Dagur - 12.12.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 12.12.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGVR S.DESEMBER 1997 - 27 LIFIÐ I LANDINU Um helgina verð- urhaldið upp á það hjáfinn- landsvinum á íslandi að 80 ár eru liðin frá því aðFinnarlýstu yfir sjálfstæði. „Við erum dálítið alvörugefin þjúð, Finnar, “ segir Lea „og þessi hátíð er því ekki alveg eins og 17. júní hjá ykkur." Finnar og finnlandsvinir halda hátíð um helgina þvi að 80 ár eru liðin frá því að Finnar lýstu yfir sjálfstæði. mynd: e ól SPJALL Fnmlandsvniir halda hátíð Vegna þessa mun Suomi-félagið á Islandi vera með hátíðarhöld hér á landi. Suomi-félagið er vináttufélag Islands og Finn- lands og í því eru um 130 manns, sem flestir eru íslenskir. „Flestir þeirra sem eru í félag- inu, hafa dvalið í Finnlandi, eiga ættingja þar eða eitthvað slíkt og eiga það sameiginlegt að hafa lið- ið vel í landinu'1 segir Lea Hánni- nen, formaður Suomi-félagsins. Finnar lýstu yfir sjálfstæði sínu árið 1917, en þangað til höfðu þeir verið stórfurstadæmi í Rússlandi. Þeir höfðu þó alla tíð fengið að vera svolítið sjálf- stæðir og þegar byltingin var gerð í Rússlandi, sáu menn möguleika á því að lýsa yfir al- gjöru sjálfstæði. Síðan hefur þjóðin haldið upp á þessa yfir- lýsingu með hátíð árlega. For- Við byrjum á því að syngja þjóðsönginn okkarog horðum saman hátíðlegan kvöldverð. setinn fer ásamt þingmönnum í kirkju og um allt Finnland eru lagðir kransar á leiði þeirra sem látist hafa í styrjöldum. Iiiinar alvörugefnir Hátíðin verður að þessu sinni haldin í húsi Kiwanisklúbbsins, að Engjateigi 11, þann 13. des- ember ld. 19 og rúmlega 50 manns hafa skráð sig á hátfðina nú þegar og búist við að fleiri muni bætast við. „Við erum dálítið alvörugefin þjóð, Finnar," segir Lea „og þessi hátíð er því ekki alveg eins og 17. júní hjá ykkur. Við byrj- um á því að syngja þjóðsönginn okkar og borðum saman hátíð- legan kvöldverð. Svo ætla nokkr- ir stúdentar, sem hafa myndað sönghóp, að koma og syngja fyr- ir okkur og spila finnsk þjóðlög með nútímalegum hætti. Það hefur verið vinsælt í Finnlandi um nokkra hríð.“ Sendiherra Finnlands á ís- Iandi verður heiðursgestur og heldur hátíðarræðu. Gamlir fé- lagar verða einnig heiðursgestir. „Finnski harmonikusnillingur- inn Tatu Kantomaa, sem er löngu orðinn vel þeldttur hér á Iandi mun einnig skemmta gest- um,“ segir Lea að lokum. VS Einn í ellefubíó Þetta er grín Nú var það íslenskt, já takk. Borgarbíó á Akureyri hefur tekið til sýningar kvikmyndina Perlur og svín (þetta hljómar eins og tilkynning). Staðreyndin er sú að ég sá Perlur og svín í vikunni og hún reyndist vera hið ágæt- asta grín. Höfundur myndarinn- ar er hinn eini sanni Óskar Jónasson (ég ætla ekki að kalla hann Skara skrípó). Ég var frek- ar spenntur yfir að fara að sjá þessa nýju afurð Óskars enda sló hann eftirminnilega í gegn með mynd sinni Sódóma Reykjavík. Hún er einfaldlega ein besta íslenska myndin sem undirritaður hefur séð. Enda hefur komið í Ijós að þær ís- lensku myndir sem hafa verið best sóttar f gegnum tíðina hafa verið gamanmyndir. Myndir eins og Með allt á hreinu og lífsmyndir Þráins Bertelssonar svo einhver dæmi séu tekin. Þungu myndirnar hafa einfald- lega ekki náð sömu vinsældum og þær í léttari kantinum. Nóg um það. Mynd dagsins er til umfjöllun- ar og ætla ég að reyna að Qalla um hana enda hafa margir bent mér á að ég fjalli ansi oft um eitthvað allt annað en myndirn- ar. Það er bara svo margt annað sem er svo skemmtilegt að tala um. Leikurinn í myndinni er nokkuð góður og ekki skemmir að sjá kunnuglegt akureyrskt andlit í aukahlutverki. Sjálfan „diskókónginn" Kidda í Plánet- unni. Svo kemur gamli vinurinn og „poppstjarnan" Ottó Tynes sterkur inn f smáhlutverki (einn montinn að þekkja einhvern af leikurunum). En það var Ingvar Sigurðsson sem stal senunni. Hann lék rússneskan sjómann og gerði það stórvel og var afar sannfærandi. Það sem gladdi mig einna mest var að leikararn- ir voru lausir við allan ofleik. Það er alltof mikið af ofleik í ís- lenskum myndum. Tónlist og myndataka var nokkuð góð og lýsingin einnig. En ég var kannski orðinn aðeins þreyttur á sama tónlistarstefinu sem gekk í gegnum myndina. Óskar, fleiri myndir. SMÁTT OG STÓRT Að koma hér Það er stundum með ólíkindum hvað augljósar málvillur eiga greiða leið inn í málið og festast þar. Allt í einu standa menn frammi fyrir því að málvillan er orðin svo föst að allir nota hana án þess að taka eftir því hve villan er augljós. Ein af þessum villum er - að koma hér -. Flestir nota þetta orðið og þykir eðlilegt mál. Menn segja: „Hann kom hér í gær og sagði...“ eða „Ég kom hér í dag til að...“ eða „Þegar hann kom hér...“ Svo virðist sem menn séu hættir að - koma hingað - þeir virðast iíka hættir að - vera hér -. Það er eins og allir hafi gleymt því að menn - koma hingað og eru hér -. Ósköp væri nú vinalegt ef fólk myndi taka þetta til athugunar og hætta að segja í útvarpi eða sjónvarpi, eða bara manna á milli - hann kom hér f gær... Frjálst og óháð Það vakti. að vonum mikla at- hygli þegar Össur Skarphéðins- son alþingismaður var ráðinn ritstjóri DV. Hann hefur líka svo sannarlega fengið að heyra það hjá starfsfélögum sínum í Al- þingishúsinu. Menn hafa spurt hvort þingmennskan sé orðin svo lítið starf að menn geti gegnt ritstjórastarfi meðfram henni. Eins og alþjóð veit hefur DV alla tíð verið auglýst - frjálst og óháð dagblað - Menn voru því að velta því fyrir sér niður í Alþing- ishúsi hvort þetta slagorð væri ekki dottið upp fyrir þegar þingmaður Alþýðuflokksins væri orð- inn ritstjóri blaðsins. Bent var á að síðastliðinn laugardag hefði verið opna í blaðinu þar sem var grein eftir Össur á hægri síðu en Jón Baldvin á þeirri vinstri. Þá var kveðið upp úr með það að nú væri DV frjálst fyrir krata en óháð öðrum flokkum. Farandverka- maðurinn Það fór fyrir brjóstið á mörgum aðdáendum fyrrum farandverka- manns Bubba Morthens þegar hann í fyrra kom fram f auglýs- ingu fyrir Hagkaup og söng þeirri verslun lof og prís. Margir töldu þennan auglýsingasöng Bubba ástæðuna fyrir litlu gengi plötu hans það árið. Enn er Bubbi kominn af stað og syngur fyrir þessi jól um dýrð Hagkaups en ekki fiskvinnslufólks. I tilefni af þessu var ort vísa sem á sín- um tíma birtist í Víkurblaðinu: Hinn trúi þjónn, sem lýtur eliki lengur lögmúlum hins berstrípaða dagkaups, ísínum frakka borubrattur gengur, - Bubbi farandverkamaður Hagkaups. Veglega guðshúsið Fræg er orðin áralöng andstaða „svartstakka" kirkjunnar gegn herra Ólafi Skúlasyni biskupi. Engir hafa gengið þar harðar fram en séra Geir Waage í Reyk- holti, séra Flóki fyrrum Langs- holtsklerkur og séra Sigurður Sigurðsson í Skálholti. Þegar svo ný kirkja var vígð í Reykholti í sumar er leið, þar sem séra Geir er sóknarprestur, mætti biskup ekki til vígslunnar enda mun nærveru hans ekki hafa verið óskað. Þar voru hins vegar séra Flóki, séra Geir og séra Sigurður. Þá orti Jakob Jónsson á Varmalæk: Veglega guðshúsið vígðu þeir með visku snilli ogfestu, Sigurður, Flóki og séra Geir syndlausir allir - að mestu. UMSJÓN Sigurdór Sigurdórsson

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.