Dagur - 25.11.1997, Qupperneq 2
2 - ÞRIÐJUDAGUR 2 S. NÓVEMBER 1997
Ðagur
Leikfélag
Akureyrar
4
Hart
5
1
bak
Af því ég skemmti mér svo vel.
Arthúr Björgvin Bollason
í Dagsljósi.
Aukasýning fimm-
tudagskvöld 27.
nóv. kl. 20.30 Laus
sæti
föstudagskvöld 28. nóv. kl. 20.30
ÖRFÁ SÆTI LAUS
laugard. 29. nóv. ki. 16.00
UPPSELT
laugardagskvöld 29. nóv. kl. 20.30
ÖRFÁ SÆTI LAUS
Allr;a síðustu
syningar
Missið ekki af þessari
bráðskefhmtilegu
sýningu.
Á ferð með
frú Daisy
eftir Alfred Uhry
í hlutverkunum:
Daisy Werthan:
Sigurveig Jónsdóttir
Hoke Coleburn:
Þráinn Karlsson
Boolie Werthan:
Aðalsteinn Bergdal
Þýðing: Elísabet Snorradóttir
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikmynd og búningar:
Hlín Gunnarsdóttir
Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir
Frumsýning á
Renniverkstæðinu
annan í jólum, 26. des. kl. 20.30
2. sýning 27. des. kl. 20.30
3. sýning 28. des. kl. 20.30
4. sýning 30. des.
Gjafakort í leikhúsið
Jólagjöf sem gleður
Til sölu í Blómabúð
Akureyrar, versluninni
Bókval og Café Karólínu
Söngvaseiður
Aðalhlutverk:
Þóra Einarsdóttir
fmmsýning í Samkomuhúsinu 6. mars
A Markhúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Bergdal
Frumsýning á Renniverkstæðinu um
páska Sími 462 1400
Munið Leikhúsgjuggið
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
sími 570-3600
1
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar
AKUREYRI NORÐURLAND
Jarðfræðiranns óknir
í Eyj aíj aröíirs veit
Jarðfræðirannsóknirnar hafa m.a. beinst frá bænum Hóium í Eyjafjardarsveit. Þar er
þessi faiiega kirkja, sem tekin var að nýju í notkum sl. sunnudag eftir gagngerar
endurbætur er staðið hafa með hiéum i nokkur ár. - mynd: gg
Á sl. sumri var haldið
áfram með raimsókn-
arverkefni á krotlagn-
ingn á þeim berglög-
um sem mynda iniian
verða Eyjafjarðar-
sveit.
Verkefnið hófst 1995 og stóðu
að því Ágúst Guðmundsson jarð-
fræðingur við Jarðfræðistofu
ÁGVST, Björn S. Harðarson,
jarðefnafræðingur við Edinborg-
arháskóla, og Leó Kristjánsson,
jarðeðlisfræðingur við Raunvís-
indastofnun Háskólans. Könnuð
er gerð allra hraun- og setlaga í
nokkrum fjallshlíðum á svæðinu,
og leitast við að afla gagna m.a.
um útbreiðslu ganganna, aldur
þeirra og uppruna, og virkni eld-
stöðva meðan það var að mynd-
ast (að líkindum fyrir 5-8 milljón
árum).
Einnig munu fást úr rann-
sóknunum upplýsingar um lofts-
lag og jarðsegulmagn á því tíma-
bili, sem og um síðari tíma um-
myndun, misgengishreyfingar
berggrunnsins og fleiri atriði.
Verkefnið er í beinu framhaldi af
kortlagningu Hauks Jóhannes-
sonar, jarðfræðings við Náttúru-
fræðistofnun íslands, og Agústs
Guðmundssonar á berglögum á
stærra svæði í Eyjafjarðarsveit,
Öxnadal og Skagafjarðardölum
fyrir nokkrum árum. Enn fyrr
stóðu Orkustofnun og Raunvís-
indastofnun ásamt tveimur er-
lendum háskólum að hliðstæðri
kortlagningu jarðlagasniða frá
Ólafsfjarðarmúla inn eftir Svarf-
aðardal og Skagafirði.
Rannsóknirnar 1995-97 hafa
einkum beinst að austanverðum
Eyjafjarðardal frá bænum Hól-
um og suður úr, og að innan-
verðum Djúpadal. Búið er að
safna sýnum úr alls 220 hraun-
lögum, flestum til segulstefnu-
mælinga. Einnig hafa nú þegar
verið gerðar nákvæmar mælingar
á aldri nokkurra hraunlaga með
svonefndri argon39/argon40 að-
ferð, en þær eru afar vandasam-
ar og ekki á færi margra rann-
sóknarstofa í heiminum.
Þessar rannsóknir voru styrkt-
ar af Vísindasjóði, Rannsóknar-
sjóði HI og breska vísindaráðinu
NERC. Vonást er til að hægt
verði að halda rannsóknunum
áfram á árinu 1998, og stækka
þá rannsóknarsvæðið til vesturs.
Skipulegar rannsóknir af þessu
tagi á hinum eldri svæðum ís-
Iands eru víðast hvar skammt á
veg komnar, og lega jarð-
myndana er nánast alveg ókönn-
uð í mörgum allstórum lands-
hlutum.
Þekktast er e.t.v. starf Bretans
G.P.L. Walkers og samverka-
manna hans á Austfjörðum á ár-
unum kringum 1960, sem veitti
alveg nýja innsýn í jarðfræðilega
byggingu landsins. Niðurstöður
slíkra almennra rannsókna geta í
einstökum tilvikum komið að
nokkru gagni við t.d. leit að nýt-
anlegum jarðefnum og jarðhita,
sem og við undirbúning jarð-
gangagerðar. - GG
Eigendur Handíðar, þær Edda Sigrún Friðgeirsdóttir og Inga J. Pálmadóttir í verslun
sinni með foriáta munsturprjónaða peysu. - mynd:gg
í LANDNÁMIHELGA MAGRA
Land sbyggðaríbúðir
Landsbyggðin hefur átt undir
högg að sækja allt síðan Viðreisn-
arstjórnin féll í byijun 8. áratug-
arins og félagshyggjustjórn Ólafs
Jóhannessonar tók við með alla
félagsmálapakkana. Þá varð það
skyndilega vinsælt að flytja frá
höfuðborgarsvæðinu og út á
land. En nú er öldin önnur,
talnaspekingar fullyrða að um 5
þúsund manns muni flytja á suð-
vesturhornið til aldamóta og
byggja þurfi um 1.500 íbúðir
undir þetta þjóðflutningafólk
sem allflest á íbúðir á lands-
byggðinni, og því er verið að
byggja yfir þetta fólk í annað
sinn. Ástæður þessarar óheilla-
þróunar fyrir íbúa landsbyggðar-
innar eru margþættar, en sumar
þeirra eru heimatilbúnar, t.d. í
formi ósamstöðu um flutning á
stofnunum og fyrirtækjum út á
landsbyggðina. Á 8. áratugnum
stóð til að flytja Byggðastofnun til
Akureyrar, en þá lagðist einn
þingmaður Norðurlands vestra
gegn því, gat ekki unnt Eyfirðing-
um þess að fá stofnunina til sfn.
Verri var þó afstaða þáverandi
bæjarstjóra á Akureyri sem sat
hjá! Niðurstaðan varð sú að verið
er að setja upp útibú um landið,
með takmarkað sjálfstæði, en
þingmaðurinn á Norðurlandi
vestra hefur væntanlega tekið
gleði sína að nýju með tilkomu
þróunarseturs stofnunarinnar á
Sauðárkróki.
Sagan kann að segja okkur í
nánustu framtíð að líklega hafi
verstu mistökin verið gerð þegar
bæjarstjórn Akureyrar skorti
pólitískt hugrekki til að fá aðal-
stöðvar IS til Akureyrar gegn því
að sölumál UA yrðu í þeirra
höndum en ekki hjá SH.
En hvað er til ráða og hvernig á
t.d. að spyrna gegn stöðugri
Púðasaumur og
munsturprjón
Verslunin Handíð hefur opnað
að Skipagötu 16 á Akureyri, í
húsnæði Pedrómynda, en um
sérverslun er að ræða sem m.a.
býður viðskiptavinum upp á Ro-
wan-prjónagarn frá Storkinum í
Kjörgarði í Reykjavík og útsaum
frá Kaffe Fasset og bútasaums-
vörur frá Virku í Reykjavík. Þeir
sem hyggja á ýmislegt föndur
fyrir jólin ættu að finna ýmislegt
við sitt hæfi.
Verslunin er í tengslum við
Rowan-klúbbinn og hefur meðal
annars sett sig í samband við
norðlenska félagsmenn, allt frá
Hofsósi austur í Þingeyjarsýslur.
Innan tíðar.verður boðið upp á
námskeið í púðasaumi og
munsturprjóni. Eigendur versl-
unarinnar eru Edda Sigrún Frið-
geirsdóttir og Inga J. Pálmadótt-
ir. - GG
á höfuðborgarsvæðið
fólksfækkun í Ólafsfirði og fleiri
stöðum og er sameining sveitar-
félaga kannski töfraorðið? Sam-
eining gerir sveitarfélögin öflugri
og betur í stakk búin til að veita
íbúunum betri þjónustu og nálg-
ast það þjónustustig sem er á
höfuðborgarsvæðinu. Stórt sveit-
arfélag er nú þegar staðreynd í
Skagafirði og það verður fróðlegt
að sjá hvort Vestur-Húnvetningar
verða sama sinnis næsta laugar-
dag þegar kosið verður þar. Sam-
eining er þó ekki neitt lausnarorð
meðan verkalýðsfélögin bera sinn
hluta af þeirri ábyrgð að Norður-
landskjördæmin tvö eru eitt
mesta láglaunasvæði landsins.
Það er heldur ekki ýkja traust-
vekjandi að tveir af stærstu at-
vinnurekendunum í landnámi
Helga margra eru reknir með tapi
samkvæmt milliuppgjörum, þ.e.
ÚA og KEA. Því verður krafa
þeirra íbúa í landnámi Helgra
margra sem vilja að stóriðjutalið
fari af umræðustiginu yfir á fram-
kvæmdastigið, sífellt áleitnari.
Rétt er að minna á í því sambandi
samþykkt íbúa Arnarneshrepps
um iðnaðarsvæði á Dysnesi,
stórðiðja á því svæði gæti orðið sú
vítamínsprauta fyrir svæðið sem
lengi hefur verið beðið eftir, en
stjórnmálamenn skort hugrekki
til að framfylgja því.
Samgöngur í lofti og á landi
hafa verið að batna en betur má
ef duga skal. Þannig hafa hug-
myndir Trausta Valssonar arki-
teks, hvað varðar vegasamgöngur
milli landshluta vakið verðskuld-
aða athygli, þær gætu lagt sitt
mál á vogarskálarnar og dregið úr
fólksstraumnum, og svo spara
þær líka dýr jarðgöng. Aðrar hug-
myndir Trausta, sem eins og það
að leggja niður byggð þar sem
hún telst ekki þjóðhagslega hag-
kvæm á skiljanlega ekki upp á
pallborðið hjá íbúum landsbyggð-
arinnar. Eg verð híns vegar að
viðurkenna að eg er viss aðdáandi
þeirrar spurningar hvort rétt sé
að halda við byggð í afskekktustu
byggðum landsins, burtséð frá
allri hagkvæmni.