Dagur - 25.11.1997, Qupperneq 3
lC^pr
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 - 3
AKUREYRI NORÐURLAND
Þórsarar stefna á 1. deild
Lið Þórs í 2. deildinni í hand-
knattleik hefur leikið í þeirri
deild síðan leiktímabilið
1992/1993 er liðið féll
úr 1. deildinni. Síð-
ustu tvö árin hefur
liðið lent í 3. sæti
deildarinnar og í fyrra
munaði ekki nema
hársbreidd að liðið
kæmist upp í 1. deild.
Eftir sjö umferðir er
liðið í efsta sæti deildar-
innar með 13 stig, hefur
unnið fimm leiki og gert eitt
jafntefli og með markatöluna
197-134. Úrslit einstaka leikja
eru sigur gegn IH 31 -19; jafntefli
gegn Selfossi 22-22; 36-12 gegn
Ármanni; 26-23 gegn Herði frá
ísafirði; 21-15 gegn Gróttu/KR,
gegn HM 32-22 og gegn Fjölni
30-21.
Liðið fékk góðan liðsstyrk í
haust er Axel Stefánsson mark-
vörður kom aftur til Þórs eftir
dvöl í herbúðum Vals,
Stjörnunnar og KA
og einnig Oskar
Bragason frá KA. Páll
Gíslason leikstjórn-
andi byrjaði aftur að
leika með liðinu í
haust en hann tók sér
árs leyfi frá hand-
boltaiðkun. Næsti leikur -
er 12. desember nk. gegn
Fylki, sem er í öðru sæti, en sig-
ur í þeim leik gæti fleytt Þórsur-
um langt að því markmiði að
leika í 1. deild veturinn
1998/1999. Liðið er skipað ung-
um leikmönnum og gömlum „ref-
um“ sem vel gætu náð því lang-
þráða takmarki. Mynd vantar af
Andrési Magnússyni. — GG
Mikhail Avbashev þjálfari.
Ingólfur Samúelsson.
Atli Þór Rúnarsson.
Mi nni kjörsókn en meiri vilji í Skagafirði
Heildarkjörsókn í
Skagafirði í samein-
garkosningiun 1993
var heldur minni en
15. ndvember sl. en
hugur Skagfirðinga,
utan Akrahreppinga,
til sameingar hefur
gjörhreyst eins og
kunnugt er.
I kosningunum 1993 var and-
staðan gegn sameiningu í Skaga-
firði sú að allt frumkvæði að
sameiningu kom frá ríkisvaldinu,
eða þáverandi félagsmálaráð-
herra Jóhönnu Sigurðardóttur,
og kosningarnar í Skagafirði sem
og annars staðar á landinu voru
án alls málaefnaundirbúnings
heima í héraði. Sameingarmál
hafa fyrr verið á dagskrá í Skaga-
firði, en árið 1989 hófust sam-
einingarviðræður þriggja hreppa
við austanverðan Skagafjörð;
Flofshrepps, Fellshrepps og
Hofsóshrepps vegna greiðsluerf-
iðleika Hofsóshrepps, og þeim
lauk með sameiningu 10. júní
1990 sem kunnugt er. Hrepp-
arnir höfðu þá þegar mikið sam-
starf, ráku t.d. saman félags-
heimili og grunnskóla.
Sauðárkrókskaupstaður hefur
mörg undanfarin ár sótt á um að
sameinast Skarðshreppi sem
umlykur kaupstaðinn, en sam-
ingar ekki tekist þar til nú 15.
nóvember sl. er sameining var
samþykkt. Kosningaþátttaka nú
var 57,1% en 51,2% árið 1993 í
þeim 1 1 sveitarfélögum sem nú
var kosið í en 48,2% ef Akra-
hreppur, sem stóð utan kosning-
anna nú, er tekin með. Þá voru
867 með sameiningu en 826 á
móti og munar þar mestu að á
Sauðárkróki voru 489 með en
359 á móti. Ef Akrahreppur er
tekinn með voru 875 með en
941 á móti en þar voru 8 með og
115 á móti. Aðrar hreppar sem
samþykktu sameiningu 1993
voru Skefilsstaðahreppur, Stað-
arhreppur, Viðvíkurhreppur,
Hólahreppur og Hofshreppur.
Sveitarfélög á Islandi eru 143
eftir þessa sameiningu en verða
134 ef sameining sveitarfélaga í
Vestur-Húnavatnssýslu og Aust-
ur-Skaftafellssýslu gengur eftir,
en þar verður kosið 29. nóvem-
ber nk. Síðan gæti talan haldið
áfram að lækka enn frekar, t.d.
ef sameining sveitarfélaga í upp-
sveitum Árnessýslu gengur eftir.
Sveitarfélög á Islandi hafa þá
ekki verið færri síðan í byrjun
18. aldar er skráning þeirra hófst
en flest voru þau á sjötta og sjö-
unda áratug þessarar aldar, eða
229 talsins, en voru orðin 209
árið 1990. Formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, hefur sagt að
ekki sé óeðlilegt að gera ráð fyrir
því að sveitarfélögum fækki nið-
ur í um 70, slíkt stuðli að vald-
dreifingu og sé auk þess byggða-
mál, því það auðveldi ríkisvald-
inu að færa verkefni út til sveit-
arfélaganna og stuðli að aukn-
ingu starfa á landsbyggðinni.