Dagur - 11.12.1997, Page 12
12- FIMMTUDAGUR ll.DESEMBER 1997
Tkyftr
ÍÞRÓTTIR
L A
Kristín
Rós best
hjá
fötiuðiun
Kristín Rós Hákonardóttir,
sundkona úr IFR, varð fyrir val-
inu sem íþróttamaður ársins hjá
fötluðum, þriðja árið í röð. Krist-
ín Rós er 24 ára gömul og hefur
sett fjöldann allan af heims- og
Evrópumetum í flokki sínum, en
hún er spastísk. A myndinni sést
hún ásamt þjálfurum sínum, Er-
lingi Þ. Jóhannssyni og Kristínu
Guðmundsdóttur, taka við viður-
kenningunni. — MYND: E.ÓL.
Stríð og Mður
Dagur gerir sjónvarpsstríð, sem
hann kallar svo, að umfjöllunar-
efni á íþróttasíðu í gær, miðviku-
dag 10. desember. Þar heldur
Guðni Þ. Olversson, blaðamað-
ur, því fram að Ríkissjónvarpið
fái sýningarréttinn frá útnefn-
ingu íþróttamanns ársins í lok
þessa árs og er rétt að staðfesta
að sú fullyrðing er hárrétt.
Landsmenn geta því fylgst með
því hver hlýtur þessa eftirsóttu
nafnbót, í árlegu kjöri Samtaka
iþróttafréttamanna, í beinni út-
sendingu RÚV, sem hefst kl.
21.00 mánudagskvöldið 29. des-
ember.
Ymislegt annað í grein GÞÖ er
hins vegar ekki alveg sannleikan-
um samkvæmt, því miður. Strax
skal þó viðurkennt að rétt er hjá
honum, að undirritaður, formað-
ur Samtaka íþróttafréttamanna
(SÍ), var ekki á fundi á vegum
þeirra 30. nóvember síðastliðinn.
Ástæðan er reyndar sú að enginn
fundur var haldinn á vegum SÍ
þann sunnudag. Hins vegar var
haldinn félagsfundur í SÍ
fimmtudaginn 27. nóvember og
annar miðvikudaginn 3. desem-
ber, báðir í húsnæði Morgun-
blaðsins í Kringlunni 1, og virðist
mér sem GÞÖ hafi skellt þeim
saman í einn við ritsmíð sína.
Tilgangur hvorugs fundarins var
þó að taka ákvörðun um það
hvenær kjörinu yrði lýst (eins og
fram kemur í grein GÞÖ) því það
hafði þegar verið ákveðið, en til
seinni fundarins var boðað til að
greiða um það atkvæði hvor sjón-
varpsstöðin yrði fyrir valinu að
þessu sinni - á hvorri kjörið yrði í
beinni útsendingu, vegna ein-
dreginna óska Valtýs Björns Val-
týssonar, deildarstjóra íþrótta-
deildar Stöðvar 2, þar að lútandi.
Báðum hefur hingað til verið
frjálst að sýna frá kjörinu sam-
tímis því þó aðeins RÚV hafi gert
það síðustu ár hefur stöðin aldrei
haft einkarétt á slíkri sýningu.
Iþróttadeild Stöðvar 2, sem
Iengi hafði ekki áhuga á að sýna
frá kjöri íþróttamanns ársins,
hefur eflst og dafnað síðustu
misseri og er nú kraftmikil og
stórhuga. Eftir að ljóst var að
báðar stöðvar höfðu mikinn
áhuga á'að sýna frá kjörinu nú,
samþykktu bæði Valtýr Björn og
Samúel Örn þá tillögu mína að
stöðvarnar skiptu þessum árlega
atburði á mili sín; að stöðvarnar
myndu sem sagt sýna frá honum
til skiptis, annað hvert ár. Fagn-
aði ég því vitaskuld en hnífurinn
stóð í raun enn í kúnni þrátt fyr-
ir það, vegna þess að báðar vildu
sýna frá kjörinu að þessu sinni.
Það vandamál varð því að leysa
og vitað mál að báðir myndu
varla una glaðir við þá niður-
stöðu sem óhjákvæmilega varð
að taka og það sem fyrst. Eins og
fram hefur komið var niðurstað-
an sú að RÚV sýnir frá kjörinu
að þessu sinni, en þó ekki á for-
sendum áðurnefnds samkomu-
lags vegna þess að viðbrögð Val-
týs Björns við niðurstöðunni
urðu þau að hann kvað Stöð 2
ekki hafa áhuga á að sýna frá
kjöri íþróttamanns ársins í fram-
tíðinni.
Þau orð tel ég þó hafa fallið í
hita leiksins; Valtýr er keppnis-
maður sem vildi ná þessum
„bita“ og ég vona að hægt verði
að ganga frá því eftir áramót að
Stöð 2 sýni frá kjörinu næsta ár.
Eg veit því ekki betur en friður
ríki milli mín og Valtýs Björns í
dag.
Rétt er að taka fram að RÚV
hefur ekki einkarétt á sýningunni
frekar en endranær og þó svo fyr-
irtækið greiði kostnað af upp-
setningu sviðs vegna kjörsins í
Þingsölum hótels Loftleiða hefur
Samúel Örn lýst því yfir að hann
sjái því ekkert til fyr-
irstöðu að Stöð 2
mæti á staðinn og
sýni beint frá kjörinu
29. desember næst-
komandi.
Undirritaður
stjórnaði fyrri fund-
inum (27. nóvem-
ber) en sat ekki
þann seinni, vegna
veikinda eins og ft-
rekað var í samtali
við blaðamann Dags,
en kemur þó ekki
fram í grein hans.
Svo virðist sem það
hljómi betur að ég
hafi einfaldlega ekki
verið á fundinum og
viti því „ekki ná-
kvæmlega hvað þar
fór fram“. Þrátt fyrir
að reglugerð Sl um
kjör íþróttamanns ársins kveði á
um að stjórn samtakanna ákveði
hvernig framkvæmd kjörsins sé
háttað og skeri úr um vafaatriði
sem upp kunni að koma, féllst
undirritaður á beiðni Valtýs
Björns um að kalla saman félags-
fund og fara þess á leit við félaga
okkar í SÍ að greiða um það at-
kvæði hvor sjónvarpsstöðin yrði
fyrir valinu að þessu sinni; vegna
áðurnefnds samkomulags um að
þær skiptu útsendingunum á
milli sín fannst mér rétt að gefa
félagsmönnum kost á að fjalla
um málið. Þessi fundur fór fram
3. desember. Hefði Stöð 2 fengið
fleiri atkvæði í slíkri atkvæða-
greiðslu hefði stöðin vitaskuld
sýnt beint frá margumræddum
atburði en ekki RÚV. Engin fór
hins vegar fram atkvæðagreiðsl-
an, einfaldlega vegna þess að
fundarmenn lýstu þeim vilja sín-
um, eftir að hafa rætt málið, að
stjórnin fyndi lausn. Fundarstjóri
neitaði því ekki beiðni Valtýs
Björns um að „láta fara fram lýð-
ræðislega atkvæðagreiðslu um
Skapti Hallgrímsson.
hvor stöðin fengi sýningarrétt-
inn“ eins og GÞÖ segir í grein-
inni. Eg gerist svo djarfur að
upplýsa þetta, þó svo lög SÍ
meini mér það í raun og veru. I
þeim segir nefnilega m.a. að
fundir séu trúnaðarmál þó svo
einhverjir virðist hafa gleymt þvf
í „stríðinu" svokallaða.
GÞÖ segir einnig í stríðsgrein
gærdagsins: „Stöð 2, sem tilbúin
var til að greiða töluvert meira en
RÚV hefur hingað til greitt fyrir
sýninguna, kom því aldrei til
Jón Arnar Magnússon, iþróttamaður ársins 1996.
álita að þessu sinni.“ Hann veit
meira en ég varðandi fjárhags-
hliðina, vegna þess að fulltrúi
Stöðvar 2 var aldrei tilbúinn að
nefna neina upphæð í mín eyru,
og það er einfaldlega heldur ekki
rétt að Stöð 2 hafi aldrei komið
til álita, eins og ég Iýsti hér að
framan. Eg spyr því eins og GÞÖ
f gær: Hvers vegna var fundurinn
haldinn? (Reyndar ekki 30. nóv.
einsog hann kýs að segja heldur
3. des. en það er vitaskuld ekki
aðalatriði málsins). Var það
vegna þess að ég var löngu búinn
að ákveða, í ágúst, að Ríkissjón-
varpið fengi sýningarréttinn?
Hafi svo verið hvers vegna í
ósköpunum var ég svo vitlaus að
taka þá áhættu að verða við ósk
Valtýs Björns um atkvæða-
greiðslu? Það er hins vegar ekk-
ert launungarmál að Samúel Örn
Erlingsson, starfandi íþróttastjóri
Sjónvarpsins, hafði ákveðið að
sýna frá umræddri athöfn og
hafði gert ráð fyrir því í dagskrá.
Nokkuð er gert úr þeirri stað-
reynd í grein GÞÖ svo og að
Samúel myndi sýna frá athöfn-
inni hvort sem Stöð 2 yrði með
beina útsendingu eða ekki. Það
er rétt og kemur „stríðinu" í raun
ekki við. Þetta var hins vegar, vel
að merkja, fyrir umrætt sam-
komulag. Aldrei hafði nefnilega
staðið til að selja neinni sjón-
varpsstöð einkarétt á sýningu frá
umræddum atburði, þar til nú að
samkomulag náðist við stöðvarn-
ar um að sýna frá kjörinu til
skiptis - sem kalla má einkarétt
þeirra annað hvert ár.
Samúel Erni var Ijóst, og það
ætti hann að geta staðfest, að
RÚV gat orðið undir í atkvæða-
greiðslu á áðurnefndum fundi.
Þó svo hann hafi verið búinn að
gera ráð fyrir því í dagskrá að
sýna kjörið, eins og hann er van-
ur, gat niðurstaðan orðið sú að
hann yrði undir. Það er stað-
reynd sem ekki er hægt að Iíta
framhjá.
Guðni Þ. Ölversson spyr í lok
greinar sinnar í gær hvort Mart-
einn Mosdal stjórni Samtökum
íþróttafréttamanna. Þetta er vita-
skuld mjög sniðug spurning en
rétt er að upplýsa hann og les-
endur Dags um að svo er ekki,
enda er Marteinn Mosdal - sá
frábæri „liðsmaður" fréttastofu
Stöðvar 2 - ekki félagsmaður f
samtökunum. Ekki frekar en
Guðni Þ. Ölversson.
Skapti Hallgrímsson,
formaður Samtaka
íþróttufréttamanna.
Juventus
áfram
Síðasta umferðin var leikin í
riðlakeppni Meistaradeildarinn-
ar í gærkvöld. Juventus Iagði
Manchester United í Tóríno
með marki Filippo Inzaghi seint
í síðari hálfleik og varð því síð-
asta liðið til að komast inn í 8
liða úrslitin. Rosenborg gerði
jafntefli við Olympiakos í Grikk-
landi og situr því eftir með sárt
ennið. Urslit leikja og lokastaða
riðlakeppninnar er eftirfarandi:
A-RIÐILL:
Sparta Prag-Dortmund 0:3
Galatasaray-Parma 1:1
Lokastaðan:
Dortmund 6 5 0 1 14: 3 15*
Parma 6 2 3 1 6: 5 9
SpartaP. 6 1 2 3 6:11 5
Galatasaray 6114 4:11 3
B-RIÐILL:
Juventus-Man.Utd 1:0
Kosice-Feyenoord 0:1
Lokastaðan:
Man.Utd 6 5 0 1 14:5 15*
Juventus 6 4 0 2 12:8 12*
Feyenoord 6 3 0 3 8:10 9
Kosice 6006 2:13 0
C-RIÐILL:
Eindhoven-Barcelona 2:2
Newcastle-Dynamo Kiev 2:0
Lokastaðan:
D. Kiev 6 3 2 1 13: 6 11*
Eindhoven 6 2 3 1 9: 8 9
Newcastle 6 2 1 3 7: 8 7
Barcelona 6 1 2 3 7:14 5
D-RIÐILL:
Real Madrid-Porto 4:0
Olympiakos-Rosenborg 2:2
Lokastaðan:
Real Madrid 64 1 1 15: 4 13*
Rosenborg 6321 13: 811
Olympiakos 6 1 2 3 6:14 5
Porto 6 114 3:11 4
E-RIÐILL:
B. Munchen-Gautaborg 0:1
Paris SG-Besiktas 2:1
Lokastaðan:
B. Munchen 6 4 0 2 13: 6 12*
ParisSG 6 4 0 2 11:10 12
Besiktas 6 2 0 4 6: 9 6
Gautaborg 6 2 0 4 4:9 6
F-RIÐILL:
Lissabon-Lierse 2:1
Leverkusen-Mónako 2:2
Lokastaðan:
Mónako 6 4 1115: 8 13*
Leverkusen 64 1111: 7 13*
Lissabon 6 2 1 3 9:11 7
Lierse 6 0 1 5 3:12 1
*liðin sem komust áfram í 8 liða
úrslit:
Man.Utd
Juventus
Real Madrid
Leverkusen
Monaco
B.Munchen
D.Kiev
Dortmund
Valur vaiin
Þrír æsispennandi leikir fóru
fram í 1. deild kvenna í gær-
kvöld. Valsstúlkur unnu góðan
sigur á Gróttu/KR, 24:22. ÍBV
og FH mættust í Eyjum og Vík-
ingur tók á móti Fram.
Úrslit leikjanna í gærkvöld:
Valur-Grótta/KR 24:22
ÍBV-FH 21:18
Víkingur-Fram 21:20
Staðan er nú bessi eftir leikina í
gær:
Stjarnan 118 2
Haukar 117 2
Grótta/KR 116 2
FH 12 5 2
ÍBV 115 1
Víkingur 12 5 1
Valur 12 3 2
Fram 12 0 2
1 270:222 18
2 288:254 16
3 199:196 14
5 248:249 12
5 233:237 11
6 283:292 11
7 230:247 8
10 240:282 2