Dagur - 24.10.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 24.10.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 2A.OKTÓBRR 1997 - 27 LÍFIÐ í LANDINU Honda Civic 1600 V-TEC ‘97 rauður ek. 12. þ. km 160 hö ABS sóll álf. ofl. Verð: 1.800.000,- Bflasala • VW Polo 1000 3. d ‘96 hvítur ek. 21. þ. km Verð: 800.000,- VW Vento Grand 1600 i A/T ‘97 blár ek. 7 þ. km álf spoil ofl. Verð: 1.500.000,- Bflaskipti Toyota Touring 1600 GLI 4x4 ‘91 blár ek. 91 þ. km áfl Verð: 970.000,- Bflasala • Bflaskipti Nissan Terrano V6 3000 5. g ‘93 grænn ek. 74 þ. km 31“ áfl brk ofl. Verð: 1.950.000,- Mazda E2200 dísel 4x4 ‘91 hvítur ek. 130 þ. km VSK-bíll Verð: 900.000,- Bflasala • Bflaskipti MMC Pajero V6 3000 A/T ‘93 Toyota 4Runner V6 3000 5. g ‘93 blár/grár ek. 76 þ. km álf sóll ofl. vínr. ek. 43 þ. km sóll Verð: 2.300.000,- Verð: 1.900.000,- Cherokee Laredo 4000 A/T ‘88 rauður ek. 140 þ. km Verð: 1.090.000,- • Bílasala MMC L-300 dísel turbo 4x4 ‘96 blár/grár ek. 28 þ. km 8 manna Verð: 2.000.000,- • Bflasala Subaru Domino 4x4 ‘96 silfur ek. 35 þ. km 6 manna Verð: 950.000,- • Bflasala Shetland 570 120 hö Volvo Penta inb/outb VHF-stöð ofl. ofl. Verð: 700.000,- Skiþti dýrari bíl Vantar vélsleða á skrá og á staðinn strax- Góð inniaðstaða - - ( BÍLASALINNJ nöldur ehf. B í L A S A L A við Hvannavelli, Akureyri Simar 461 3019 & 461 3000 Iákamshitinn féli Klukkan er 21.00 á miðviku- dagskvöldi. Einn í ellefubíó svindlar og er einn í níubíó. Oað er kalt úti. En það sem skiptir meira máli að það er mjög kalt inni í kvikmyndasalnum. I hléi eru gestir Borgarbíós á Akureyri að berja hita í hvern annað til að njóta þess sem á tjaidinu er. Undirritaður notar forláta bak- poka sem með er í för sem ábreiðu. Ákveð síðan að láta myndina sem er til sýningar þetta kvöld ylja sér. Mynd kvöldsins var Áddicted to Love með þeim Meg Ryan og Matt- hew Broderick í aðalhlutverk- um. Mynd sem kom þægilega á óvart. Mynd um þegar allt er lagt í sölurnar til að „eignast" hina sönnu ást. Mynd sem náði að ieiðrétta líkamshita minn þegar starfsmenn Borgarbíós gleymdu að skrúfa frá ofnum. Það má kannski segja að það hafi verið með ráðum gert að hafa kalt loft í salnum til kanna áhrif myndarinnar. Við skulum hafa það þannig. Eins og áður sagði kom myndin mér þægilega á óvart og var nokkuð skemmtileg. Ágæt- lega leikin og vel útfærð ástar- mynd, þar sem allt endar að sjálfsögðu vel. Myndin fjallar (eins og alltaf í stuttu máli) um tvo einstaklinga sem leggja allt f sölurnar til að endurheimta hinn „rétta“ lífsförunaut. En eins og einhver benti á, að það er ekki hægt að velja einhvern til að elska sig (þetta var sagt í myndinni eða var það Valdís Gunnarsdóttir). Tónlistin var noldvuð góð og féll vel að sögu myndarinnar eins og gefur að skilja þegar ástin er annars veg- ar. Grínið og glensið var nokkuð þægilegt og var hægt að skella vel upp úr nokkuð oft. Þetta er tveggja og hálfsstjörnu mynd. Fín mynd lýrir alla sem vilja að- eins „hlýja“ sér á köldum og dimmum kvöldum. Svona í lokin, kæru félagar í Borgarbíó. Það er farið að kólna úti. Það er svo notalegt að láta sér líða vel í bíó. Annað. Ekki skella hléi á þegar aðalsöguhetj- ur myndarinnar eru í miðjum samræðum. Það slítur sögu- þráðinn illa. Ekki meira að sinni. Ein „kuldaskræfa" í níubíói. SMÁTT OGSTÓRT Sigurdór Sigurdórsson Ljósálfurinn Það urðu nokkuð líflegar umræður í fyrir- spurnartíma á Alþingi á miðvikudaginn. Þá var spurt hvort hefði slysum fækkað á Reykjanesbraut eftir að lýsingu var komið upp við brautina. Ræddu menn þá um nauðsyn þess að breikka Reykjanesbraut- ina vegna mikils umferðarálags. Meðal annarra komu þær Rannveig Guðmundsdóttir og Siv Friðleifsdóttir í ræðustól og sögðu þingmenn Reykjaneskjör- dæmis hafa staðið vel saman í málefnum Reykjanesbrautar. Siv sagði að vísu að einn þing- maður hefði reynt að leika ein- leik þegar unnið var að því að fá lýsingu á Reykjanesbraut. Eftir það sagði hún hina þingmenn Reykjaneskjördæmis kalla hann „ljósálfinn.11 Hún upplýsti ekki hver þessi þingmaður er. Árni M. Mathiesen kom í ræðustól og tilkynnti að það væri ekki átt við sig. „Ljósálfurinn" sem Siv talaði um mun vera Kristján Pálsson, sem manna ötulast hefur unnið að því að bæta Reykjanesbrautina. Rannveig Guðmundsdóttir. Siv Friðleifsdóttir. Baltasar Kormákur. Gullkoriiiii Nú er prófkjiir Sjálfstæðis- flokksins brostið á. Undanfarna daga hefur Morgunblaðið verið með aukablöð með greinum eft- ir og um frambjóðendur flokks- ins í prófkjörinu. Eins og alltaf fellur þar hvert gullkornið á fætur öðru bæði frá frambjóð- endum og þeim sem eru að mæra þá. Guðlaugur Þór segir: Reykjavík á að vera útvörður ís- lendinga! Baltasar Kormákur segir: Menningin er undirstaða samfélagsins! Hvað ætli Kristján Ragnarsson hjá LIU segir við þessari fullyrðingu? Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari í hand- bolta segir: Eg vil hafa Júlíus Vífil í mínu liði! Spurning hvort hann myndi styrkja landsliðið. Páll Örn Líndal segir: Svanhild- ur er manne^kja með skoðanir! Þetta var nauðsynlegt að frá fram. Anna F. Gunnarsdóttir segir: Eg er með „lykla" í höndun- um og mig langar að finna dyrnar sem þeir ganga að! Það er alltaf slæmt að geta ekki opnað útidyrnar sínar. Jóhanna Thor- steinsson segir: Stjórnmnál snúast alltaf um eitt, þau snúast um fólk!! Þá vitum við það. Sheepfold post Friðbert Herbertsson cand mag. skrifar skemnmtilegar hugleið- ingar um hitt og þetta í Stúd- entablaðið lýrir nokkru. þar á meðal um íslensku jólasveinana. Hann segist koma með eina og eina setningu á ensku til útskýr- ingar fýrir erlenda stúdenta. Nafn Stekkjastaurs þýðir hann Sheepfold post og segir svo: Hann er um margt merkilegur. Hann er haltur (he has a limp). Eg þekkti einu sinni mann sem var haltur. Hann hafði einn daginn verið á gangi og ætlað að fara yfir Hringbrautina við Stúdentaheimilið en gömul Volga keyrði yfir hann. Fóturinn hálf datt af honum og undir annan bíl, Mösdu 1987. Þetta var svo sannarlega háskalegt ævintýri og eftir þetta haltraði aumingja karlinn. En tveimur árum seinna náði mamma hans að sannfæra hann urn að fara til Iæknis. Hann brá sér á Borgarspítalann. Halti maðurinn var og er nískur svo að hann spurði konuna í glerbúrinu: „Borgar spít- alinn?" og konan í glerbúrinu svaraði: „Borgarspftalinn, já.“ og með það fór hann inn til læknis sem hafði numið við Háskóla Islands ... Kínverjar Lítill snáði hringdi í afa sinn fyrir nokkru og sagði: „Afi, ég ætla að segja þér brandara. Veistu hvenær Kínverjar tala íslensku?" Afinn svaraði neitandi. „Þegar þeir hafa lært hana!“ Friðbert Herbertsson þýðir nafn Stekkjastraurs „Sheepfold post“.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.