Dagur - 22.10.1997, Qupperneq 1

Dagur - 22.10.1997, Qupperneq 1
Iitið rætt um sameigin- legt framboð Stj ómmálaflokkarnir á Húsavik eru iariiir að huga að framboðs- ináliiin. Sameiginlegt framboð vinstri flokk- anna hefur nánast ekkert verið rætt. Flokksfélögin á Húsavík eru far- in að hugsa sér til hreyfings varð- andi framboðsmál fyrir sveitar- stjórnarkosningar að vori. Að sögn Friðriks Sigurðssonar, bæj- arfulltrúa D-lista Sjálfstæðis- flokks, er ákveðið að leita eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að gefa kost á sér og listar með nöfnum verða sendir út til fé- lagsmanna eftir helgi. Uppstill- ingarnefnd mun síðan raða á listann að fengnu áliti félags- manna og hefur nefndin endan- legt ákvörðunarvald. „Þetta er lýðræðislegra en fyrir síðustu kosningar þegar við vorum ein- göngu með uppstillingarnefnd, en það fyrirkomulag gafst reynd- ar mjög vel því þá vann D-Jistinn sinn stærsta sigur frá upphafi,11 sagði Friðrik. Stefán Haraldsson, bæjarfull- trúi B-lista Framsóknarflokks segir að ákvörðun verði tekin um fyrirkomulag uppröðunar á lista á aðalfundi félagsins n.k. sunnu- dagskvöld. „Fyrir síðustu kosn- ingar var málið alfarið í höndum uppstillingarnefndar og spurning hvort við gerum það sama nú eða verðum með einhverskonar skoðanakönnun meðal félags- manna,“ sagði Stefán. Tryggvi Jóhannsson, bæjarfull- trúi af G-lista Alþýðubandalags og óháðra, sagði að ákvörðun um framboðsmál yrði tekin í næsta mánuði. Formaður félagsins er úti á sjó og verður að sæta lagi til fundarhalda þegar hann er í landi. Hvað sameiningarviðræð- um við A-listann áhrærir, þá sagði Tryggvi að viðræður um hugsanlega sameiningu færu ekki fram milli bæjarfulltrúa list- anna, heldur myndu stjórnir fé- laganna ræða þau mál. Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, sem á sæti í stjórn Alþýðuflokks- félagsins, sagði að engin ákvörð- un hefði enn verið tekin um framboðsmál A-Iista. Og hvað sameiginlegt framboð A- og G- lista áhrærði, þá hefðu málin einfaldlega ekki verið rædd inn- an stjórnar. Hún gerði hinsvegar ráð fyrir að stjórnin kæmi saman innan tíðar og markaði fram- boðsstefnu krata. — JS Denni eða hinn? Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri hefur mjög verið í fjölmiðlum að undanförnu og menn hafa verið að velta því fyrir sér hvaða mann Steingrímur hafi að geyma. Hagyrðingurinn hk á Húsavík hugleiddi þetta eftir að hafa horft á Spaugstofuna á dög- unum þar sem Pálmi Gestsson fór á kostum við að herma eftir Steingnmi: Fullkominn leikari er aldrei í hlutverki hálfur, þótt holdarfar, vöxtur, rödd eða útlit tálmi. Pálmi er líkari Denna en Denni sjálfur, svo Denni veit ekki nema að hann sé Pálmi. Einbeiting verðandi heimsmeistara? Ungir garóyrkjubændur á Húsavík héldu upp- skeruhátíd um heigina og skemmtu sér m.a. við leiki. Meira í blaðopnu. Að blotna i sam- einingarfætur Engar líkur eru á að kosið verði um sam- einingu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum samfara sveitarstjóm- arkosningum næsta vor. „Menn eru nánast búnir að af- skrifa það að kosið verði um sam- einingu sveitarfélaga í Þingeyjar- sýslu samhliöa kosningum til sveitarstjórna að vori,“ sagði Sig- urður Rúnar Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Héraðsnefndar Þingeyinga. Sveitarfélög á svæð- inu væru það mörg og málið þyrfti lengri aðdraganda. Menn litu svo á að sameining í ein- hverju formi yrði verkefni næsta kjörtímabils og nýjar sveitar- stjórnir fengju þá tóm til að vinna skipulega að málum frá upphafi og hugsanlega með markaða stefnu. Sigurður Rúnar sagði að sam- einingarmálin hefðu verið rædd á fundi héraðsráðs fyrir skömmu og þau yrðu áfram til umræðu á fundi Héraðsnefndar um miðjan næsta mánuð og þá væri e.t.v. einhverra tíðinda að vænta. Aðspurður sagði hann að tónn- inn í sveitarstjórnarmönnum hefði gjörbreyst frá því kosið var um sameiningu 1993. „Þá þótti mörgum þetta fráleit hugmynd og voru ekki tilbúnir að ræða rök með eða á móti, voru bara alfar- ið á móti. En nú er þetta að ger- ast allt í kringum okkur og kom- in reynsla á það annarsstaðar þannig að menn hafa hugsað sinn gang hér. Þá hefur tilfærsla á verkefnum frá ríki til sveitarfé- laga valdið þrýstingi og það ferli heldur áfram.“ Þannig að Sigurð- ur taldi að flestir væru komnir á þá skoðun að sameining væri að- eins tímaspursmál, væri ekki lengur spurning um hvort, held- ur hvenær. „Það sem ég óttast þó dálítið fyrir okkar hönd er að menn standi of lengi við lækinn og seg- ist ætla að stökkva yfir einhvern tímann, en verði orðnir svo mátt- Iausir þegar þeir taka stökkið að þeir blotni í fæturnar," sagði framkvæmdastjóri Héraðsnefnd- ar Þingeyinga að lokum. — js Fólksflutningar í góðæri íbúum á Húsavíb hef- ur fækkað 11111 5 5 það sem af er árinu, þrátt fyrir ágætt atvinnu- ástand. „Þetta kemur okkur óneitanlega nokkuð á óvart," sagði Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, um nýbirtar tölur Hagstofunnar um fólksflutninga á landinu, en þar kemur fram að íbúum Húsa- víkur hefur fældtað um 55 á ár- inu. Góðæri hefur ríkt á Húsavík og næga atvinnu hefur verið að hafa, en Einar bendir á að þekkt sé að atvinnuástand hafí ekki nema að hluta áhrif á fólksflutn- inga, þar komi fleiri þættir inn í og oft erfitt að átta sig á hvað ræður ákvörðunum viðkomandi. „Við höfum ekki kannað það sérstaklega hvaða einstaklingar hafa flutt úr bænum í því skyni að reyna að greina ástæður flutnings,” segir Einar. Hann segir þó að í þessum hópi sé ekki um að ræða sjómenn sem flutt hafi lögheimili til Raufarhafnar vegna sölu á skipum þangað. Hugsanlegt væri að kennarar sem komu til starfa í stað þeirra sem fluttu burt í vor væru ekki búnir að flytja lögheimili. „En við höfum reyndar séð svona tölur áður á s.l. 13 árurn, þetta mikla sveiflu, án þess að þær væru varanlegar," segir Ein- ar Njálsson. — JS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.