Dagur - 12.12.1997, Side 1

Dagur - 12.12.1997, Side 1
Sauðakjöt að norðan Kristján Jóhannsson óperusöngvari er kominn íjólafrí til íslands og syngur med Mótettukór Hallgrímskirkju um helgina. Medal ann- ars verður frumflutt Betlehemsstjarna Áskels Jónssonar í útsetningu Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Útsetningin er gerð að ósk Krist- jáns. Textinn er eftir Úif Ragnarssonar lækni. mynd: bg. Kristján Jóhæinsson óperusöngvari erkom- inn með fjölskyldu sma íþriggja vikna jólafrí til íslands. Hann hefurþegar pantað sauðakjöt að norðan. „Mér finnst yndislegt að vera kominn heim og við erum hér með mjög jákvæðu hugarfari,11 segir Kristján Jóhannsson, óp- erusöngvarinn heimsfrægi að norðan, en hann er kominn heim til Islands í þriggja vikna jólafrí með fjölskyldu sína. Kristján mun fyrst dveljast yfir jólin hjá tengdafólki sínu fyrir sunnan og um áramótin hjá fólkinu sínu fyr- ir norðan. En hvernig hyggjast þau hafa jólin að þessu sinni? Spaghettí í jólapotttnn „Þetta verða mjög hefðbundin ís- lensk jól, myndi ég álíta. Þau hafa að sjálfsögðu ekki verið það því að við erum svolítið lituð af kaþólskum jólum þegar við erum heima hjá okkur á ftalíu en núna á ég von á því að jólin verði mjög hefðbundin. Eg er búinn að óska eftir sauðakjöti að norðan. Ég hugsa samt sem áður að ég eigi eftir að læða einhverju spaghettíi í pottinn inn á milli til að brjóta upp og létta mallakútinn aðeins. íslenskt eldhús er mjög þungt,“ segir hann. Hvernig eru hefðbundin jól Kristjáns Jóhannssonar og hans fjölskyldu í sambandi við kirkju- sókn og tónlist? „Kirkjusókn er ekki mikil. Syn- ir mínir hafa alist upp sem sann- kristnir með og í kirkjunni vegna þess að þeir tóku sín fyrstu þrjú ár á leikskólum í kirkjunni. Þar var þeim kennd kristnifræði og saga guðs almáttugs og Jesú Krists. Þeir eru vel meðvitaðir um þá sögu alla. Eg hef fullan hug á að kynna þeim meira ís- lenska kirkju,“ segir Kristján og veltir fyrir sér hvort hann eigi að fara í kirkju á aðfangadagskvöld eða jóladag. Líklega sé best að viðhalda hefð tengdafjölskyld- unnar að hlusta á messu í útvarp- inu á aðfangadagskvöld og fara í kirkju á jóldag en skyndilega skiptir hann um skoðun og ákveður að fara með alla hersing- una í Hallgrímskirkju á aðfanga- dagskvöld. „Ef séra Karl Sigurbjörnsson þjónar á aðfangadagskvöld ætla ég að lofa því að ég mæti í kirkj- una hans. Við hlustum á síðustu messu tilvonandi biskups. Eg þekki Karl ekki mjög ve! persónu- lega en kynntist honum fyrir um 20 árum og hann hefur gift og skírt í fjölskyldu tengdaforeldra minna,“ segir söngvarinn. Þar með er það ákveðið. Nýtt í pokahominu Kristján Jóhannsson notar tæki- færið nú þegar hann er á landinu til að Ieyfa íslendingum að njóta hæfileika sinna og syngur með Mótettukór Hallgrímskirkju und- ir stjórn Harðar Askelssonar í Hallgrímskirkju á morgun, laug- ardaginn 13. desember, og tvis- var í Akureyrarkirkju á sunnu- daginn. Þá verður hann með tvenna tónleika fyrir sunnan í næstu viku. Löngu er uppselt á alla þessa tónleika. En hvernig ætli honum lítist á að syngja með Mótettukórnum? „Andinn er mjög góður og alla langar að gera mjög vel. Eg held að þetta eigi eftir að vera eftir- minnileg stund. Það er hugur allra að láta svo verða,“ segir hann. Dagskrá tónleikanna verður hefðbundin og miðuð við árstím- ann, klassísk jólalög og mikil jólastemmning. Einnig verða flutt lítt eða jafnvel óþekkt lög, til að mynda verður Betlehems- stjarna Áskels Jónssonar frum- flutt í útsetningu Jóns Hlöðvers Áskelssonar en sú útsetning er gerð að ósk Kristjáns. Textinn er eftir Ulf Ragnarsson lækni. Þá mun Kristján syngja franskt jóla- lag í fyrsta skipti í íslenskri þýð- ingu þannig að hann er með ým- islegt nýtt í pokahorninu. „Það verður tilfinningaríkur hátíðarbragur á þessurn tónleik- um öllum," segir Kristján. „Eg hef ævinlega verið upp- seldur og verið með metaðsókn frá því 1979 að ég kom fram fyrst. Það hefur aldrei breyst. Eg þakka bæði þjóðinni og guði al- máttugum fyrir það.“ -GHS. A& SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA m ' Skijtagafa 9 • l’ósthólf 220 602 Akiiftyfi Veitum hagstæð lán til kaupa á landbúnaðarvélum Reiknaðu með SP-FJÁRMÖGNUN HF Vegmúli 3 • 108 Reykjavlk • Simi 588-7200 • Fax 588-7201 Það lekur aðeins einn virkan aö koma póstinum þínum til skila fXmtMœmenf |

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.