Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 3
nagtur^
V ÍKURBLAÐIÐ
MIDVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 - 3
Sævar Hardarson við sporð ferlíkisins.
Hvalabæriiin
kaupir hval
Hvalamiðstöðin á
Húsavík hefur fest
kaup á húrhval tH
heiuiahrúks og í gær
stóð tH að hefja hval-
skurð í suðurfjöru.
Fyrir allmörgum árum fóru
vaskir Húsvíkingar til Gríms-
eyjar og keyptu sér hvítabjörn
sem eyjarskeggjar höfðu veg-
ið. Mörgum þótti þessi höndl-
an ekki gáfuleg þá. En Grfms-
eyjarbjörnin þykir nú sann-
kölluð konungsgersemi upp-
stoppaður á Safnahúsinu á
Húsavík og þeir sem stóðu að
hingaðkomu hans þykja nú
hafa sýnt dæmafáa framsýni í
málinu.
Og nú heyrast þær raddir að
það sé hálfgert flónskuflan að
æða til Steingrímsfjarðar og
kaupa þar af bóndanum á
Hróbergi nýskotinn búrhval,
sem þar að auki er vanskapað-
ur, og flytja til Húsavíkur.
Gamli Grímseyjar-bjarnar
tónninn skýtur sem sé aftur
upp kollinum.
En hver veit nema beina-
grindin búrhvalsins eigi eftir
að verða annar eins kjörgripur
og Grímseyjarbjörninn og
dragi ekki síður ferðamenn í
bæinn þegar fram líða stundir.
Og að einmitt þetta neðri-
kjálkastutta afbrigði eigi eftir
að þykja merkilegra en önnur
heilsteyptari til munnsins. Við
höfum það a.m.k. þar til ann-
að kemur á daginn.
Ljósmyndari Víkurblaðsins
var á vappi við höfnina á
mánudaginn þegar Moby
Dick kom inn með hvalinn
(Moby Grikk?) á síðunni um
morguninn og sömuleiðis þeg-
ar bæjarstarfsmenn drógu
llykkið upp f suðurfjöru með
stórvirkum vinnuvélum
seinnipartinn. Eins og sjá má
á meðfylgjandi myndasyrpu.
-JS
Að boði heilbrigðisfulltrúa var hvalurinn dreginn út úr höfninni og suður fyrir
bryggjuna.
Moby Dick með „Moby Grikk" á síðunni i Húsavíkurhöfn.
Arnar Sigurðsson og Gísli Arnar Guðmundsson kampakátir við komuna til Húsavíkur.
Hefill og grafa stilltu saman strengi sína og drógu flykkið á land.