Dagur - 06.11.1997, Side 10

Dagur - 06.11.1997, Side 10
10- FIMMTUDAGUR 6.NÓVEMBER 1997 rD^tr EFST Á BAUGJ Sameíningarsiimar gjörsamlega áttavilltir „Það er náttúrlega ótrúlega klaufalegt hvernig Pósts og síma málið hefur þróast. Fyrst er sjálfsögdum upplýsingum neitað og svo hefði þurft að kynna breytingarnar á lengri ttma, “ segir Halldór Ásgrímsson. - mynd: e.ól Halldór Ásgrímsson segist ekki geta gert sér grein fyrir hvemig sameiginlegt „vinstra afl“ kemur til með að líta út, en engin samstaða sé 11 m málefni. Hann segir klaufalegt hvemig mál Pósts og síma hefur þróast. Þingmenn A-flokkanna, Kristinn H. Gunn- arsson og Sighvatur Björgvinsson, rituðu nýlega grein í Dag vegna orða Davíðs Oddssonar í Hðtali við Ðag. Davíð gerði þar lítið úr hugmyndum vinstri manna um sameiningu eins og unnið hefði verið að því máli, og sagði engar líkur á að slíkur kostur væri hæfur til stjórnarsamstarfs, hvorki hjá Framsóknarflokki né Sjálfstæð- isflokki. Kristinn og Sighvatur lýstu eftir við- hrögðum forystumanna Framsóknarflokks og spurðu hvort þeir létu sér vel líka að Davíð hafnaði fyrir þeirra hönd samstarfi við A-flokkanna. Þessa spurningu bar blað- ið upp fyrir Halldór Asgrímsson, formann Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra. „Þarna er Davíð að velta íyrir sér stöð- unni en ég sé ekki að hann tali fyrir hönd Framsóknarflokksins. Það er útúrsnúning- ur. Hins vegar geri ég mér enga grein fyr- ir því hvernig sameiginlegt afl vinstri flokk- anna kemur til með að líta út. Framsókn- arflokkurinn er ekki í samningarviðræðum við aðra flokka og stendur ekki til. Það sem upp úr stendur í sambandi við þessar samningaviðræður er að engin samstaða er um mjög stóra málaflokka." Engin samstaða hjá A-flokkum — Hvað úttu við? „Ef ég byrja á Evrópumálunum þá segja þeir: Þarna er engin samstaða en við skul- um leysa það með þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér er spurn: Hvaða afstöðu ætlar fólkið sem biður um þjóðaratkvæðagreiðslu að taka? Það er ekki nóg að vísa málunum til þjóðarinnar. Annar stór málaflokkur er sjávarútvegs- stefnan. Þar hafa þingmenn Alþýðubanda- lagsins lagt til að löggjöfin verði afnumin árið 2001 en segja ekki eitt orð um hvað taka eigi við. Það má Iíka hugsa sér að af- nema umferðarlögin af því að slysum hef- ur fjölgað! Eins má hugsa sér að afnema refsilöggjöfina þar sem glæpum hefur fjölgað. Þjóðin gerir væntanlega kröfu til að mörkuð verði stefna í málum en löggjöf ekki afnumin. Ég get ekki sagt til um hvers konar samstarf gæti orðið í framtíðinni við flokk sem vinnur svona.“ — Hvað um R-listann? „Framsóknarflokkurinn hefur átt ágætis samstarf við þessa flokka í málefnum Reykjavíkurborgar. Náðst hefur samstaða um málefni en ekki verið fjallað um utan- ríkismál, sjávarútvegsmál, landbúnað eða, varnar- og öryggismál svo einhverjir stórir flokkar séu nefndir." Gjörsamlega áttavilltir — Er þd stefnuleysið algjört í þessum pæl- ingum A-flokkanna að þtnu viti? „Þegar menn losa sig undan erfiðum málum með því að segja: Förum í þjóðarat- kvæðagreiðslu eða afnemum löggjöfina þá sýnir það að þeir eru gjörsamlega áttavillt- ir, enda veit ég að mjög stórir hópar innan allra þessara flokka eru mjög andvígir sam- einingu. Menn sameinast ekki bara til að sameinast. Heildstæða stefnu þarf um helstu málefni. Það er ekki hægt að bjóða kjósendum upp á svona vinnubrögð." — Leggurðu mat á hvort flokkartiir myndu fá fleiri atkvæði í næstu þingkosningum sameinaðir eða að óbreyttu? „Nei, ég geri mér enga grein fyrir þvf. Það fer sjálfsagt m.a. eftir því hvernig framboðslistarnir líta út. Eg tel ólíklegt að mikil breyting yrði þótt núverandi þing- menn þessara flokka birtust á nýjum lista. Væntanlegu munu sömu einstaklingar ráða ferðinni, það er engin vísbending um annað.“ Afar ósáttur vegna Pósts og sima — Hvað segir þú um undangengna atburði t málefnum Pósts og stma? Ertu sáttur við boðaðar breytingar? „Við framsóknarmenn erum afar ósáttir við ganginn í því máli. Við gerum okkur hins vegar grein fjTÍr að Póstur og sími verður að takast á við breyttar aðstæður og nýja tíma í alþjóðlegri samkeppni. Það er mikið afrek að byggja upp jafngóða síma- þjónustu í öllu landinu og við búunt við ef við lítum til stærðar landsins og fámennis. Afar þýðingarmikið er fyrir tengingu Is- lands við umheiminn að vel sé á haldið og grundvallaratriði að fyrirtækið verði rekið á sem hagkvæmastan hátt til að neytendur fái ódýra þjónustu og þá ekki síst þeir sem eru að Ieita þekkingar og menntunar á þessum nýju upplýsingahraðbrautum nú- tímans. Þótt ástæða sé til að gagnrýna margt sem gerst hefur að undanförnu mega menn ekki gleyma sér alveg í því heldur huga að framtíðinni. Þarna er um mjög verðmætt fyrirtæki að ræða sem er í eigu þjóðarinnar og við þurfum að halda vel á þeim spilum." Klaufalegt mál og ómálefnaleg um- ræða — Hvað ertu ósáttastur við? „Það er náttúrlega ótrúlega klaufalegt hvernig þetta mál hefur þróast. Fyrst er sjálfsögðum upplýsingum neitað og svo hefði þurlt að kynna breytingarnar á lengri tíma áður en gjaldskráin var gefin út. Síð- an virðist mér sem of hratt hafi verið farið í breytingarnar en að öðru leyti finnst mér sem umræðan síðustu daga hafi verið fremur ómálefnaleg." — Hvað um þátt samgönguráðherra? „Eg ætla ekki að tjá mig um hann.“ Veikir ríldsstjórnina — Er þetta mál af þeirri stærðargráðu að það veiki ríkisstjórnina? „Ja, það er alveg ljóst að öll svona mál valda ríkisstjórnum erfiðleikum, því færri, því betra. Hins vegar verður aldrei alveg hjá þeim komist. Við erum að ganga í gegn- um mikið breytingaskeið í samfélaginu sem og á alþjóðavettvangi. Þetta virðist mér dæmi um mál, þar sem sumt er gagn- rýnivert en það er dæmt í heild sinni vegna rangrar framsetningar. Hins vegar er það réttlætismál að Islendingar sitji við sama borð, hvar sem þeir búa í landinu. Það er ekki í samræmi við nútímann að fólkið í Grímsey eigi að borga miklu meira fyrir að- gang að upplýsingasamfélagi heimsins en höfuðborgarbúar." Eölileg viðbrögð — Forsætisráðherra greip inn t málið á ögur- stundu. Hefði oddviti Framsóknarflokks ekki átt að konta óánægju sinni á framfæri ef hún var sannarlega fyrir hendi? „Forsætisráðherra er oddviti ríkisstjórn- arinnar og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins" hafa að sjálfsögðu samstarf sín í milli um sín mál. Það gera ráðherrar Framsóknar jafnframt. Það var leitað til viðskiptaráð- herra vegna þessa og hann sendi erindið til athugunar hjá Samkeppnisstofnun i sam- rærni við hans skyldur. Þannig tel ég að rétt hafi verið brugðist við.“ Austfirskar sveitarstjómarkosningar Kosin verður stjórn nýs sveitar- félags á Norður-Héraði, sem til varð við sameiningu Tungu- hrepps, Jökuldalshrepps og Hlíð- arhrepps 19. júlí í sumar. Það vekur nokkra athygli að kosið er til sveitarstjórnar nú en ekki beðið til loka maímánaðar þegar sveitarstjórnarkosningar verða á Islandi. Ibúatala hins nýja sveitarfélags verður um 220 manns og þar sem það er norðan megin Lagarfljóts er það stund- um kallað „Gazasvæðið" af gár- ungunum, ekki síst eftir þær væringar sem hafa verið kringum sameininguna. Arnór Benedikts- son, oddviti Jökuldalshrepps, segir að þetta sé Iiður í sam- komulagi sveitarfélaganna þegar kosið var í aprílmánuði, en þær kosningar voru sem kunnugt er dæmdar ógildar af félagsmála- ráðuneytinu vegna formgalla og voru því endurteknar í sumar og samþykktar í öllum sveitarfélög- unum. Með þessu er markmið- inu lokið að sögn Arnórs sem tel- ur að allt Fljótsdalshérað verði eitt sveitarfélag innan tiitölulega fárra ára. „Þessum sveitarstjórnarkosn- ingum ætti því að vera lokið fyr- ir löngu en þeir sem ekki vilja samþykkja lýðræðisleg úrslit kosninganna halda áfram að kæra. Fyrst var kært vegna þess að kjörskrá hefði ekki verið rétt auglýst en því hefur verið vísað frá en nú er kæruefnið það að við sem höfum staðið í þessu hér á norðurbakkanum höfum haft áhrif á félagsmálaráðherrann við hans úrskurð. Fyrir 15. nóvem- ber munum við tilnefna fólk í komandi sveitarstjórn, lista frá- farandi sveitarstjórna, og ég býst ekki við öðrum lista svo það kann að verða sjálfkjörið. Jafn- framt fer fram skoðanakönnun um nafn á sveitarfélagið og verði ekki kosið verður listinn sendur á hvert heimili í nýja sveitarfé- laginu. — GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.