Dagur - 06.11.1997, Síða 4

Dagur - 06.11.1997, Síða 4
é -FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 OMiyr FRÉTTIR Ný sorpmóttökustöð á Akranesi Ný sorpmóttökustöð íyrir Akurnesinga hefur verið tekin í notkun. Hún er í Berjadalsnámu, skammt ofan við bæinn og er sú fyrsta sinn- ar tegundar á Vesturlandi. I frétt frá Akranesbæ segir að með tilkomu hennar verði bylting í sorpmálum Akurnesinga. Nýjum sorptunnum hefur verið dreift í bænum og hætt verður að nota plastpoka undir sorp. Gert er ráð fyrir að allt sorp sem fellur til við heimilishald verði hirt frá húsum á 10 daga fresti í stað vikulega áður þar sem nýju sorptunnurnar eru stærri en plastpokar. Fyrst um sinn verður sorpið flutt til urðunar hjá Sorpu í Reykjavík en í framtíðinni er gert ráð fyrir að það verði urðað á nýjum urðun- arstað Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum. Sameiniiigarvidrædiir í Mýrasýslu Oll sveitarfélög í Mýrasýslu utan Hvítársíðuhrepps taka nú þátt í við- ræðum um sameiningu sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að kosið verði um sameiningu í janúarlok á næsta ári og ef af sameiningu verði þá verði næstu sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfé- lagi. Nefnd skipuð tveimur mönnum frá hverju sveitarfélagi er nú að semja viljayfirlýsingu um ýmis mál sem snerta sveitarfélögin og hef- ur hún til viðmiðunar það sem gert var þegar Hraunhreppur, Staf- holtstungur, Norðurárdalshreppur og Borgarnes. sameinuðust í Borg- arbyggð. Brákin afhjúpud Af Búðarkletti blasa viö Brákareyjar úti fyrir Borgarnesi og Brákar- sund þar sem Þorgerður lagðist til sunds á flótta undan Skalla-Grími sem „kastaði eftir henni steini miklum og setti mijli herða henni og kom hvártgi upp síðan,“ eins og segir í Egils sögu. En á dögunum var afhjúpað minnismerki um Þorgerði Brák, fóstru Egils Skallagrímssonar, og stendur það á áberandi stað, á kletti neð- arlega í bænum, skammt frá Brákarsundi. Verkið heitir Brák og er eftir Bjarna Þór Bjarnason, listamann á Akranesi. Útsýnisskífa horfin „Henni hefur verið stolið," sagði Kristján M. Baldursson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Is- lands, en útsýnisskífa sem var sett upp á Uxa- hryggjum í sumar er horfin. Kristján segir verðmætin sem liggja í skífunni um sjö til átta hundruð þúsund krónur. „Ferða- félagið lagði út mest af kostnaðinum en eitthvað kom frá heimamönnum. Þetta er umtalsvert tjón. Þeir sem stóðu að því að festa skífuna undrast það mjög hvernig tekist hafi að ná henni af,“ segir Kristján. Riúpnavilliir Töluvert hefur verið um villur rjúpnaskyttna á Vesturlandi. A upp- hafsdegi veiðitímans var um tíma óttast um nokkra veiðimenn sem lentu í villum á Snæfellsnesfjallgarðinum, allt frá Snjófjöllum að Bröttubrekku. Menn sem áttu bíla sína við möstur skiluðu sér niður á þjóðveg og einn sem átti bíl sinn uppi á Bröttubrekku skilaði sér fótgangandi niður í Munaðarnes. Einnig var gerð töluverð leit að ijúpnaskyttu í nágrenni Hvalvatns fyrir nokkrum dögum. Samstaða vlimuveitenda nauðsynleg Á fundi formanna samtaka atvinnurekenda, sem haldinn var mánu- daginn 3. nóvember 1997, var ákveðið að hefja formlega könnun á þörf og hagkvæmni þess að breyta uppbyggingu á hagsmunasamtök- um atvinnurekenda og endurmeta hlutverk þeirra. Fundarmenn voru sammála um að samstaða og styrkur vinnuveitendasamtakanna hafi verið grundvallarforsenda þess að tekist hefði að færa starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja í átt til þess sem keppinautar í öðrum Evrópu- löndum búa við. „Þennan styrk verður að varðveita samhliða því að starfsemi samtakanna verði aðlöguð fjölbreyttari öflum,“ segir í yfir- lýsingu atvinnurekenda. Stofnfimdur Bresk-íslensks verslunarráðs Dagana 12.-13. nóvember nk. fara fram stofnfundir Bresk-íslenska verslunarráðsins í Reykjavík og Lundúnum. Nú þegar hafa um 170 fyrirtæki gengið í ráðið, rúmlega 90 ísiensk og 80 bresk. Markmið ráðsins verður að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Bretlands og Islands, en Bretland er stærsta einstaka viðskipta- Iand íslendinga. Þetta verður fjölmennasta millilandaverslunarráðið en nú þegar eru starfandi 5 önnur gagnkvæm verslunarráð með Bandaríkjunum, Frakklandi, Spáni, Svíþjóð og Þýskalandi. Stofn- fundurinn verður kl. 16.30 í Ársal á Hótel Sögu. Fj ölskylduþj ón- usta í fj ár s velti Fjölskylduþjónusta kirkjimnar er í hættu. Forstöðumaduriim kallar á breytta for- gaugsröðun kirkjunu- ar. „Framtfð Fjölskylduþjónustu kirkjunnar er vissulega í hættu ef fram fer sem horfir. Niðurskurð- ur á framlögum til okkar skapar þá hættu að fjölskylduþjónustan leggist af í núverandi mynd,“ seg- ir Þorvaldur Karl Helgason, for- stöðumaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar (FK) og verðandi biskupsritari, í samtali við Dag. Þorvaldur Karl lagði fram skýrslu FK á kirkjuþingi og í skýrslunni segir hann meðal annars: „Kannski er ekkert eins brýnt fyrir [kirkjuna] og stöðu hennar í samfélaginu í dag og að dansa ekki með á þeim leiftur- hraða sem einkennir okkar sam- tíð. Þess í stað væri það gott for- dæmi sem hún sýndi með því að fara sér hægt í stundargleði framkvæmda og fjárfestinga þar sem framtíðarsýn skortir. Frekar ætti hún að einbeita sér að því að fjárfesta enn meira í fyrirbyggj- andi starfi, uppbyggilegum gleði- ríkum samverum, glæða fjöl- skyldulíf heimila með enn meira samstarfi og samtali... að fljóta bara með er ekki í anda þess kraftmikla boðskapar Krists sem vitnar um skapandi mátt er líkn- ar og græðir og vekur von um nýtt iíf. Að ryðja brautu íyrir þau lífsgildi er viðfangsefni kirkjunn- ar á öllum tímum og nauðsyn- legra en oft áður þegar svo marg- ur verður fyrir barðinu á kröfu- hörðum gildum markaðshyggj- unnar." FK velti 12 milljónum króna í fyrra, sem er aðeins um 0,6% af heildarumsvifum þjóðkirkjunnar. En bæði er að 700 þúsund króna framlag Reykjavíkurborgar hefur verið skorið niður og framlag frá héraðssjóði Kjalarnesprófasts- dæmis lækkaði milli ára úr 900 í 500 þúsundir króna og mun það prófastsdæmi vera að íhuga að draga sig út úr þessu samstarfi. 200 þúsund króna framlag frá Héraðssjóði Árnesprófastsdæmis barst aldrei í fyrra og hefur verið afskrifað. „Mér fyndist það herfilegt ef við neyðumst til að draga saman seglin. Nú eru 30 fjölskyldur á biðlista hjá okkur og bara í gær (fyrradag) komu sex nýjar fjöl- skyldur inn. Okkur hefur fundist að misskipting fari vaxandi í þjóðfélaginu og að samfélagið sé að verða harðara en það var. Alls staðar eru skilaboðin um að menn eigi að bjarga sér sjálfir. Þau koma frá heilbrigðiskerfinu jafnt sem annars staðar frá. Und- ir þessum kringumstæðum ber að styrkja Fjölskylduþjónustuna, en ekki draga hana saman," segir Þorvaldur Karl. — FÞG Brunaináiastofnuii niisniuiiaði aðilum Bnmamálastofnim virkaði sem umboðs- aðili slökkviliðsbíla frá Thoma. Sam- keppnisráð skipar stofniminni að mis- muna ekki samkeppn- isaðilum. Brunamálastofnun ríkisins fór að áliti samkeppnisráðs út fyrir verksvið sitt með því að mæla sérstaklega með kaupum sveitar- félaga á slökkviliðsbifreiðum frá einum söluaðila, Thoma frá Þýskalandi. Samkeppnisráð seg- ir það ekki samrýmast markmiði samkeppnislaga að opinber stofnun, sem á að hafa eftirlit með og samþykkja slökkvibúnað, bendi jafnframt á tiltekinn selj- anda slökkvibíla. Með þessum gjörningi er Brunamálastofnun talin hafa mismunað þeim sem á markaðnum starfa. Álit samkeppnisráðs er tilkom- ið vegna kvörtunar frá fyrirtæk- inu Eldvarnamiðstöðinni (Ólaf- ur Gíslason & co). Fyrirtækið benti á milligöngu Brunamála- stofnunar við bifreiðakaupin og færði fram rök fyrir því að Guð- mundur L. Bergsson, deildar- stjóri hjá stofnuninni, væri í raun umboðsmaður Thoma hér á landi. Hann hefði meðal ann- ars farið með fulltrúum sveitar- félaga erlendis að skoða slökkvi- liðsbifreiðar. Brunamálastjóri neitaði harðlega óeðlilegum við- skiptaháttum og segir Guðmund hafa farið út með fulltrúum sveitarfélaga „og þá í eigin tíma og Brunamálastofnun að kostn- aðarlausu". Boðaði brunamála- stjóri að sett verði upp yfirlit „um alla slökkviliðsbíla keypta síðustu 10 ár og farið ofan í hvaða viðskiptahættir hafa tíðkast á þessu sviði en ýmislegt orkar þar tvímælis". Þetta síðast nefnda virðist Eldvarnamiðstöð- in hafa tekið til sín, þvf fyrirtæk- ið undrast „dylgjur um vafasama viðskiptahætti". Samkeppnisráð taldi að Brunamálastofnun hefði rýrt hæfi stofnunarinnar til hlutlægs eftirlits og leiðbeiningar með því að koma sér í þá stöðu sem kvartað var yfir og beindi því til stofnunarinnar að mismuna ekki þeim aðilum sem starfa á þess- um markaði og þá skaða þar með samkeppnina ekki. — FÞG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.