Dagur - 08.10.1997, Blaðsíða 16

Dagur - 08.10.1997, Blaðsíða 16
 r-r.-'í-..-ia“aS;r• V• :•£&£** •:, VEÐIIR IIOKFUR Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vin- dáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Reykjavík °C Fim Fös Lau Sun nm -15 5 - 0- - 5 -5- - 0 NNA4 NA4 NA3 SSA3 SV3 NNA5 NA4 ANA2 V2 Stykkishólmur °c Fim Fös Lau Sun mm 0- - 5 -5 J------ -------- ------- -------- 0 NNA5 NA6 NA5 ANA4 NNA3 NNA7 NA5 ANA4 VNV3 Bolungarvík !9 Fim Fös Lau Sun mm 10-1------ -------- ------- --------H5 0- - 5 -5 J------ -------- ------- --------L o NNA5 NA5 NA5 ANA4 NNA3 NNA6 NA5 ANA5 NNA3 Blönduós ÍS. Flm Fös Lau 0- - 5 -5 J------ -------- ------- -------- 0 NNA4 NA3 NA3 ANA2 NNV2 NNA3 NA2 ANA2 LOGN Sun mm --------1-15 Akureyri NNA4 NNA3 NA3 ANA3 VNV3 NNA4 NNA3 NA3 SA3 Egilsstaðir °c Fim Fös Lau Sun mm_ 0- -5 -10 - 5 NNA3 NNA3 NNA4 N3 SSV3 N3 NNA3 NNA3 NNV2 Kirkjubæjarklaustur ;s. 5 0- -5 Fös Lau Sun mm -10 - 5 0 NNA2 ANA2 NNA2 A2 VSV2 NA3 NA3 NA4 S3 Stórhöfði il Fim 5- 0- -5 FÖS Lau Sun mm -10 - 5 0 NNA5 NA6 NA5 SSA5 SV5 NA5 ANA4 ANA3 VSV3 x h L Miðvikudagur 8. október 1997 Veðrið í dag... NA átt, allhvöss norðvestan til en annars hægari. Skýjað með köflum suðvestan til en rigning annars staðar. Hlýjast á Suðvesturlandi. Hiti 4 til 12 stig. Landslidsþjálfarinn og formaður KSÍ tilkynntu landsliðið á blaðamannafundi í gær og sátu síðan fyrir svörum, meðai annars um vaiið á liðinu. Ljóst er að Arnór Guðjohnsen verður fyririiði ísienska iiðsins í leiknum, sem búist er við að verði hans síðasti í ísl- ensku landsliðstreyjunni. - mynd: hilmar Guðni ekld valiim- gegn Liechtenstem íslenski landsliðshóp- iiriim tekur á móti Liechtenstein á laug- ardaginn, en í gær op- inberaði Guðjón Þórð- arson þjálfari val sitt á þeim átján leik- mönnum sem skipa íslenska hópinn á hlaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ. Einn nýliði er í hópn- um, Leiftursmaður- inn Gunnar Már Más- son, en Guðna Bergs- son er hins vegar hvergi að finna á með- al þeirra landsins hestu. Eggert Magnússon Guðni Bergsson, fyrirliði ís- lenska liðsins í flestum leikjun- um í undankeppninni, er ekki í hópnum, en hann fór sem kunn- ugt er ekki í leikinn gegn Rúm- eníu vegna ágreinings um ferða- tilhögun liðsins, eða svo töldu flestir. Því kom útskýring for- ráðamanna KSI, þeirra Guðjóns Þórðarsonar Iandsliðsþjálfara og Eggerts Magnússonar formanns, um að fyrirliðinn hefði fengið frí til að tryggja sœti sitt í Boltonlið- inu, nokkuð á óvart. „Guðni Gudni Bergsson. ákvað á sínum tíma, vegna álags að gefa ekki kost á sér í leikinn gegn Rúmeníu. Eg tók ákvörðun í framhaldi af því að gefa honum tækifæri til að einbeita sér að tryggja sinn sess hjá Bolton. Eg mun áfram verða í samstarfi við hann og fleiri sem ekki eru á þessum lista hér,“ sagði Guðjón og tiltók leikmenn eins og Arnar Grétarsson og Helga Kolviðsson sem ekki voru valdir í hópinn. Eggert Magnússon svaraði einnig þessu svokallaða „Guðna- máli“! og sagði að ákveðið hefði verið að gefa honum frí í þessum leik. „Hann á hins vegar fulla framtíð með íslenska landsliðinu og það er ekkert persónulegt á milli Guðjóns Þórðarsonar og Guðna Bergssonar, svo mér sé kunnugt um,“ sagði Eggert. Ekki talað við Guðna Guðjón, aðspurður um það hvort hann hefði rætt við Guðna frá leiknum í Rúmeníu, sagði svo ekki vera. „Eg hef samband við þá leikmenn sem ég vel, ekki við þá leikmenn sem ekki eru valdir," og bætti því við að einn leikmað- ur sem hann hefði haft hug á að velja í hópinn hefði ekki gefið kost á sér; Agúst Gylfason, sem leikur með norska liðinu Brann. Dagur náði ekki tali af Guðna Bergssyni íyrir prentun blaðsins í gærkvöld. Landsliðsþjálfarinn sagði að hann væri að reyna ýmsa leik- menn í hópnum, en gat þess að þeir menn sem í framtíðinni yrðu valdir til að leika fyrir hönd ís- lands yrðu að vera tilbúnir heils- hugar. „Ef menn ætla að gefa kost á sér, verður landsliðið að njóta krafta þeirra óskipt. Það verður ekki hægt að velja sér landsleiki og það má alltaf búast við því að upp komi árekstrar. Þegar að landsliðinu kemur er staðan sú að við höfum ákveðinn forgang (á viðkomandi félags- lið),“ sagði Guðjón. Þreki ábótavant? Guðjón kom inn á líkamlegt atgervi Iandsliðsmannanna sem hann sagði að væri hægt að bæta. Hann sagði að hann hefði prófað Iíkamlegan styrk lands- liðsmanna, aðallega þeirra sem leika hér á landi, og hann mætti bæta. „Það er ljóst að hægt er að styrkja líkamlegt atgervi manna, það er greinilega vöntun á og hægt að styrkja það verulega. Eg hef ekki unnið nógu mikið með þeim sem eru erlendis, en ég mun setja alla í samræmd test.“ Miðaverðið í íyrra horf Knattspyrnusambandið hefur ákveðið að miðaverð á leik Is- lands og Liechtenstein í und- ankeppni HM verði 1500 krón- ur fyrir 17 ára og eldri, en ókeypis verði á völlinn fyrir þá sem eru sextán ára og yngri. Sem kunnugt er hækkaði KSI miðaverð til muna fyrir síðasta leik Islands á Laugardalsvellin- um, en þá kostuðu ódýrustu miðarnir í stúku 1700 krónur, en þeir dýrustu 2500 krónur. „Eflaust voru það mistök hjá okkur að hafa miðaverðið of hátt gegn Irum,“ sagði Eggert Magn- ússon, formaður KSI. „Við mun- um skoða þessi mál vel í vetur. Það er greinilegt að fólk saknar gömlu stæðismiðanna sem menn gátu keypt sér á þúsund krónur. Við munum reyna að koma til móts við þann hóp sem vill kaupa ódýra miða og einnig fjölskyldu- fólkið,“ sagði Eggert, en bættijþví við að dýrustu miðamir í Ira- leiknum, í miðri stúkunni, hefðu verið fljótastir að fara. íslenski lands- lióshópnrinn Guðjón Þórðarson, þjálfari ís- lenska landsliðsins, tilkynnti val sitt á átján leikmanna hópi fyrir leikinn gegn Liechtenstein í undankeppni HM, sem fram fer á Laugardalsvelli nk. laugardag kl. 14. Markverðir: Kristján Finnbogason, KR 17 Olafur Gottskálksson, Hibemian 8 Aðrir leikmenn: Arnór Guðjohnsen, Orebro 72 Rúnar Kristinsson, Lilleström 65 Eyjólfur Sverrisson, Herthu Berlín 41 Þórður Guðjónsson, Genk 18 Lárus Orri Sigurðsson, Stoke 17 Hlynur Birgisson, Orebro 12 Einar Þór Daníelsson, KR 11 Hermann Hreiðarsson, Crystal Pal. 8 Brynjar Gunnarsson, KR 6 Tryggvi Guðmundsson, IBV 4 Bjarni Guðjónsson, Newcastle 3 Sverrir Sverrisson, ÍBV 3 Gunnlaugur Jónsson, IA 2 Steinar Adolfsson, IA 2 Óskar Hrafn Þorvaldsson, KR 1 Gunnar Már Másson, Leiftri 0

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.