Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 1
Vöxtur 1 útgerð og iðnaði en samdráttur í verslun „Nýir vendir sópa best.“ Þeir Helgi Jóhannsson, forstödumaöur Kjötiðnaðar KEA, og Ari Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Snæfells, fylgast með umræðum á fundi Akur- eyrardeildar KEA nýverið. Rekstur kjötiðnaðar og sjávarútvegs hefur mjög vaxið f höndum þeirra félaga, og því ávarpaði einn fundarmanna þá félaga réttilega með áðurnefndu ávarpi. Mynd: GG Fyrstu átta mánuði þ.á. nam verslun Kaupfélags Eyfirð- inga á Akureyri 2,3 milljörðum króna og hafði dregist saman lun 3,7% miðað við sama tíma árið 1996. Utan Akureyrar nam verslunin 2,7 milljörðum króna og hafði degist saman um 3,5% og námu launagreiðslur um 263 milljón- um króna, höfðu aukist um 2,6%. A Akureyri námu launa- greiðslur í verslun 208 milljón- um króna og höfðu aukist um 4% milli ára. Samdrátturinn varð einna mestur í Olafsfirði, eða 9%, sem rekja má til fremur bág- borins atvinnuástands þar fyrri hluta ársins, en á Siglufirði jókst salan um 5,4%. í heild varð 2,4% samdráttur milli ára. I iðnaði nam veltan 459 millj- ónum króna sem er 17,4% veltu- aukning; 184 milljónir króna í þjónustu sem er 13,5% sam- dráttur; 805 milljónir í sjávarút- vegi sem er 26,5% aukning og liðlega einn milljarður í land- búnaði, sem er 3,2% aukning, en af því er hlutur Mjólkursamlags KEA 820 milljónir króna. Alls nam rekstur samstæðu KEA 7,4 milljörðum króna, sem er 6,9% veltuaukning en launakostnaður jókst um 11,3%. Rekstur Hótels KEA hefur ver- ið seldur til Fosshótela eins og kunnugt er og á sú breyting sér stað um næstu áramót. Bílaverk- stæði Dalvíkur verður gert að hlutafélagi og síðan verða öll hlutabréf í fyrirtækinu seld til einstaklinga eða fyrirtækja. Skipaafgreiðsla KEA á Dalvík verður einnig aflögð þegar Sam- skip yfirtekur reksturinn. Kjötiðnaðarstöð KEA hefur aukið veltu sina um 36% fyrstu níu mánuði ársins 1997 miðað við sama tíma árið 1996. Helgi Jóhannsson, forstöðumaður Kjötiðnaðar KEA, segir batnandi afkomu kjötiðnaðarins þó ekki ásættanlega en stefnt sé að auk- inni veltu, en styrkur kjötiðnað- arins felist þó fyrst og fremst í framleiðslu gæðavöru en nettósalan sé 40% til KEA-versl- ana, 29% til Vöruborgar í Reykjavík en 31 % til annarra verslana. I markaðssetningu er lögð aukin áhersla á umbúða- hönnun og „lógó“ kjötiðnaðar- stöðvarinnar, en slagorði er: „Fyrir landsmenn alla“. Stefnt er að nýjum vörumerkjum á næstu misserum. Unnið er að byggingafram- kvæmum við lengingu slátur- hússins á Akureyri og endur- skipulagningu svæðisins, m.a. hefur beinamjölsverksmiðjan verið aflögð og ruslagámamál á svæðinu tekin betri tökum. Stefnir að 4 milljarða ársveltu Snæfell hf., dótturfyrirtæki KEA, sem varð til við samein- ingu allra deilda og fyrirtækja KEA í sjávarútvegi, stefnir að 4 þúsund milljóna króna ársveltu, en þorskígildiskvóti fyrirtækisins er liðlega 11 þúsund tonn auk hluta í norsk-íslenska síldar- stofninum, karfanum á Reykja- neshrygg og rækjunni á Flæm- ingjagrunni. Starfsemin fer fram á sex stöðum; þ.e. Dalvík, Ólafs- vík, Hrísey, Hjalteyri, Stöðvar- firði og Sandgerði, þar sem tekin verður í notkun ný fiskimjöls- verksmiðja 1. febrúar nk. sem ætti þannig að ná í hluta af loðnuvertíðinni. Fyrirtækið er það sjöunda stærsta í sjávarút- veginum, næst á eftir Samherja, HB, Þormóði ramma/Sæbergi, UA, Granda og Básafelli. Upplausnarvirði Snæfells (ekki söluvirði) er í dag áætlað 5,9 milljarðar króna, mat 9,2 milljarðar króna en nettó skuldir 3,3 milljarðar króna. — GG Þrjátíu stærstu hlut- hafar ÚA eiga 88,12% Þrjátíu stærstu hlut- hafar í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. eiga 88,12% að nafnvirði 808,9 milljómr króna. Gengi bréfa í ÚA var í lok síð- ustu viku 3,95 og viðskipti frem- ur lítil. Heildarverðmæti (mark- aðsverð) bréfanna samkvæmt því er því um 3,3 milljarðar króna, en í marsmánuði 1996 var heild- arnafnverð bréfanna 767 millj- ónir króna og markaðsverð 2,9 milljarðar króna. Akureyrarbær átti þá meirihluta í fyrirtækinu, eða 53,33% að nafnvirði 409 milljónir króna, en þáverandi markaðsverð 1,5 milljarðar króna, en í dag er hlutur Akur- eyrarbæjar 20% að nafnvirði 183,6 milljónir króna að mark- aðsverði 734 milljónir króna. Töluverð tilfærsla hefur einnig orðið á öðrum eignarhlutum; t.d. hefur Kaupfélag Eyfirðinga selt 8,24% hlut sinn, Lífeyris- sjóður Norðurlands megnið af 3,49% hlut og Verkalýðsfélagið Eining í Eyjafirði 1,19% hlut. Stærstir nýrra hluthafa eru Burðarás (Eimskip) með 19,55% hlut og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna með 10,48% hlut, sem er m.a. liður í áætlunum SH að tryggja áframhaldandi viðskipti ÚA við SH. í árslok 1995 áttu hluthafar á Norðurlandi 67,7% hlutafjár, en meirihlutaeignin í þessu óskabarni sem stofnað var árið 1945 með samstilltu átaki bæjarbúa og bæjaryfirvalda hef- ur flust suður yfir heiðar. — GG Þrjátíu stærstu hlutarhafar í ÚA 12. nóvember sl.: Akureyrarbær 20,00% Burðarás 19,55% Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 10,48% Útgerðarfélag Akureyringa 7,72% Hampiðjan 6,29% Vátryggingafélag íslands 2,54% Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,51% Hlutabréfasjóðurinn 2,44% Skeljungur 1,99% Lífeyrissjóðurinn Framsýn 1,70% Þróunarfélag íslands 1,67% Verðbréfamarkaður íslandsbanka 1,16% VÍB - sjóður 6 - 0,83% Islenski fjársjóðurinn 0,83% Lífeyrissjóður Vesturlands 0,82% Sameinaði lífeyrissjóðurinn 0,77% Sjóvá-Almennar tryggingar 0,73% Lífeyrissjóður lækna 0,71% Eignarhaldsfélag Alþýðubankans 0,62% Islenski hlutabréfasjóðurinn 0,60% Lífeyrissjóður Norðurlands 0,50% Búnaðarbanki íslands 0,49% Lífeyrissjóður KEA 0,48% Kaupþing 0,44% Nesskip 0,44% Lífeyrissjóður sjómanna 0,41% Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans 0,37% Tryggingamiðstöðin 0,35% Lífeyrissjóður Austurlands 0,34% Lífeyrissjóður Suðurnesja 0,33% Mæðra- styrksnefnd leitar að- stoðar Mæðrastyrksnefnd á Akureyri er til húsa að Dalsbraut 1 (sama húsi og Punkturinn) og leitar nú aðstoðar bæjarbúa fyrir jólin. Mæðrastyrksnefnd hefur fyrir mörg undanfarin ár reynt eftir megni að hjálpa þeim sem lítið hafa milli handanna fyrir jólahátíðina. Mæðrastyrksnefnd telur að þrátt fyrir batnandi atvinnu- ástand séu enn margir sem ekki ná endum saman þrátt fyrir góðan vilja og því er leit- að aðstoðar þeirra sem betur eru aflögufærir og verslana. Helst er falast eftir fatnaði, búsáhöldum o.fl. sem síðan verður útdeild til þeirra sem þiggja \dlja aðstoð gefins, eða fyrir lítinn pening. Opið er hjá Mæðrastyrksnefnd á mið- vikudögum frá klukkan 13.00 til 18.00, hægt er að koma peningaframlögum inn á reikning nr. 175063 í Búnað- arbankanum eða hafa sam- band við Jónu Bertu í síma 462-1813 eða Hertu í síma 462-3370. - GG Hús Útgerðarfélags Akureyringa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.