Dagur - 14.11.1997, Page 5
F 0 S T U D AGU R 14. NÓVEMBER 1997 - 5
Xk^MT'
FRÉTTIR
Bjartsým kaupmaima
fj árfest í steinsteypu
Hátt í 100% fram-
leiðmaukning í smá-
söluverslun. Betri af-
komu hefur ekki gætt
í hærri launum.
Sjoppur á útleið.
„Það litla sem við erum búnir
að sjá úr þessari skýrslu er að
framleiðniaukning vinnunnar
hefur orðið gríðarleg í smásölu-
verslun, eða hátt í 100%. Við
teljum að launin hafi ekki
hækkað í neinu samræmi við
það. Aukningin hefur því vænt-
anlega skilað sér annars vegar í
lægra vöruverði og hins vegar í
bættri afkomu fyrirtækja. Eg
held að það hafi aukið mönn-
um bjartsýni og m.a. til fjárfest-
inga í steypu,“ segir Gunnar
Páll Pálsson, forstöðumaður
Ijármálasviðs Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur.
I næstu viku er von á skýrslu
sem Hagfræðistofnun Háskóla
Islands hefur unnið fyrir VR
um vinnuafl og fjárfestingar í
verslun. Sem kunnugt er þá
stefnir í að kaupmenn á höfuð-
Hagfræöistofnun Háskóla íslands er ad vinna að skýrs/u fyrir VR um vinnuafl og fjárfestingar í verslun. Niðurstöðurnar verða
væntanlega notaðar sem röksemd til að bæta kjör verslunarfólks í Ijósi bættrar afkomu kaupmanna.
borgarsvæðinu ætli að fjárfesta auknu verslunarrými, sem yrði Kringlur að meðtöldum bíla-
fyrir allt að 7 milljarða króna í álíka að flatarmáli eins og þrjár stæðum. Þessi þróun og sú sem
verið hefur með þátttöku bæj-
arfélaga í byggingu verslunar-
miðstöðva er talin leiða til
hærra vöruverðs, hærri skatta
og lægri launa. Stjórn VR
hyggst síðan nota efni skýrsl-
unnar sem röksemd fyrir því að
hlutur launafólks í verslun hef-
ur verið fyrir borð borinn í
bættri afkomu hennar.
Samkcppni og tækni
Gunnar Páll telur að þessi
framleiðniaukning í smásölu-
versluninni frá níunda ára-
tugnum og fram á þann tfunda
sé einkum vegna þeirrar tækni
sem felst í strikamerkjavæðing-
unni og samkeppninni í mat-
vörugeiranum. Hann vekur
jafnframt athygli á þeirri breyt-
ingu sem er að verða í verslun
og þjónustu sem felst í því að
sjoppur eru að týna tölunni á
sama tíma og verslun eykst á
bensínstöðvum. Samhliða þess-
um breytingum hefur smásölu-
verslunin tekið yfir hluta af
starfsemi heilsala með því að
flytja sjálf inn þær vörur sem
hún hefur á boðstólum. Það
hefur síðan leitt til bakslags í
stétt heildsala. — GRH
Islensk getspá - sala reikningsára
1 dnn
1990-91 1991-92 1992 93 1993-94
■ Lottó ■ Víkingalottó
Áhuginn fyrir laugardagslottóinu er stöðugt niður á við það sem af er áratugnum og Vlkingalottóið hefur verið
á sömu leið síðustu árin.
Nýr jóker í lottóið
Jóker er á leiðmni í
laugardagslottóið.
Fimm stafa tala sem
gefur öUum sem haua
fá 1 miUjón í vinning.
íslensk getspá verður jafnt og
þétt að bjóða upp á nýjungar til
að hamla á móti harðri sam-
keppni um „spilapeninga“ Iands-
manna, einkum við spilakassana.
Salan hefur minnkað árlega í
þrjú ár, síðast um 6% í fyrra. Vík-
ingalottóið reif upp dalandi tekj-
ur í b)rjun, en áhuginn á því fór
líka fljótt að minnka. Kínó var
startað fyrir tveim árum en
reyndist „feilskot". Og nú er í
hönnun nýr leikur - Jóker - sem
tengist laugardagslottóinu, sam-
kvæmt ársskýrslu UMFI. Heill
Jóker gefur 1 milljón í vinning.
Búist er við Jóker fram á sjónar-
sviðið að aflokinni jólavertíð,
þ.e. snemma á næsta ári.
Evrópskur lottóleikur
„Jóker er þekktur í Evrópu og
virðist evrópskur leikur, því við
höfum ekki séð hann annars
staðar,“ segir Bolli Valgarðsson
hjá Islenskri getspá. Hann segir
lottókaupendur ráða því hvort
þeir kaupi Jókerinn líka - fyrir
80 kr. - en hann verði ekki fal-
ur einn og sér. Fyrir þá sem kjósa
Jóker velji sölukassinn eitt 5
stafa númer. Dregið verði á sér-
stökum Iukkuhjólum, í tengslum
við lottóið. Þeir sem reynist með
rétta númerið, einn eða fleiri, fá
I milljón hver. Síðustu fjórar töl-
ur númersins réttar gefa
100.000 kr., 3 tölur 10.000 og 2
síðustu tölurnar 1.000 kr. Bolli
segir fleiri lottó-nýjungar vænt-
anlegar um mitt næsta ár.
Söluherferð
Heildarsala lottóanna var 1.100
milljónir á síðasta reikningsári -
um 16.000 kr. á hverja fjölskyldu
í landinu. Tekjuafgangur varð
325 milljónir, sem ráðstafað var
til eigendanna, þ.a. komu 45
milljónir í hlut UMFÍ. Spilakass-
arnir eru sagðir helstu keppi-
nautar lottósins og meginskýring
minnkandi sölu. „I markaðsstarf-
inu var lögð áhersla á að selja
lottó til hinna ýmsu hópa með
tilheyrandi hópleikjum o.fl. End-
urskoðun hefur verið í gangi á
sölustöðunum og aukin áhersla
lögð á þjálfun og söluhvetjandi
aðgerðir gagnvart umboðsmönn-
um,“ segir í ársskýrslu UMFI.
Nú er spurningin hvort Jóker ríf-
ur söluna upp á nýjan leik. - HEI
Áratuga barátta í höfn
Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar 6. nóvember sl. var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:,, Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fagnar því
að áratuga bárátta landsbyggðarinnar íyrir því að landið verði eitt
gjaldsvæði fyrir almenna símanotkun, hafi nú þegar borið árangur."
Undir þessi orð hefur bæjarstjórn Isafjarðar einnig tekið, í höfn sé
liður í því að jafna aðstöðu fólks og fyrirtækja á landsbyggðinni.
Nýr formaður ÆSÍ
Gylfi Þ. Gíslason frá Sambandi ungra jafnaðarmanna Iét af for-
mennsku æskulýðssambandsins nýverið eftir fimm ára setu. Nýr for-
maður ÆSI er Sigvarður Ari Huldarson frá Verðandi, samtökum
ungs alþýðubandlagsfólks og óháðra.
Stefáu Pálsson
aðalbankastj óri
Stjórn Búnaðarbanka Islands hefur ráðið Stefán Pálsson sem aðal-
bankastjóra og þá Jón Adolf Guðjónsson og Sólon R. Sigurðsson sem
bankastjóra frá nk. áramótum, en þá mun hlutafélagabankinn taka
til starfa. Bæði Stefán og Jón Adolf hafa verið bankastjórar frá 1984
en Sólon hefur verið bankastjóri frá 1990.
Nýr prófastur í
Árnesprófastsdæmi
Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra hefur að tillögu biskups skip-
að séra Ulfar Guðmundsson sóknarprest á Eyrarbakka til að vera
prófast í Árnesprófastdæmi frá 1. desember nk. Skipunin er til fimm
ára.. Ulfar var um árabil prestur í Olafsfirði en hefur verið á Eyrar-
bakka frá 1980. Hann er kvæntur Herborgu Pálsdóttur.
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu verður á sunnudag. Menntamálaráðherra
mun mæta til sérstakrar hátíðar í Menntaskólanum á Akureyri þar
sem hann mun í annað sinn veita verðlaun Jónasar Hallgrímssonar,
en verðlaunahafi hlýtur 500. 000 kr. Sveitungar Jónasar Hallgríms-
sonar úr Oxnadal, en dagurinn er afmælisdagur hans, munu heiðra
minningu hans með því að fjalla um íslenska tungu á kvöldvöku í
Þelamerkurskóla á sunnudagskvöldið 16. nóv. Vakan hefst kl 20:30
og er öllum opin.