Dagur - 11.11.1997, Blaðsíða 12
12- ÞRIÐJUDAGUR ll.NÓVEMBER 1997
ÍÞRÓTTIR
Platt hélt liB 1
toppbaráttunni
David Platt, miðju-
maöur Arsenal, hélt
lífi í toppbaráttu
ensku úrvalsdeildar-
iniiar í knattspymu,
þegar hauu tryggði
liði sínu 3:2 sigur
gegn meisturum
Manchester United.
Leikmenn deildarinn-
ar voru á skotskónum
um helgina, því mörk-
in urðu fjörutíu tals-
ins á laugardag og
sunnudag.
„Eg held að við höfum átt marga
stuðningsmenn í dag og að með-
al þeirra hafi verið flestir fram-
kvæmdastjórar deildarinnar. Úr-
slitin eru góð þvf þau munu við-
halda áhuga á deildarkeppninni,"
sagði Arsene Wenger, hinn
franski. framkvæmdastjóri
Arsenal eftir sigurinn á Eng-
landsmeisturunum. Það voru
samlandar Wenger, U-21 árs
Iandsliðsmaðurinn Nicolas An-
elka og Patrick Viera, sem skor-
uðu með skotum frá vítateig, en
Teddy Sheringham svaraðí með
tveimur mörkum íyrir hlé. Það
dofnaði mjög yfir leiknum í síðari
hálfleiknum, en marktækifæri
Arsenal voru fleiri og betri, ekki
síst vegna þess hve varnarmönn-
um Man. Utd. reyndist erfitt að
eiga við Ian Wright. Það var Dav-
id Platt sem tryggði Arsenal sigur
og kom þar með lífi í toppbarátt-
una.
Leikurinn reyndist Manchest-
er United dýr. Gary Pallister
tognaði á baki og hefur þegar
dregið sig út úr enska landsliðs-
hópnum og Paul Scholes fékk að
líta gula spjaldið í fimmta skipti í
vetur og þarf að taka út þriggja
leikja bann. Teddy Sheringham á
við smávægileg hnémeiðsl að
stríða en verður samt í enska
hópnum sem mætir Kamerún
um næstu helgi. Þá var einn
stuðningsmanna Man. Utd.
handtekinn fýrir að kasta smá-
hlut í Nigel Winterburn, leik-
mann Arsenal, undir lok fyrri
hálfleiksins, en stuttu síðar
kvartaði Peter Schmeichel mark-
vörður Man. Utd. yfir því að
hafa fengið „sendingu" frá áhorf-
endum.
Tottenham var síst verri aðil-
inn í fyrri hálfleik þegar liðið lék
gegn Liverpool á Anfield, en það
sama verður ekki sagt um síðari
hálfleikinn, þegar heimamenn
skoruðu fjögur mörk. Tottenham
lagði árar í bát eftir að Steve
McManaman kom gestgjöfunum
yfir á 3. mínútu síðari hálfleiks-
ins. Eftir það var það aðeins
spurning hve mörkin yrðu mörg
og hvort Robbie Fowler mundi
skora í sínum 200. Ieik með
Liverpool. Hann komst næst því
þegar skot hans fór í stöng.
Dean Sturridge nýtti sér varn-
armistök í vörn Leeds til að skora
tvö mörk og fiska eina vítaspyrnu
þegar brotið var á honum. Derby
var 3:0 yfir og virtist vera með
leikinn í hendi sér. George Gra-
ham, framkvæmdastjóri Leeds,
hefur hins vegar aldrei kennt
leikmönnum sínum að gefast
upp, þeir skoruðu tvívegis fyrir
leikhlé. Tvö mörk á lokakaflan-
um tryggðu Leeds sætan sigur í
leik sem var fullur af mistökum á
báða bóga.
Fimm í fyrri hálfleik!
Arnar Gunnlaugsson var í íyrsta
sinn í byrjunarliði Bolton. Enska
blaðið Guardian sagði Arnar vera
eina Ieikmann liðsins sem náð
hefði að skapa hættu við mark
heimamanna, en framtak hans
dugði skammt. Sheffield tók leik-
menn Bolton í bakaríið og sigraði
5:0 og voru öll mörkin skoruð í
fyrri hálfleiknum. Sigur Sheffi-
eld var nokkuð kaldhæðnislegur í
ljósi þess að David Pleat, sem
sagt var upp framkvæmdastjóra-
stöðu félagsins, hafði sagt á síð-
ustu vikum sínum í starfinu að
hlutirnir kæmu til með að breyt-
ast þegar Ieikmenn næðu sér upp
úr meiðslum. Andy Booth stað-
festi orð Pleat með því að skora
þrennu í sínum fyrsta leik eftir
meiðsli. Colin Todd, fram-
kvæmdastjóri Bolton, sá þann
kost vænstan að skipta út tveim-
ur varnarmönnum í Ieikhléi, en
þeir Guðni Bergsson og Arnar
voru með allan leiktímann.
Chelsea bar sigurorð af West
Ham í hörðum slag Lundúnalið-
anna á sunnudaginn. Barátta lið-
anna var gífurlega mikil, oftast á
kostnað knattspyrnunnar, en það
var ítalinn Gianfranco Zola sem
David Platt tryggði liði sínu sigur gegn
meisturum Man. United um helgina.
tryggði Chelsea stigin þrjú með
öðru marki liðsins.
Ray Hartford, framkvæmda-
stjóri Blackburn, hrósaði sínum
mönnum fyrir besta leik sinn á
tímabilinu eftir 3:2 heimasigur á
Everton á Iaugardaginn. Það
voru þá gestirnir sem náðu tví-
vegis forystunni með því að nýta
tvö af þremur marktækifærum
sínum í Ieiknum, en Blackburn,
sem var mun betri aðilinn allan
leikinn, skoraði tvívegis með
íjögurra mínútna millibili í lokin
og er nú í 2. sæti deildarinnar.
Attilio Lombardo var besti
maður Crystal Palace, sem var
nálægt því að vinna sinn fyrsta
heimasigur á tímabilinu, þegar
Iiðið mætti Aston Villa. Hermann
Hreiðarsson lék allan tímann
með Lundúnaliðinu en ekki var
getið um frammistöðu hans í
ensku blöðunum.
Southampton hefur nú unnið
sex af síðustu sjö leikjum sínum
og er á hraðferð upp töfluna. Ný-
liðar Barnsley urðu engin hindr-
un, staðan var 3:0 í leikhléi. Sig-
ur Southampton vár sérstakur
fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta
skipti í þrjú ár sem liðið sigrar í
þremur deildarleikjum í röð.
Tíu mðrk hj á Ólafi
Ólafur Stefánsson var aðalmað-
urinn í liði Wuppertal sem lagði
Grossvaldstadt, 25:23, í þýsku 1.
deildarkeppninni í handknattleik
á sunnudaginn. Ólafur skoraði
tíu marka Wuppertal og nýlið-
arnir eru nú um miðja deild. Geir
Sveinsson skoraði þrjú af mörk-
um Wuppertal og Dagur Sigurðs-
son tvö.
Patrekur Jóhannesson skoraði
sex af mörkum Essen, sem gerði
jafntefli á heimavelli sínum gegn
Bayer Dormagen, 27:27. Essen
var lengst af með forystuna í
leiknum en Róbert Sighvatsson
og félagar hjá Dormagen náðu að
jafna undir lokin.
Konráð Olavson og félagar í
Niederwurzbach lögðu Rhein-
hausen að velli, 28:25, og lyftu
sér þar með upp af fallsvæðinu.
Staöan er nú þessi í deild-
inni
Lið undir stjórn íslenskra þjálf-
ara og með íslenska leikmenn
eru feitletruð.
Úlafur Stefánsson skoraði tíu mörk fyrir Wuppertal.
THW Kiel
8 7 1 0 224:193 15
TBV Lemgo
7 5 0 2 187:169 10
Wallau Massenh.
7 5 0 2 178:165 10
Magdeburg
6 3 2 1 151:145 8
TuS Nettelstedt
7 4 0 3 202:185 8
Flensburg
7 4 0 3 186:175 8
SG Hameln
74 0 3 193:187 8
Wuppertal
7 3 13 187:182 7
GWD Minden
7 2 3 2 176:171 7
Niederwurzbach
6 2 1 3 141:144 5
Bayer Dormagen
7 í 3 3 171:183 5
Grossvaldstadt
7 2 1 4 164:176 5
Gummersbach
8 2 15 208:223 5
Rheinhausen
7 2 0 5 177:195 4
Th SV Eisenach
7 2 0 5 168:194 4
Tusem Essen
7 11 5 172:198 3
Sunnudagur
Arsenal-Man. LJtd. 3:2
Aneka 7, Vieira 27, Platt 82 - Sher-
ingham 33, 41.
Chelsea-West Ham 2:1
Ferdinand sjm. 57, Zola 83 - Hart-
son vsp. 84.
Laugardagur
Blackburn-Everton 3:2
Gallacher 37, Duff 81, Sherwood
84 - Speed 7, Ferguson 55.
Coventry-Newcastle 2:2
Dublin 4, 82 - Barnes 31, Lee 87
Crystal Palace-Aston Villa 1:1
Shipperley 42 - Joachim 86.
Leeds-Derby 4:3
Wallace 37, Kewell 40, Hassel-
baink vsp. 82, Bowyer 90 -
Sturridge 4,11,
Asanovic vsp. 33.
Liverpool-Tottenham 4:0
McManaman 48, Leonhardsen 50,
Redknapp 65, Owen 86 -.
Sheff. Wed-Bolton 5:0
Di Canio 20, Whittingham 26,
Booth 29, 33, 44 -.
Southampton-Barnsley 4:1
Le Tissier vsp. 3, Palmer 5, Davies
35, Hirst 54 - Bosancic vsp. 37.
Staðan er þessi eftir leiki sunnu-
dagsins í ensku knattspyrnunni:
Man.Utd.
Arsenal
Blackburn
Chelsea
Leeds
Liverpool
Leicester
Derby
Newcastle
Coventry
Wimbledon
Crystal Pal.
Southampton
West Ham
Aston Villa
Tottenham
Everton
Bolton
Sheff. Wed.
Barnsley
14 8 4 2 31:10 28
14 7 6 1 30:15 27
14 7 6 1 26:13 27
13 8 1 4 29:16 25
14 7 2 5 20:16 23
13 6 4 3 25:13 22
13 6 4 3 19:13 22
13 6 2 5 25:19 20
11 5 3 3 14:15 18
14 3 8 3 12:16 17
13 4 4 5 15:15 16
13 4 4 5 13:15 16
14 5 18 17:21 16
13 5 17 17:21 16
14 4 3 7 13:20 15
14 3 4 7 11:21 13
13 3 3 7 15:21 12
13 2 6 5 10:21 12
14 3 3 8 23:35 12
14 3 110 1 1:40 10
Hlé verður gert á deildinni frá og
með gærdeginum, vegna vináttu-
landsleikjar Englendinga og
Kamerún. Næsta umferð verður
leikin 22. þessa mánaðar.
HANDBOLTI
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL
KA(ísIandi)-Celje(Slóveníu) 23:26
Generali Trieste (Italíu)-
Badel 1862 (Króatíu) 20:22
Næstu leikir:
Celje-Generali (15./11.)
Badel 1862-KA (16./11.)
Generali-KA (3./4.12.)
Celje-Badel 1862 (3./4.12.)
B-RIÐILL
Drammen (Noregi)-Ademar Leon
(Spáni) 25:27
Red Star (Júgóslavíu)-Pfadi
Winterthur (Sviss) 29:27 )
Næstu leihir:
Pros. Adem. Leon-Red Star
(15./11.)
PfadiWinterthur-Drammen
(16./11.)
C-RIÐILL
ABC Braga (Portúgal)-Barcelona
(Spáni) 21:21
Hapoel Rishon (Israel)-
Virum Sorgenfri (Danmörku)
30:23
Næstu leikir:
Virum-ABCBraga (15./11.)
Barcelona-HapoelRishon (15./1 1.)
D-RIÐILL
Jafa Promet Resen (Makedónfu)-
TBV Lemgo (Þýskalandi) 26:25
CS Cabot Zubri (Tékldand)-Fotex
Veszprém (Ungverjalandi) 24:30
Næstu leikir:
Cabot Zubri-Lemgo (15./11.)
Fotex Veszprém-Jafa Promet
(16./I1.)