Dagur - 24.10.1997, Page 10
26 - FÖSTUDAGUR 2 4 . OKTÓBER 1997
Xfc^MT'
LÍFIÐ í LANDINU
HESTAR
Angi með afkvæmum. irnio: ej.
Heiðursverð-
laimahestur
seldur úr landi
Heiðursverðlaunahest-
urinn Angi frá Laugar-
vatni hefur verið seld-
ur úr landi og fer hann
til Danmerkur. Angi
sem er undan Ongli
frá Kirkjubæ og Sif frá
Laugarvatni er af lang-
ræktuðum stofnum
kominn. Hann er
fæddur 1988 og er því
1 5 vetra gamall. Hann
var fyrst sýndur á landsmótinu á Gadd-
staðaflötum 1986 4ra vetra gamall og
hlaut þá 7,94 í einkunn og eftirfarandi
umsögn: „Fríður, meðalreistur, mjúk-
vaxinn foli með prýðis lundarfar, lipran
vilja og hreinan allan gang. 6 vetra
gamall fær hann 8,26 bæði fyrir sköpu-
lag og hæfileika. Angi hlaut I. verðlaun
fyrir afkvæmi 1994 og heiðursverðlaun
1996. Hann hefur verið meðal efstu
hesta f kynbótamatinu og er í matinu
1996 með 129 stig og er þar lang efst-
ur fyrir fótagerð með 158 stig. Þessi
eiginleiki hefur erfst vel frá honum.
Angi á marga hátt dæmda syni og
dætur og 9 stóðhestar undan honum
hafa hlotið 1. verðlaun. Þar er efstur
Nökkvi frá Vestra-Geldingaholti með
8,32 í aðaleinkunn.
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
voru eigendur Anga en þau keyptu
hann 1 988. S.ú ákvörðun að selja hest-
inn er tekin vegna þess að notkun hef-
ur verið lítil á honum upp á síðkastið.
Það sem sett hefur verið út á hestinn
er einkum geðslagið. Þó hann hafi
sjálfur verið .geðprúður þá virðist það
ekki halu skilað sér nógu vel til afkom-
endanna. Það er hins vegar alltaf
spurning hvenær rétt er að afsetja
hesta og flytja þá úr landi því dæmin
sýna að margir hestar hafa vaxið í áliti
með auknum afkvæmafjölda og má í
því sambandi minna á Gáska frá Hofs-
stöðum og Feyki frá Hafsteinsstöðum.
Fötagerðm mjög sterk
Hestur sem getur af sér jafn stóran hóp
af 1. verðlauna hestum og Angi hefur
gert hlýtur að búa yfir mörgum kostum
sem þörf er fyrir að efla í íslenska
hestakyninu. Sérstaklega má í þessu
tilfelli benda á sterka fótagerð Anga.
En synir hans sem enn eru hérlendis
munu væntanlega skila þessum erfðum
til afkomenda sinna svo og dæturnar,
en það er mikið kappsmál að bæta
þennan eiginleika í stofninum.
Til þess að stóðhestur hljóti heið-
ursverðlaun þarf hann að eiga minnst
50 dæmd afkvæmi og kynbótamat hans
þarf að vera 125 stig eða meira. Það
þýðir að meðaleinkunn afkomendanna
þarf að vera góð.
Það er mikið framboð á háttdæmd-
um stóðhestum á Islandi og spurning
hvort ekki sé komið að því að herða
enn skilyrði fyrir því að hestar hljóti 1.
eða heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Það
breytir því hins vegar ekki að setja
verður stórt spurningarmerki við því
þegar verið er að selja hest sem er með
þeim efstu í dómi fyrir afkvæmi.
Angi er fyrsti hesturinn sýndur til
heiðursverðlauna sem fluttur hefur
verið úr landi. Gassi frá Vorsabæ II var
einning búinn að ná þessu marki en
hafði ekki verið sýndur til þeirra verð-
launa er hann var seldur til Danmerk-
ur. Gassi og Angi eru jafn gamlir og
komu til dóms fjögurra vetra á sama
mótinu. Þeir hafa nú það sameiginlega
verkefni að bæta íslenska hrossastofn-
inn í Danmörku.
Kári
Arndrsson
skrifar
Karlar ráðleggja konum
• Aldrei kaupa nýja tegund af bjór bara
vegna þess að „það var útsala“.
• Ef við erum í garðinum og það er
kveikt á sjónvarpinu inni, þá þýðir það
samt ekki að við séum ekki að horfa ...
• Þegar þið þurfið að segja okkur eitt-
hvað, reynið að koma því að á meðan
auglýsingarnar eru.
• Þó svo þið getið aðeins notað nærfötin
einu sinni, merkir það ekki að þið
þurfið fleiri nærföt, það segir okkur
bara að nærföt séu slæm Ijárfesting.
• Gerið svo vel að aka ekki þegar þið
eruð ekki að aka.
• Reynið ekld að útskýra fyrir okkur
hvernig fólkið í sögum ykkar er skylt
eða tengt. Við skiljum það ekki og
kinkum bara kolli og bíðum eftir loka-
línunni.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Iifsleiði
Ég er 45 ára karlmaður, í góðri vinnu, á
góða fjölskyldu og ætti að vera alveg full-
komlega hamingjusamur með lífið og til-
veruna. En það er ég ekki. Það er í mér
sífelld óljós þrá eftir einhveiju, sem ég
veit ekki hvað er, einskonar lífsleiði. Mér
finnst Iífið vera svo tilgangslaust, en veit
samt ekki hvernig ég á að bregðast við.
Þetta er því miður allt of algengt á
meðal fólks, sérstaklega þeirra sem
komnir eru um fertugt. Þá fer fólk að
endurmeta ýmislegt og skoða líf sitt.
Oft er gott að skrifa lista, hvað dreymir
mig um? Hvað er ég ósáttur við, hverju
myndi ég vilja breyta og svo framvegis.
Setja í forgangsröð og vinna svo að
hverju fyrir sig. Láta það eftir sér að
taka tíma frá í leikfimi eða eitthvað
annað sem orsakar hreyfingu, helst
daglega. Það dugar oft til að hrista upp
í manni nægjanlega til að þessi óljósi
leiði hverfi. En umfram allt er nauð-
synlegt að vera bjartsýnn, einblína á já-
kvæðu hliðamar.
Vigdís svarar í simaiui!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símanu kl. 9-12.
Simiuu er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
FLÓAMARKAÐUR
Gamalt sófasett gefins
Anna Sigga á gamalt furusófasett og furu-
sófaborð sem hún vill gjarnan gefa. Sófa-
settið samanstendur af þriggja sæta sófa
og einum stól. Ef einhver telur sig geta
notað þetta sófasett, þá er síminn hjá
Önnu Siggu 462 4712.
Endunumið
Það er mikið hringt út af enduvinnslu og
kona ein vildi koma því á framfæri enn og
aftur að Rauði krossinn tekur á móti flík-
um sem fólk saumar og prjónar og sendir
áfram til stríðshrjáðra landa. Verkefnið
heitir FÖT SEM FRAMLAG og fást allar
uppl. hjá Rauða kross deildunum.
Taimvernd
, 7.;' ■ . P Til okkar hringdi hjúkrunar-
- fræðingur sem vildi vekja at-
hygli á því að börn koma í
‘ ungbarnaeftirlit frá 6 vikna
aldri og þá strax er lögð mikil áhersla á
tannvernd. Einnig á leikskólum og í
skólum. Það er stöðug fræðsla í gangi
alveg frá fæðingu barnsins og henni
finnst að það megi alveg koma fram
hvað hjúkrunarfræðingar, Ieikskóla-
kennarar og kennarar leggja mikið í þá
Iræðslu.