Dagur - 24.10.1997, Síða 5
FÖSTUDAGUR 2A.OKTÓBER 1997 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Akureyri/Norðurland
UMSJÓN
Marín G.
Hrafnsddttir
HHHHH
Benedikt Sigurðarson,
Eyjólfur Eyvindsson
og Gísli Gunnlaugsson
Bæjarsjónvarpið álaugardaginn
Akureyrskt sjónvarp
hejurfæðst í annað
sinn, nú heitirþaðAk-
sjón og eropnunarút-
sendingin á laugardag-
inn klukkan 18:00.
Benedikt Sigurðarson, sem vill
titla sig ritstjóra Aksjón sjón-
varpsins, mun vinna við dag-
skrárgerð fyrir stöðina ásamt
Eyjólfi Eyvindssyni kvikmynda-
tökumanni en Páll Sólnes og
Gísli Gunnlaugsson eiga hina
nýju sjónvarpsstöð.
„Eg verð ekki mikið í mynd
sjálfur, hef ekki hugsað mér að
setja mig í fréttaþulastellingar,"
segir Benedikt. „Markmiðið er
að gefa viðmaelendum fyrst og
fremst möguleika til tjáningar."
Opnunarútsendingin verður í
klukkutíma á laugardaginn og
hefst klukkan 18:00. Þá fáum
við ávörp og kynningu á fyrir-
bærinu og eins mannlífsbrot þar
sem Aksjónmenn taka menn tali,
fara í heimsóknir á vinnustaði
auk þess sem fólki verður boðið
á Aksjón kaffi (í varastúdíóið).
„Við fáum fólk í spjall um mál-
efni Akureyrarbæjar og llest það
sem lýtur að daglegu lífi hérna.“
Þegar Sjónvarp Akureyri fór af
stað (fyrir um 10 árum) kom
Benedikt nærri dagskrárgerð.
„En þetta er ekki mitt fag, en ég
leit svo á að það væri markmið
forvígismanna þessa fyrirtækis
að gera þetta með óhefðbundum
hætti.“
Utsendingar Aksjón munu
einvörðungu miðast við Akur-
eyri. „Við munum fyrst og fremst
horfa á það sér akureyrska. Okk-
ur langar að skapa vettvang fyrir
fólk til að tjá sig um málefni
staðarins og það líf sem hér
þrífst. Hér er ekki um sam-
keppni við aðrar sjónvarpsstöðv-
ar að ræða, við ætlum okkur að
sinna því sem aðrir sinna ekki.“
Eftir opnunarútsendinguna
verður sjónvarpað á föstudag og
laugardag í næstu víku, hálftíma
og klukkutíma í senn. Fastar út-
sendingar eru síðan fyrirhugaðar
á miðviku-, fimmtu- og föstu-
dögum á milli 18-18:30. Sjón-
varpsmarkaður kemur inn í dag-
skrána og eins hefur verið leitað
eftir samkomulagi við bæjar-
stjórn Akureyrar um beinar út-
sendingar frá fundum. „Annan
hvorn þriðjudag, þegar ekki er
bæjarstjórnarfundur ætlum við
að fjalla um starfsemi bæjarins,
þjónustu eða framkvæmdir.
Þetta verður unnin dagskrá.
Aformin eru svona, en hvað
tekst að gera núna á fyrstu vik-
unum er ekki alveg ljóst.“
Telurðu að útsendingar frú
bæjarstjómarfundum séu fallnar
til vinsælda?
„Mér kæmi á óvart ef fólk
hefði ekki áhuga á að kikja á
hvað er að gerast hjá bæjar-
stjórninni, ekki síst á kosninga-
ári. - En tveggja eða þriggja tíma
útsending frá bæjarstjórnarfundi
er ekki spennandi enda ekki ætl-
uð sem slík en efnið varðar þetta
bæjarfélag og ef að miðillinn
getur auðveldað fólki að fylgjast
með og þannig auðveldað því að
hafa áhrif á sitt nánasta samfé-
lag þá er það í sjállu sér einhvers
virði.“
Hvernig stillir maður Aksjón
inn d tækið sitt?
„A nýjum tækjum geta menn
notað leitarann en á mínu sjón-
varpi erum við á efstu rás,
rásinni á undan vídeórásinni."
Vinsældalisti Frostrásariiinar
Framvegis á föstudögum verður vinsældalisti
Frostrásarinnar birtur í Degi.
Lag
Turn my head
Tumbthumbing
Bailando
Di Da Di
Sunchyme
Avenues
Got it til it...
Samba de janero
Hljómsveit Síðasta vika
Live
Chumbawamba
Paradiso
Mario Montell
Dario G
Refugees
Janet Jackson
Bellini
9. Drug’s dont work The Verve nýtt
10 Power of love Corona nýtt
11 Friday night 24/7 ásamt Stay C nýtt
12. Wanna by like ... Simone J 20
13. Stay Sash nýtt
14.Joga Björk 15
15. Anybody Seen ... Rolling Stones nýtt
16. Prumpufólkið DR. Gunni nýtt
17. Phenomenon LL cool | nýtt
18. Let it rain Nana nýtt
19. Familiar Incubus .. . grayboy 20
20. Spáðu í mig Kolrassa krókríðandi 16
Kvöldstund
með Vigdísi
Þann 24. október, á degi Sam-
einuðu þjóðanna, stendur jafn-
réttisnefnd Akureyrar fyrir opn-
um fundi í Deiglunni sem hefst
klukkan 20.30. Gestur fundar-
ins er Vigdís Finnbogadóttir.
Vigdís var fyrsta konan sem var
þjóðkjörin forseti og vakti það
heimsathygli á sínum tíma. Hún
sat á forsetastóli frá 1980 til
1996 og kynntist á þeim tíma
mörgum góðum konum víða um
heim og ýmsum kvennamálefn-
um. Vigdís mun meðal annars
segja frá því sem hún fæst við
þessa dagana og ræða um konur
og kvennamál en á forsetastóli
kynntist hún mörgum góðum
konum víða um heim og ýmsum
kvennamálefnum.
Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari og Rósa Kristín
Baldursdóttir söngkona sjá um
tónlistina.
Opið hús í Deiglunni frá
klukkan 20:30-22:30, allir vel-
komnir.
Verk Kristjáns
Steingríms
Á sunnudaginn klukkan 16:00
verður safnaleiðsögn fyrir sýn-
ingargesti Listasafns Akureyrar
um sýningu Kristjáns Stein-
gríms Jónssonar.
Sýning Kristjáns Steingríms
nær yfir tæpan áratug af ferli
hans og býður upp á gott tæki-
færi til umhugsunar og umfjöll-
unar. Kristján Steingrímur er
fæddur á Akureyri og starfar nú
sem skólastjóri Myndlistaskóla
Reykjavíkur.
Sýning Kristjáns nær yfir 7-8
ára tímabil. „Fyrstu verkin á
sýningunni fjalla um virkjaðar ár
á lslandi. I þeim eru stærðfræði-
tákn, rafmagnstákn og rafrásar-
teikningar úr stýrikerfi Raf-
magnsveitna ríkisins, því kerfi
sem flytur rafmagn á milli
landshluta," segir Kristján. Þá
má nefna að Þingvallamyndir
Kristjáns lýsa gróðurfari með
táknum kortagerðarmanna.
Þátttaka er ókeypis og allir
velkomnir.