ummæli sem birtust í Helgarpóstsfrétt um Hreggvið Jónsson, framkvæmdastjóra á Stöð 2, skyldu dauð teljast og ómerk. Ritstjóri Helgarpóstsins, Páll Vilhjálmsson, var dæmdur til að greiða Hreggviði 100 þús- und króna miskabætur, en Hreggviður vildi fá alls Ijögurra milljóna króna miska- og skaða- bætur. Ungt fólk með hlut- verk hefur breyst í frí- kirkjusöfnuð sem heitir íslenska Krists- kirkjan. Páll Vilhjálmsson var dæmdur til að greiða Hreggviði Jónssyni bætur vegna ummæla Helgarpóstsins. Meiðyrðamálið höfðaði Hregg- viður vegna fréttar í HP 27. febr- úar, en þar var Hreggviður kall- aður sægreifi og sjónvarpsmóg- Nýr fríkirkjusöfnuður bættist í hóp trúfélaga á Islandi um síð- ustu helgi, en þá var samtökun- um Ungt fólk með hlutverk breytt í sjálfstæðan fríkirkjusöfn- uð með Friðrik Ó. Schram sem prest. ull. Hann var sagður hafa svindl- að til sín milljónahlut í útgerðar- félagi með því að hafa 7-9 millj- ónir króna af trillusjómanni með svindli. Valtýr Sigurðsson héraðsdóm- ari komst að þeirri niðurstöðu að Hreggviður hefði ekki svindlað á umræddum trillusjómanni og benti á að málið hefði farið til rannsóknar hjá RLR og þar hafi ekki þótt ástæða til að rannsaka það frekar. Hann benti á að ákvæði um tjáningarfrelsi leysi blaðamenn ekki undan því að byggja umijöllun sína á vandaðri könnun á staðreyndum. Auk 100 þúsund króna miska- bóta er Páli gert að greiða Hregg- viði 150 þúsund króna birtingar- kostnað og 300 þúsund króna málskostnað. Þá var Páll dæmd- ur í 2 5 þúsund króna sekt til rík- issjóðs. — vj Ungt fólk með hlutverk hefur starfað frá 1976, en starfið hefur nú þróast í evangelísk-Iútherska kirkju með sama kenningagrund- völl og þjóðkirkjan. Ahersla verð- ur lögð á samfélagshópa í heima- húsum og guðsþjónustur. - FÞG Nýr fríkirkjusöfnuður Vilja dragaúr ofbeldi Steingrímur J. Sigfússon og Sigríður Jóhannes- dóttir hafa Iagt fram þingsályktunartillögu um að- gerðir til að draga úr ofbeldis- dýrkun og framboði ofbeldisefn- is. Áætlun þar um miðist við að takmarka hverskonar ofbeldi, misþyrmingar, limlestingar og manndráp, í myndefni sjóvarps- stöðva, kvikmyndahúsa og á myndböndum, tölvuleikjum, Ieiktækjum og Ieikföngum sem byggjast á ofbeldi, ofbeldi á tölvunetum, ofbeldi á sýndar- veruleikatækjum, ofbeldisefni í bókum, blöðum og tímaritum og annað efni sem tengist ofbeldi. Réttur foreldra X* verði aukinii Þingmenn- irnir Jó- hanná Sig- urðardóttir, Kristín Ast- geirsdóttir, Margrét Frímannsdóttir og Öss- ur Skarphéðinsson hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sem hafi það verkefni að tryggja betur rétt foreldra til launa í Ijárveru úr vinnu vegna veikinda barna. Niðurstaða nefndarinnar skal lögð frá á haustþingi 1998. Bætt siðferði Komin er fram þings- ályktunartil- laga þess efnis að rík- isstjórnin skipi nefnd til að kanna h v e r n i g bæta megi siðferði í opinberri stjórnsýslu. Kannaðar verði þær skráðu og óskráðu reglur sem í reynd ríkja um embættisfærslur í opinberri stjórnráðstöfun opinberra fjár- muna. Það eru kratarnir Jó- hanna Sigurðardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Össur Skarp- héðinsson og Gísli S. Einarsson sem bera þingsályktunartillög- una fram. Sala ríkiseigna Svavar Gestsson hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um sölu á ríkiseignum frá 1991. Hann vill fá að vita hvað var fyr- ir þær greitt og hvernig. Sam- kvæmt hvaða heimildum þær voru seldar og hvernig málin voru lögð fyrir Alþingi. Bann við áreitni Þingmenn úr öllum flokkum, undir forystu Guðnýjar Guð- björnsdóttur, hafa lagt fram frumvarp um að kynferðisleg áreitni verði bönnuð á vinnu- stöðum og í skólum. Frumvarp- ið var lagt fram á síðasta þingi en hlaut þá ekki afgreiðslu. - S.DÓR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.