Dagur - 11.12.1997, Blaðsíða 13

Dagur - 11.12.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGVH ll.DESEMBER 1997 - 13 ÍÞRÓTTIR Hreinn Hrmgsson samdi við Þróttara Ilreiiin Ilringsson, sem verid hefur eiiin lykilmaima 1. deild- arliðs Þórs á undanfomum ámm, hefur skrifað imdir tveggja ára samning við Þróttara sem em nýliðar í úrvals- deildinni. Ilreiiiii er annar leikmaðnrinn sem nýliðamir fá til sín. Ásmundur Helgason, sem lék með FH í fyrra, er einnig kominn í raðir félagsins. „Ég hlakka til að spreyta mig í efstu deild og þá er ég orðinn langþreyttur á aðstöðuleysinu á Akureyri. Það er búið að tala um það í þrjú ár að það þurfi að bæta aðstöðuna en ekkert gerist. Ég er búinn að fá nóg af því að hlaupa á malbikinu og lyfta lóðum og geta ekki verið með bolta á tán- um, allan veturinn. Mér líst hins vegar vel á aðstöðuna hjá Þrótt- urum í Laugardalnum sem er ein sú besta á landinu og ég taldi þetta vera rétta tímann til að breyta til,“ sagði Hreinn, sem lík- lega á eftir að taka sæti annars Norðlendings, Heiðars Sigur- jónssonar, sem genginn er til liðs við norska liðið Lillehammer. Þá bendir margt til þess að Einar Örn Birgisson verði ekki áfram hjá liðinu. Hreinn Hringsson segist vera oróinn þreyttur á aðstöðuleysi á Akureyri. Flótti frá Þór? Hreinn hefur verið markahæsti leikmaður Þórs undanfarin ár en Akureyrarliðið náði athyglisverð- um árangri í 1. deildinni í fyrra undir stjórn Omars Torfasonar. Þeirri stefnu var íylgt í fyrra að byggja eingöngu á heimamönn- um. Síðan í haust hafa hins veg- ar flestir af reyndari „heima- mönnum" horfið á braut og flest bendir til þess að tími táninganna renni upp hjá félaginu næsta vor. Fimm af fastamönnum liðsins eru farnir frá félaginu, en það eru auk Hreins, þeir Páll Gíslason og Arni Þór Arnason sem fóru til Leifturs, markvörðurinn Atli Már Rúnarsson sem genginn er til liðs við Dalvík og Þórir Askelsson sem leikur með Fram á næstu leiktíð. Sigurjón Magnússon hef- ur tekið við þjálfun Akureyrarfé- lagsins sem er með ungan og efnilegan hóp, en spurningin er hins vegar sú hvort ungu strák- arnir séu tilbúnir að axla ábyrgð- ina í meistaraflokld. - FE Eysteiim til Genk Leikmeim biharmeist- ara Keflvikiiiga voru á faraldsfæti í haust. Englandsmeistarar Manchester United fylgjast enn náið með Þórami Krisjánssyni og Eysteinn Hauksson er hugsanlega á för- um til Genk í belg- ísku fyrstu deildinni. Belgíska fyrstudeildarfélagið Genk, sem Þórður Guðjónsson skorar reglulega fyrir þessar vik- urnar, er að velta fyrir sér Héraðmanninum Eysteini Haukssyni sem leikið hefur með Keflavík að undanförnu. Ey- steinn var jafnbesti leikmaður blkarmeistara Keflvíkinga síð- asta sumar og sannaði sig sem einn besti miðjuieikmaður deild- arinna*'. Eftir því sem Dagur kemst næst er belgíska liðið einnig að skoða tvo leikmenn frá Júgóslavíu en val félagsins stendur á milli þessara þriggja manna. Genk hefur gengið mjög vel í belgíska boltanum í vetur og er Eysteinn Hauksson. nú í 3. sæti fyrstu deildarinnar. Það er því eftir töluverðu að slægjast að komast í leikmanna- hóp liðsins. Ferguson hrifinn af Þórami Kristjánssyni Eins og fram kom í Degi fyrr í haust dvaldi gulldrengurinn úr Keflavík, Þórarinn Kristjánsson, hjá Englandmeisturunum í Manchester United í haust. Samkvæmt fréttum frá Old Trafford voru forráðamenn meistaranna mjög hrifnir af Þór- arni og ætla að fylgjast með hon- um áfram. Þeir telja samt hon- um fyrir bestu að hann leiki hér á landi í I -2 ár í viðhót. Þá verði Jakob Jónharðsson. hann betur tilbúinn í slaginn í atvinnumennskunni. Keflvíkingar hafa einnig feng- ið tilboð í Jóhann Guðmundsson og Jakob Jónharðsson, bæði frá Englandi og Svíþjóð, en þau munu lítt fýsileg að mati þeirra er gerst þelckja. Hauki Inga Guðnasyni hefur einnig verið boðið að æfa og keppa erlendis en hann tekur líf- inu með ró og ætlar að ljúka stúdentsprófi sínu í vor. Eins og lesendur Dags lásu fyrr í haust eru bæði Liverpool og PSV Eindhoven að gera hosur sínar grænar fyrir Hauki. Á meðan bíða Keflvíkingar spakir eftir álitlegu tilboði. — GÞÖ Einar Þór af stað eftir keppnisbaim Einar Þór Einarsson, Islandsmeist- ari í spretthlaupi til margra ára, mun verða á meðal keppenda á Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum sem haldið verður í Laugardals- höllinni í janúar nk. Einar Þór sem keppir fyrir Ármann var sem kunn- ugt er dæmdur í tveggja ára keppn- isbann fyrir að neyta lyfja á bann- lista, en hann er nú byrjaður að æfa á ný og má byrja að keppa í janúar. Einar verður einn sex fs- lenskra keppanda sem taka þátt í 50 metra hlaupi. Sextán Islending- ar hafa þegið boð um að keppa á mótinu. Einar Þór Einarsson. Flhihi örugg á EM iimanhúss Fimm íslenskir frjálsíþróttamenn háfá náð lágmörkunum fyrir Evr- ópumótið innanhúss sem fram fer í Valencia á Spáni um mánaðar- mótin febrúar-mars. Jón Arnar Magnússon er öruggur með sæti f sjöþraut, Guðrún Árnardóttir í 60 m grindahlaupi, Pétur Guðmunds- son í kúluvarpi og Vala Flosadóttir og Þórey Elísdóttir úr FH í stang- arstökki. Lágmarkin voru kynnt í lok síðasta mánaðar og þá kom í ljós að Jóhannes Már Marteinsson, spretthlaupari úr IR, var aðeins 1/100 frá lágmarkinu í 100 metra hlaupi sem er 10,60. Jóhannes hefur tíma til 10. febrúar til að ná lágmarkinu og það sama gildir um Sunnu Gestsdóttur sem keppir að sæti í 60 metra hlaupinu. — FE Atvinna Akureyri Tölvutæki er 12 ára sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í heildarlausnum í skrifstofubúnaði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Starfsmenn fyrirtækisins eru 22. Við leitum að duglegum, áhugasömum einstaklingi í ábyrgðarmikið og krefjandi framtíðarstarf. Innkaupa- og lagerstjóri. Starfssvið: Panta inn vörur. Skráning í tölvukerfi. Skipulag lagers. Viðkomandi þarf að koma vel fyrir og geta unnið sjálfstætt, tölvu- og bókhaldskunnátta æskileg. Umsóknum skal skila í afgreiðslu Dags á Akureyri í síðasta lagi föstudaginn 19. desember, merkt Tölvutæki. T#LVUTÆKI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.